Ráðuneytið segir hallarekstur ríkislögreglustjóra dæmalausan

Halla­rekstur emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra virð­ist for­dæma­laus og stefnir nú í um einn og hálfan millj­arð króna. Rík­is­lög­reglu­stjóri segir ástæð­una vera að emb­ætt­inu hafi ekki verið tryggð full fjár­mögnun til að sinna þeim verk­efnum sem því hafi verið falin, þvert á full­yrð­ingar ráðu­neyt­is­ins.

Ráðuneytið segir hallarekstur ríkislögreglustjóra dæmalausan
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir er rík­is­lög­reglu­stjóri. Mynd: Golli

Fram­úr­keyrsla emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra er meiri en „áður eru dæmi um“ að því er kemur fram í minn­is­blaði dóms­mála­ráðu­neytis þar meiri­háttar halla­rekstur emb­ætt­is­ins er gagn­rýndur. Nú stefnir í eins og hálfs millj­arða halla­rekst­urs emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra og sér ekki fyrir end­ann á vand­anum sem dýpkar á milli ára. 

Svo­kall­aður „annar rekstr­ar­kostn­aður“ rík­is­lög­reglu­stjóra hefur auk­ist um helm­ing á einu rekstr­ar­ári og fer úr 3 millj­örðum árið 2023 upp í 6,5 millj­arða árið 2024. Þetta er meðal ann­ars það sem finna má í árs­reikn­ingi Rík­is­lög­reglu­stjóra frá síð­asta ári.

RÚV greindi frá því á mánu­dag að verk­taki emb­ætt­is­ins hefði fengið sam­an­lagt 160 millj­ónir á fimm árum. Úr varð að verk­tak­inn var ráð­inn í starf hjá emb­ætt­inu, þó til þess eins að draga ráðn­ing­una til baka skömmu síðar, enda ráðn­inga­bann hjá emb­ætt­inu.

Ferða, fundar og sérfræðiþjónusta eykst um helming

Rík­is­lög­reglu­stjóri áætlar að halla­rekstur emb­ætt­is­ins sé nær einn og hálfur millj­arður vegna þess­ara …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Hversu lengi fær þessi kona að ,,rútta" með almannafé? Fái hún starfslokalaun, meira en þrjá mánuði, þá er endanlega búið að sýna fram á skipulagða hagsmunagæslu fyrir pólitíkusa og embættismenn.
    2
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það væri góð tilbreyting að fá hæfan og ábyrgan Ríkislögreglustjóra. Nokkuð sem ekki hefur sést í áraraðir.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár