Pyntingarnefnd skráði erindi gegn íslenska ríkinu

Íslenska ríkið þarf að svara erindi pynt­ing­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna eftir að maður frá Kamerún var synjað um máls­með­ferð. Maðurinn end­aði aftur í heima­land­inu, þar sem hann var pynt­aður.

Pyntingarnefnd skráði erindi gegn íslenska ríkinu
Útlend­inga­stofnun synj­aði mann­inum um hæli og kæru­nefnd útlend­inga­mála stað­festi þá ákvörðun. Mynd: Bára Huld Beck

Nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna gegn pynt­ingum hefur skráð erindi hæl­is­leit­enda frá Kamerún sem var sendur af landi brott til Möltu í sumar á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Lög­lærður tals­maður manns­ins, Brynjólfur Sveinn Ívarsson, segir þetta umtals­verðan áfanga en nefndin hefur ein­ungis skráð 1.260 erindi síðan árið 1989. Af þeim hefur nefndin birt álit um 523 mál.

Kamer­ún­mað­ur­inn er fæddur árið 1997 og flúði frá heima­landi sínu út af borg­ara­styrj­öld þar í landi sem er afleið­ing nýlendu­stefnu Frakka og Eng­lend­inga. Átökin hverf­ast um Frönsku­mæl­andi Kamer­ún­menn sem ofsækja þá ensku­mæl­andi og segir Brynjólfur að skjól­stæð­ingur sinn, sem er ekki unnt að nafn­greina að svo komnu vegna örygg­is­sjón­ar­miða, hafi lent í miklu ofbeldi í heima­land­inu.

Hann var versl­un­ar­eig­andi, búð hans var brennd til grunna þar sem hann var sak­aður um að hafa selt and­spyrnu­hreyf­ing­unni sígar­ettur. Maðurinn var svo lam­inn úti á götu af her­mönnum. Hann var síðar fang­els­aður þar sem hann mátti sæta pynt­ingum. …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magni Hjálmarsson skrifaði
    Það er erfitt að lesa þessa frétt. Hún er í hróplegri andstöðu við þau lífsgildi sem þjóðin trúir á.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár