Sóknarprestur: Kynfræðslan átti ekki að vera innlegg í menningarstríð

Sókn­ar­prestur Gler­ár­kirkju segir umdeilda kyn­fræðslu ekki hafa verið hugs­aða sem inn­legg í menn­ing­ar­stríð þjóð­ern­is­sinn­aðra íhalds­manna. Það sé ekki þörf á að auka á gjána á milli fólks, hana þurfi að brúa.

Sóknarprestur: Kynfræðslan átti ekki að vera innlegg í menningarstríð
Lentur í menn­ing­ar­stríði Sindri Geir Ósk­ars­son er annar sókn­ar­prestur Gler­ár­kirkju, þar sem umtöluð kyn­fræðsla var haldin. Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Ég ætla ekki að taka undir að þetta hafi verið dóm­greind­ar­leysi. Þetta var úthugsuð fræðsla, það lá alveg fyrir hvert efni fræðsl­unnar var og við fórum ekk­ert leynt með það,“ segir Sindri Geir Ósk­ars­son, annar sókn­ar­prestur Gler­ár­kirkju, um gagn­rýni á kirkj­una fyrir bjóða upp á kyn­fræðslu fyrir ferm­inga­börn og for­eldra þeirra. 

Akur­eyskur faðir gerði athuga­semd við fræðsl­una opin­ber­lega og má segja að málið hafi sprungið út á skömmum tíma á sam­fé­lags­miðlum.

Um 240 sókn­ar­börn, for­eldrar og ung­lingar, voru í Gler­ár­kirkju og fylgd­ust þar með einum reyndasta fyr­ir­les­ara lands­ins, kyn­fræð­ingnum Siggu Dögg, halda erindi á dög­unum innan veggja kirkj­unnar. Flestir virð­ast hafa tekið vel í fræðsl­una og lýsa því meðal ann­ars yfir á Facebook. Fræðslan virð­ist þó hafa farið fyrir brjóstið á einum fjöl­skyldu­föður á Akureyri sem gagn­rýndi málið á sam­fé­lags­miðlum. Akureyri.net greindi svo frá. Sigga Dögg sagð­ist hrygg yfir því ein­hver hafi upp­lifað þetta með þeim hætti sem …

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TF
    Tryggvi Felixson skrifaði
    Sindri Geir prestur nálgast málið með kristilegu hugafari og yfirvegun. Væri betra fyrir samfélagið okkar að Sigmundur Davíð gerði það líka.
    4
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Ef Ingþór Örn vissi fyrirfram að Sigga Dögg væri með fyrirlestur um kynlíf, og að hann vildi ekki að dóttin fengi að hlusta á kynfræðslu í kirkju þá var honum í lóga lægið bara að vera heima með stúlkuna! Aðal spurningin er, hélt Ingþór að Sigga Dögg myndi tala um býfluguna og blómið, og að storkurinn komi með börnin?
    Hvað viðkemur innlegi Sigmundar Daviðs þá er þessi færsla bara til að hella olíu á eldinn, og til eigin upphefðar.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár