Eyþór hagnast af eignum

Eigna­safn Eyþórs Arnalds gefur af sér þrátt fyrir erf­ið­leika.

Eyþór hagnast af eignum
Eyþór Arnalds Athafna- og sjálf­stæð­is­mað­ur­inn hefur tekið þátt í mörgum frum­kvöðla­verk­efnum og notið aðstoðar lyki­l­eig­anda Samherja. Mynd: Bára Huld Beck

Tón­list­ar­mað­ur­inn, athafna­mað­ur­inn og fyrr­ver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, Eyþór Arnalds, hagn­að­ist um 82 millj­ónir króna í gegnum einka­hluta­fé­lag sitt Ramses, í fyrra. Hagn­að­ur­inn sprettur ein­göngu af hlut­deild í afkomu dótt­ur­fé­laga.

Ramses ehf. skuldar tengdum aðila 148 millj­ónir króna og sömu­leiðis á félagið kröfu á tengdan aðila upp á 121 milljón. Félagið skuldar í heild 242 millj­ónir króna en eigið fé er 398 millj­ónir.

Eignir í mörgum félögum

Lyki­l­eign félags Eyþórs er Alur Álvinnsla ehf. í Hafn­ar­firði sem hagn­að­ist um 122 millj­ónir króna 2023 en hefur ekki skilað árs­reikn­ingi síð­asta árs.

Félag Eyþórs á sömu­leiðis fjórð­ung í Stakk Energy ehf, nýstofn­uðu félagi, á móti við­skipta­fé­laga sínum og fyrr­ver­andi tengda­föður, Herði Jónssyni, og tveimur ung­mennum, Sölva Guð­munds­syni og Leifi Steini Gunn­ars­syni, í gegnum félagið Storm Datacenters.

Þá er félagið með 13,5% eign­ar­hlut í Strokki Sílíkon ehf, sem kom meðal ann­ars að kís­il­málm­verk­smiðju Thorsil …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Eyjólfsson skrifaði
    Ég samgleðst honum, gott að geta grillað á kvöldin eftir góðan bissnessdag.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár