Eyþór tengdur einum stærsta hagsmunaaðilanum í byggingarframkvæmdum í Reykjavík

Fóst­ur­faðir eig­in­konu Eyþórs Arnalds, og við­skipta­fé­lagi hans til margra ára, er vara­maður í stjórn eins stærsta verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins í Reykja­vík, Þingvangs. Þingvangur byggir hund­ruð íbúða víða um Reykja­vík og eitt stærsta nýja hverfi borg­ar­innar í Laug­ar­nes­inu. Maðurinn heitir Hörður Jónsson og sonur hans, Pálmar Harð­ar­son, er eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Þingvangs.

Eyþór Arnalds, borg­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, er nátengdur einu stærsta verk­taka­fyr­ir­tæki Reykja­víkur, sem stendur að bygg­ingu fjölda fast­eigna um alla borg. Verk­taka­fyr­ir­tækið heitir Þingvangur. 

Ef Eyþór verður borg­ar­full­trúi eða borg­ar­stjóri í Reykja­vík mun hann þurfa að taka ákvarð­anir, beint eða óbeint, sem snú­ast um eða snerta hags­muni þessa stóra verk­taka­fyr­ir­tækis, nema þá að hann segi sig frá allri slíkri aðkomu vegna van­hæfis.  

Viðskiptafélagi og tengdafaðir Eyþórs

Einm helsti við­skipta­fé­lagi Eyþórs, Hörður Jónsson, er vara­maður í stjórn Þingvangs og faðir eig­anda og fram­kvæmda­stjóra verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins. Hörður er jafn­framt fóst­ur­faðir eig­in­konu Eyþórs.

Hörður er húsa­smíða­meist­ari og hafa þeir Eyþór unnið saman í við­skiptum um ára­bil, meðal ann­ars í fyr­ir­tækj­unum Strokki Energy, Krossa­nes­eignum - eign­ar­halds­fé­lagi utan um fast­eign álþynnu­verk­smiðju á Akureyri, Haga­vatns­virkjun og Íslenskri vatns­orku. Hörður er auk þess vara­maður í stjórnum tveggja eign­ar­halds­fé­laga sem eiga Þingvang, Eigna­sam­steyp­unni og Íslands­bersa.

Hörður Jónsson er faðir eig­anda …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Var and­vígur frek­ari upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis fyrir kosn­ingar en gagn­rýnir nú meiri­hlut­ann fyrir að hunsa vand­ann

Eyþór Arnalds lýsti sig ger­sam­lega mót­fall­inn auk­inni áherslu á upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis í Reykja­vík í kosn­inga­prófi RÚV í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Nú leggur hann fram bók­anir þar sem meiri­hlut­inn er gagn­rýndur fyrir að „hunsa mála­flokk­inn“.
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár