Hvað vakir fyrir Hegseth? „Foringjaeiður“ í uppsiglingu vestanhafs?

Stríðs­ráð­herra Banda­ríkj­anna hefur boðað stóran hóp æðstu her­for­ingja lands­ins á mjög óvenju­legan fund. Hér segir frá fundi verð­andi for­ingja Þýska­lands og stríðs­ráð­herra síns snemma í ágúst 1934.

Hvað vakir fyrir Hegseth? „Foringjaeiður“ í uppsiglingu vestanhafs?
Hermenn sverja eið­inn í ágúst 1934.

Hegseth stríðs­ráð­herra Banda­ríkj­anna hefur boðað alla æðstu her­for­ingja banda­ríska hers­ins – allra deilda hans — til fundar í næstu viku. Fund­ur­inn á sér ekki for­dæmi og sumir þeir sem tor­tryggnir eru í garð Trump-stjórn­ar­innar ótt­ast að þar verði gerð til­raun til að knýja í gegn ein­hvers konar stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu og jafn­vel eið her­for­ingj­anna við Donald Trump per­sónu­lega.

Og þá er gjarnan vísað til þess þegar þýskir her­menn voru látnir sverja Adolf Hitler per­sónu­legan holl­ustu­eið aðeins ári eftir að hann hafði náð völdum í Þýska­landi.

Þingið tekið úr sambandi

Hitler varð kansl­ari Þýska­lands – Reichskanzler – eða for­sæt­is­ráð­herra í lok jan­úar 1933. Hann stýrði þá sam­steypu­stjórn nas­ista­flokks­ins, Þýska þjóð­ern­is­flokks­ins og nokk­urra íhalds­manna á þingi. Einn þeirra var Franz von Papen fyrr­ver­andi kansl­ari sem sann­færði hinn aldr­aða for­seta, Paul von Hinden­burg, um að gera Hitler að kansl­ara því Papen var sann­færður um að hann gæti haft stjórn á nas­ista­flokknum.

Það fór á annan veg því Hitler gekk strax til þess verks að tryggja sér og flokki sínum öll völd í rík­inu og það reynd­ist því miður fárán­lega auð­velt.

Eftir aðeins örfáa mán­uði höfðu nas­istar tekið þingið úr sam­bandi, sett íhalds­öflin til hliðar og hand­tekið bæði jafn­að­ar­menn og komm­ún­ista. Næstu mán­uði fóru þeir svo að herða tökin á sam­fé­lag­inu æ fastar og brjóta undir sig sífellt fleiri stofn­anir.

Gremja í garð stormsveitanna

Þegar kom fram á sum­arið 1934 var einkum tvennt á döf­inni hjá Hitler.

Í fyrsta lagi voru SA-sveit­irnar orðnar til vand­ræða. Þær höfðu verið afar fyr­ir­ferð­ar­miklar síð­asta ára­tug­inn og flestir litu á SA-menn­ina sem hold­gerv­inga stefnu nas­ista.

Þegar þarna var komið sögu var raunin hins vegar nokkuð önnur.

Hitler mun hafa orðið „snort­inn“ þegar hann heyrði upp­á­stungu Blombergs um hinn per­sónu­lega eið her­manna.Hann hefur senni­lega oft varla trúað því sjálfur hve auð­velt var fyrir hann að beygja stofn­anir rík­is­ins undir vilja hans.

Innan SA voru ýmis öfl sem voru ekk­ert endi­lega ánægð með fram­gang mála síðan nas­istar tóku völdin. Ástæður þess voru ýmsar og flóknar og best að láta þær að mestu liggja milli hluta.

En meðal þeirra helstu var að sumir gamlir vopna­bræður Hitlers, ekki síst Ernst Röhm yfir­for­ingi SA, vildu mun rót­tæk­ari umbylt­ingu sam­fé­lags­ins nú þegar flokk­ur­inn hafði náð völdum heldur en Hitler sá ástæðu til að standa fyrir.

Nótt hinna löngu hnífa

Í öðru lagi leit þýski her­inn enn svo á að honum bæri að vera algjör­lega hlut­laus í póli­tískum deilum. Hermenn sóru eið að þýsku stjórn­ar­skránni og flestir yfir­for­ingjar hers­ins tóku þann eið hátíð­lega og höfðu gætt sín á því að skipa sér hvergi í lið í svipt­ingum síð­ustu ára — þótt vissu­lega færi ekki milli mála að þeir voru upp til hópa stækir íhalds­menn og afar litlir lýð­ræð­is­sinnar.

Ernst Röhm.Her­for­ingjar þýska hers­ins vildu allt til vinna að losna við hann.

Mesta áhuga­mál her­for­ingj­anna var raunar að stemma stigu við upp­gangi SA-sveit­anna.

Röhm og hans menn vildu að Hitler styrkti SA á kostnað hers­ins og að stormsveit­irnar tækju í raun yfir hlut­verk þýska hers­ins fyrr en síðar.

Um mán­aða­mótin júní-júní 1934 lét Hitler skyndi­lega og óvænt til skarar skríða gegn þeim sem hann leit á sem and­stæð­inga sína innan nas­ista­hreyf­ing­ar­innar og SA. Nálægt 150 manns voru drepnir á „nótt hinna löngu hnífa“ og var Röhm þar á meðal.

Augljóst var með þessu að Hitler hafði gefið SA-sveit­irnar upp á bát­inn við mikla ánægju hers­ins.

Stígið í vænginn við herforingjana

Enda hafði hinn nýi kansl­ari gert í því að stíga í væng­inn við her­for­ingj­ana, auk þess sem hann hafði þegar haf­ist handa um að stækka og efla her­inn með mjög auk­inni víg­væð­ingu.

Sem hljóm­aði nátt­úr­lega eins og ljúf músík í eyrum her­for­ingj­anna.

Eða öllu heldur eins og hressi­legt prúss­neskt her­göngu­lag.

Hinden­burg og Hitler.Per­sónu­lega fyr­ir­leit gamli hers­höfð­ing­inn Hitler. En hann steig aldrei raun­veru­leg skref til að kveða hann í kút­inn. Og loks var það of seint.

Svo gerð­ist það í lok júlí að Hinden­burg for­seti lagð­ist bana­leg­una.

Hitler og félagar gripu þá gæs feg­ins hendi og þann 1. ágúst til­kynnti Hitler yfir­manni hers­ins og stríðs­ráð­herra sínum Werner von Blomberg að hann hefði ákveðið að við lát Hinden­bergs yrði ekki efnt til for­seta­kosn­inga svo sem lög gerðu ráð fyrir.

Þess í stað yrðu sett ný lög um að emb­ætti for­seta og kansl­ara skyldu sam­einuð í eitt og hann tæki sjálfur við hinu nýja starfi.

Til að rjúfa end­an­lega tengslin við hina lýð­ræð­is­legu stjórn­ar­skrá Weimar-lýð­veld­is­ins var emb­ætt­is­heitið „for­seti“ lagt niður og hið nýja starf Hitlers kallað „Führer und Reichskanzler“ – for­ingi og rík­is­kansl­ari.

Því var Hitler upp frá þessu kall­aður for­ingi Þýska­lands.

Það var ein­fald­lega emb­ætt­is­heiti hans.

Frumkvæði Blombergs

Blomberg gerði engar athuga­semdir við þetta. Hann var ekki nas­isti að hug­mynda­fræði heldur fyrst og fremst íhalds­samur her­for­ingi á prúss­neska vísu og trúði á aga, þjóð­ern­is­belg­ing og skipu­lag.

Nú þegar Hitler hafði gert hernum þann greiða að kveða SA-sveit­irnar í kút­inn og yrði nú sem for­ingi æðsti yfir­maður hers­ins (líkt og Hinden­burg for­seti hafði verið) þá vildi Blomberg binda trúnað Hitlers við her­inn enn fastar en áður. 

Hann stakk því upp á að nafn Hitlers sem for­ingja yrði tekið upp í þann eið sem her­menn sóru. Eftir því sem best er vitað vissi Hitler ekki um það fyr­ir­fram að Blomberg ætl­aði að stinga upp á þessu en hann var fljótur að sam­þykkja það.

Raunar sagði hann Blomberg að slíkur per­sónu­legur eiður væri frá­bær leið fyrir her­inn til að „sýna þakk­læti sitt“.

Því það á Hitler sam­eig­in­legt með mörgum stjórn­lynd­is­of­stopa­mönnum, bæði fyrr og síðar, að honum fannst að allir ættu ævin­lega og alltaf að vera sér „þakk­látir“. 

Dauði Hindenburgs

Daginn eftir dó Hinden­berg og allt gekk fram sem nas­istar ósk­uðu. 

Hitler tók nú við sem for­ingi og upp frá þessu sóru her­menn honum per­sónu­legan trún­að­areið.

Það var reyndar í annað sinn sem eiðnum hafði verið breytt síðan nas­istar komust til valda.

Upp­haf­legur eiður frá stofnun Weimar-lýð­veld­is­ins var svona:

„Ich schwöre Treue der Reichsverfassung und gelobe, daß ich als tap­ferer Soldat das Deutsche Reich und seine gesetzmäßigen Einrichtungen jederzeit schützen, dem Reichspräsidenten und meinen Vorgesetzten Gehorsam leisten will.“

Þetta þýddi:

„Ég sver að vera tryggur stjórn­ar­skrá rík­is­ins og sem hug­rakkur her­maður mun ég ætíð leit­ast við að verja þýska ríkið og lög­legar stofn­anir þess og vera trúr rík­is­for­set­anum og yfir­mönnum mínum.“

„Þjóð og föðurland“

Í des­em­ber 1933 hafði þessum eiði verið breytt enda löngu orðið ljóst sú stjórn­ar­skrá sem eið­ur­inn átti við var að engu höfð í hinu nýja Þýska­landi nas­ism­ans. Frá des­em­ber 1933 til ágúst 1934 fóru þýskir her­menn því með þessa þulu þegar þeir voru form­lega skráðir í her­inn:

„Ich schwöre bei Gott diesen heiligen Eid, daß ich meinem Volk und Vater­land allzeit treu und redlich dienen und als tap­ferer und gehor­samer Soldat ber­eit sein will, jederzeit für diesen Eid mein Leben einzusetzen.“

Þetta þýddi svo mikið sem:

„Ég sver við guðs nafn þann helga eið að ég mun ævin­lega af tryggð og sann­fær­ingu þjóna þjóð minni og föð­ur­landi og vera sem hug­rakkur og hlýð­inn her­maður hvenær sem er til­bú­inn til að hætta lífi mínu fyrir þennan eið.“

Margir þóttust vera veikir

En í ágúst 1934 varð eið­ur­inn sem sagt svona vegna „þakk­lætis“ Blombergs:

„Ich schwöre bei Gott diesem Führer des Deutschen Reiches und Volkes Adolf Hitler Treue und Tap­ferk­eit. Ich gelobe, dem Führer Adolf Hitler unbed­ing­ten Gehorsam zu leisten und als tap­ferer Soldat ber­eit zu sein, für diesen Eid mein Leben einzusetzen. So wahr mir Gott helfe.“

Blomberg við­ur­kenndi nokkrum árum síðar að hug­mynd­ina um að láta her­menn sverja Hitler per­sónu­legan eið hefði hann „ekki hugsað til enda“.Upp­á­stunga hans um eið­inn dugði honum lítt per­sónu­lega. Árið 1938 vildi Hitler fá enn trygg­ari stríðs­ráð­herra og yfir­mann hers­ins til að hjálpa sér að heyja það stríð sem hann hafði þá ákveðið. Þá neyddi hann Blomberg til að segja af sér og var það til­efni notað að Blomberg hafði nýlega kvænst ungri konu sem þótti eiga sér full létt­úð­uga for­tíð.

Og þetta þýðir:

„Ég sver að vera for­ingja hins þýska ríkis og þjóðar Adolf Hitler tryggur og hraustur her­maður. Ég heiti því að hlýða for­ingj­anum Adolf Hitler skil­yrð­is­laust og vera sem hug­rakkur her­maður til­bú­inn að fórna lífi mínu fyrir þennan eið. Svo hjálpi mér Guð.“

Mörg þús­und her­menn í þýska hernum þótt­ust vera veikir þegar boðað var til þess nokkrum dögum eftir valda­töku Hitlers sem for­ingja að allir skyldu sverja form­lega hinn nýja eið.

En her­inn gekk raunar mjög fast eftir því að þegar menn sneru til baka eftir „veik­indin“ þá færu þeir með svar­dag­ann, hvað sem taut­aði og raulaði.

Og var þetta kallað „for­ingja­eið­ur­inn“ upp frá því. 

Þægur seppi

Í mars árið eftir var svo skipu­lagi þýska hers­ins breytt og tekin af öll tví­mæli um að Adolf Hitler væri per­sónu­legur yfir­maður hans.

Þá var eiðnum enn breytt og hljóð­aði eftir það svo:

„Ég sver við guð þann heilaga eið að ég muni sýna for­ingja þýska rík­is­ins og þjóð­ar­innar, Adolf Hitler, æðsta yfir­manni hers­ins, skil­yrð­is­lausa hlýðni og að ég muni, sem hug­rakkur her­maður, ávallt vera reiðu­bú­inn að fórna lífi mínu fyrir þennan eið.“

Mjög svip­aður eiður var svo tek­inn upp hjá hinu opin­bera í Þýska­landi. Þar urðu eft­ir­leiðis allir emb­ætt­is­menn að sverja Hitler per­sónu­legan trún­að­areið.

Blomberg hers­höfð­ingi var ekki mjög vel gef­inn maður. Hann var að minnsta kosti mjög glám­skyggn þegar hann ímynd­aði sér að hinn per­sónu­legi eiður her­manna við nafn Hitlers myndi hnýta for­ingj­ann við her­inn.

Þvert á móti varð þetta – eins og aug­ljóst átti að vera frá upp­hafi – til þess að þýski her­inn var upp frá þessu þægur seppi for­ingj­ans.

Og fram­kvæmdi öll þau óhæfu­verk sem Hitler átti eftir að skipa honum að gera.

 

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár