Nemandi sem notar ChatGPT í ritgerðir: „Kennarinn tók mig eftir tímann“

Við­mæl­andi Heim­ild­ar­innar seg­ist nota gervi­greind til að skrifa fjölda verk­efna í fram­halds­skóla og und­ir­búa svörin sín fyrir munn­leg próf. Aðjunkt við Háskóla Íslands segir að finna þurfi leiðir til að nýta tækn­ina í skólum.

Nemandi sem notar ChatGPT í ritgerðir: „Kennarinn tók mig eftir tímann“
Nemendur Ónefndur fram­halds­skóla­nemi seg­ist nota gervi­greind til að vinna verk­efni fyrir sig þegar hann er þreyttur. Mynd: Shutterstock

Þekkt er orðið að nem­endur séu farnir að nota spuna­greind eins og ChatGPT til að leysa fyrir sig skóla­verk­efni. The New York Times greindi nýlega frá því að kenn­arar vest­an­hafs séu einnig farnir að nota gervi­greind­ina til að fara yfir verk­efnin. Þetta hefur vakið spurn­ingar í skólum um hvort nokkur sé að læra eða kenna lengur.

Heim­ildin ræddi við nem­anda á þriðja ári í fram­halds­skóla sem seg­ist nota ChatGPT mikið við að leysa verk­efni í skól­anum. Eðli máls­ins sam­kvæmt vildi hann ekki koma fram undir nafni þar sem þessi játn­ing gæti komið honum í klandur í skól­anum.

„Ég stimpla lýs­ing­una á verk­efn­inu inn og bið um eitt­hvað auka til að gera þetta aðeins mann­legra,“ segir nem­and­inn. „Ég læt hana skrifa þetta á ensku og þýða á íslensku sem ég laga sjálfur.“

Aðspurður hvort hann hafi ein­hvern tím­ann lent í vand­ræðum út af þessu segir nem­and­inn að það …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár