Sigurður Ingi: Fjárlagafrumvarpið „engin sleggja“

Sigurður Ingi Jóhanns­son þing­maður og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins segir að nýtt fjár­laga­frum­varp sé „engin sleggja til að slá niður verð­bólgu og vexti.“ Hann telur útgjöld til heil­brigð­is­mála van­á­ætluð og hefur áhyggjur af tekju­lægri hópum sam­fé­lags­ins.

Sigurður Ingi: Fjárlagafrumvarpið „engin sleggja“
Sigurður Ingi Telur bjart­sýnt að ná rík­is­hall­anum niður í fimmtán millj­arða á næsta ári. Mynd: Golli

„Fyrstu við­brögðin voru þau að það voru engin stór­tíð­indi í fyrsta fjár­laga­frum­varpi,“ segir Sigurður Ingi Jóhanns­son þing­maður og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins um nýtt fjár­laga­frum­varp sem kynnt var í morgun. Hann bætir því við að það sé: „Engin sleggja til að slá niður verð­bólgu og vexti.“ Blaða­maður spyr þá hvort hann telji frum­varpið til þess fallið að draga úr verð­bólgu. Hann svarar: „Hægt og rólega.“

Aðspurður hvort honum þyki raun­hæft að minnka halla rík­is­sjóðs niður í fimmtán millj­ónir á næsta ári segir Sigurður Ingi: „Þetta er bjart­sýn spá. Þau byggja á því að hag­vöxtur haldi áfram að vera hér öfl­ugur og öfl­ugri en til að mynda í Evrópu.“ Slíkt sé bjart­sýnt „miðað við það að þá þyrfti rík­is­stjórnin líka að vera með ein­hverja hvata til verð­mæta­sköp­unar í land­inu öllu – sem ég hef haft áhyggjur af að þau sé ekki að leggja næga áherslu á,“ segir hann.

Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra kynnti fyrr í dag fjár­laga­frum­varp árs­ins 2026. Þar er gert ráð fyrir því að dregið verði úr halla­rekstri rík­i­s­jóðs. Áætlað er að hann verði 15 millj­arðar á næsta ári en í fyrra var hall­inn 62 millj­arðar. Mark­miðið er að árið 2027 verði rík­is­rekstur halla­laus. 

Vanáætluð útgjöld til heilbrigðismála

Sigurður Ingi seg­ist hafa áhyggjur af því að útgjöld til heil­brigð­is­mála séu van­á­ætluð. „Ég hef trú á því að heil­brigð­is­málin munu taka meira til sín og ég er að tala af reynslu síð­ustu ára. Það kallar ávallt á aukið fjár­magn hvort sem það er stig­hækk­andi kostn­aður við lyf eða nýja tækni,“ útskýrir hann. Því þurfi að áætla mun meira en frum­varpið geri ráð fyrir. „Talsvert meira en þau eru að leggja hér til. Þannig ég held að hér sé áskorun fyrir kerfið,“ segir hann.

Þá segir Sigurður Ingi Framsókn einnig hafa áhyggjur af tekju­lægri hópum sam­fé­lags­ins. „Við höfum áhyggjur af því að það verði sífellt erf­ið­ara hjá þeim, ekki síst ungu fólki með börn. Samkvæmt þessu eru ekki neinar áætl­unar um að hækka barna­bætur eða annað slíkt fyrir þann hóp,“ útskýrir hann.

Má jafna lífeyri 

„Svo höfum við séð að eftir kerf­is­breyt­ingu á örorku­kerf­inu, þá er grunnör­orku­líf­eyrir orðin fimm­tíu þús­und krónum hærri en elli­líf­eyr­is­þega,“ segir hann og bætir við: „Ég átti von á því að það yrðu plön um að jafna það.“ 

Hann gagn­rýnir einnig að ekki hafi verið sér­stök útgjöld til hús­næð­is­mála. „Hvorki til þess að auka stofn­fram­lög eða hlut­deild­ar­lán eða jafn­vel hús­næð­is­bætur,“ segir hann.  

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Sjávar­útvegs- og landbúnaðarráðherra 2013–2016. Umhverfis- og auðlindaráðherra 2013–2014. Forsætisráðherra 2016–2017. Samgöngu- og sveitarstjórnar­ráðherra og ­ráðherra nor­rænna sam­starfs­mála 2017–2021. Innviðaráðherra 2021–2024. Fjármála- og efnahagsráðherra 2024.

    Þarf að segja meira um hræsni ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár