Lofar stöðugleika til að ná niður 125 milljarða vaxtabyrði

Rík­is­stjórnin ætlar að ná halla­lausum rekstri strax árið 2027 en halli næsta árs verður 15 millj­arðar, sam­kvæmt nýkynntu fjár­laga­frum­varpi. Það er um 11 millj­örðum minni halli en gert hafði verið ráð fyrir. Vaxta­gjöld rík­is­sjóðs nema nú 125 millj­örðum króna á ári, sem jafn­gildir um 314 þús­und krónum á hvern íbúa – hærri fjár­hæð en rekstur allra fram­halds­skóla og háskóla lands­ins.

Aðhald í útgjöldum ein­kennir fjár­laga­frum­varp árs­ins 2026 sem Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra kynnti í morgun. Frum­varp­inu er ætlað að vera stórt skref í átt að halla­lausum rík­is­rekstri og á það mark­mið að nást strax árið 2027.

Segja má að til mik­ils sé að vinna því vaxta­gjöld rík­is­ins, sem hafa hækkað eftir mörg ár af halla­rekstri, nema 125 millj­örðum króna. Það jafn­gildir um 314 þús­und krónum á hvern íbúa – sem er meira en allur árlegur rekstur fram­halds­skóla og háskóla á land­inu.

Þrátt fyrir aðhald eru þó áætl­aðar fjár­veit­ingar til nokk­urra for­gangs­verk­efna. Þannig verða 3 millj­arðar settir í upp­bygg­ingu Sjúkra­húss­ins á Akureyri, yfir 100 ný hjúkr­un­ar­rými reist víðs vegar um landið og örygg­is­deildin á Kleppi stækkuð um helm­ing. Þá verður fjölgað með­ferð­ar­úr­ræðum vegna fíkni­vanda, geð­þjón­usta barna og aldr­aðra efld og fimm­tíu nýjum störfum bætt við lög­regl­una. Land­helg­is­gæsla, fang­els­is­mál og snjó­flóða­varnir fá einnig aukið fjár­magn.

„Rík­is­stjórnin mun ekki eyða …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár