Fjárlagafrumvarp í hnotskurn: Bein áhrif á heimili 18 milljarðar

Raf­orku­verð mun hækka þvert á öll heim­ili sam­kvæmt nýju fjár­mála­frum­varpi. Heimili lands­ins axla 64 pró­sent byrð­anna af breyt­ingum á sköttum og gjöldum gangi frum­varpið eftir.

Fjárlagafrumvarp í hnotskurn: Bein áhrif á heimili 18 milljarðar
Daði Már Kristór­fers­son Fjár­mála­ráð­herra kynnti nýtt fjár­laga­frum­varp í morgun. Mynd: Golli

Sam­an­lagt mun skattur, gjöld og afnám heim­ilda gera það að verkum að byrðar á heim­ili og fyr­ir­tæki hækka um 28 millj­arða verði nýtt fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar sam­þykkt á kom­andi þing­vetri. Þar af munu heim­ili lands­ins taka á sig 64 pró­sent byrð­anna sem telja beint 18,3 millj­arða en breyt­ingar á sköttum á lög­að­ila verða 9,7 millj­arðar.

Helstu breyt­ing­arnar fyrir heim­ili eru áætl­anir um að afnema heim­ild hjóna og sam­býl­is­fólk til að samnýta skatt­þrep. Tekju­á­hrifin af þess­ari breyt­ingu er metin á um 4 millj­arða króna sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu. 

Þá verður felld á brott heim­ild til þess að nýta ónýttan per­sónu­af­slátt til greiðslu fjár­magnstekju­skatts. Með þess­ari aðgerð spar­ast einn og hálfur millj­arður. Þetta þýðir í reynd að ein­stak­lingar sem áður gátu lækkað eða núll­stillt fjár­magnstekju­skatt með ónýttum per­sónu­af­slætti munu ekki lengur hafa þá leið, og ríkið inn­heimtir því meira af fjár­magnstekju­skatti. 

Ein stærsta breyt­ingin fyrir flest heim­ili lands­ins eru gjöld á öku­tæki …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Það gengur ekki að reka ríkissjóð með tapi. Því líst mér vel á þetta. Ég hefði viljað að gengi væri lengra í að ná niður skuldum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár