Óttast að Coda Terminal ógni umhverfisvænni ásýnd Ölfuss

Vatns­fyr­ir­tæki í Ölfus hefur áhyggjur af ímynd Ölfuss verði Coda Terminal-verk­efni Carbfix sam­þykkt og komið á lagg­irnar.

Óttast að Coda Terminal ógni umhverfisvænni ásýnd Ölfuss
Þor­láks­höfn Carbfix freistar nú að fá sam­þykki fyrri Coda Terminal í Þor­láks­höfn. Mynd: Golli

Átöpp­un­ar­fyr­ir­tækið Icelandic Glacial lýsir yfir áhyggjum af orð­spors­á­hættu Ölfuss ákveði það að heim­ila upp­bygg­ingu Coda Terminal verk­efnis Carbfix, og segir áætl­anir mögu­lega setja umhverf­is­væna ásýnd sveit­ar­fé­lags­ins í upp­nám.

Þetta kemur fram í umsögn fyr­ir­tæk­is­ins sem birt­ist ásamt fjölda ann­arra umsagna á vef Skipu­lags­stofn­unnar. Þar lýsa margir íbúar yfir áhyggjum með fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu. Veð­ur­stofan setur spurn­inga­merki við mikla vatns­notkun á svæði þar sem þegar mikil vatns­taka fer fram og munar um áætl­anir Coda Terminal, verði af þeim. 

Ógnar ímyndinni

Vatns­fyr­ir­tækið Icelandic Glacial hefur verið með starf­semi í Ölfuss í ára­tugi og segir í umsögn fyr­ir­tæk­is­ins, sem er rituð á ensku, að nið­ur­dæl­ing af þeirri stærð­argráðu sem Carbfix stefnir á, geti ógnað ímynd svæð­is­ins, sem grænt og umhverf­is­vænt sveit­ar­fé­lag. Það eigi einnig við um umhverf­is­væna fram­leiðslu á mat­vælum. Átöpp­un­ar­fyr­ir­tækið gerir athuga­semd við það að orð­spors­á­hættan ógni til­vist fyr­ir­tækja sem hafa verið fyrir á fleti í ára­tugi og völdu sveit­ar­fé­lagið …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hallfríður Erla Gudjonsdottir skrifaði
    Hvar eru raunsannar tölur um hvort þessi niðurdælingafyrirtæki eru raunverulega að fanga nóg miðað við orku -og vatnsnotkun. Af hverju er svona mikið tap hjá Carbfix?
    0
  • BRE
    Bjarni Rúnar Einarsson skrifaði
    Semsagt... fyrirtæki sem nýtir sér orðspor Ölfus, til þess að selja algjörlega óþarfan mengunarvald (plastflöskur sem innihald vökva og flutt er um allan heim með því að brenna jarðefnaeldsneyti), hefur áhyggjur af því að fyrirtæki sem raunverulega ætlar að vinna að umhverfismálum heimsins ógni orðstírnum sem þeir eru að misnota?

    Áhugavert!
    0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Ef uppruni straumsins sem á að dæla niður er frá efna og olíuiðnaði, ætla þau þá að ábyrgjast að engum öðrum efnum en koldíoxíði (umbreyttu í karbónat) verði dælt niður?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár