Rússar segjast hafa náð þremur þorpum í Úkraínu

Á meðan for­seti Banda­ríkj­anna fer á fund Pútín með það að marki að stilla til friðar halda árásir Rússa á Úkraínu áfram. Nú kveðst rúss­neski her­inn hafa náð þremur þorpum í Úkraínu, meðal ann­ars á svæði þar sem átök höfðu ekki farið fram.

Rússar segjast hafa náð þremur þorpum í Úkraínu
Á fund Pútín Forseti Banda­ríkj­anna lauk útlegð Pútín með því að mæta honum í Alaska, klappa fyrir honum og bjóða honum far með for­seta­bílnum. Forseti Úkraínu var ekki við­staddur fund­inn en honum var síðan boðið í Hvíta húsið. Á þann fund mættu með honum leið­togar Evr­ópu­ríkja. Mynd: AFP

Rúss­neski her­inn seg­ist hafa lagt undir sig þrjú þorp í aust­ur­hluta Úkraínu og boðar nýja land­vinn­inga á sama tíma og Banda­ríkin sýna diplómat­íska við­leitni til að binda enda á átökin.

Í til­kynn­ingu frá varn­ar­mála­ráðu­neyti Rúss­lands á Telegram kemur fram að her­menn hefðu „haldið áfram að sækja langt inn fyrir varn­ar­línur óvin­ar­ins“ í hinu stríðs­hrjáða Donetsk-hér­aði og náð þorp­unum Suk­het­ske og Pankivka.

Þorpin eru nálægt víg­lín­unni þar sem rúss­neski her­inn braust í gegnum varnir Úkraínu í síð­ustu viku, á milli mik­il­vægra sam­göngu­mið­stöðva í Pokrovsk og Kost­i­antyni­vka.

Í mið-aust­ur­hluta Dnipropetr­ovsk-hér­aðs­ins, sem hingað til hefur verið hlíft við átökum, greindi rúss­neski her­inn frá því að hann hefði náð þorp­inu Novoge­orgii­vka. Rúss­neskir her­menn fóru fyrst inn í hér­aðið í júlí.

Þessar árásir eru gerðar á sama tíma og Banda­ríkin og evr­ópskir leið­togar hafa lagt mikið undir til að ná frið­ar­samn­ingum, sem gætu bundið endi á inn­rás­ina.

Donald …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár