Samþykkja áætlun Netanyahu um að „taka yfir“ Gaza

Ísra­els­her mun „taka yfir stjórn“ í Gaza-borg sam­kvæmt áætlun sem Benjamin Net­anyahu lagði fram og örygg­is­ráðið sam­þykkti í nótt. Mann­rétt­inda­full­trúi Sam­ein­uðu þjóð­anna, Volker Turk, segir að áætl­un­ina verði að „stöðva taf­ar­laust“.

Samþykkja áætlun Netanyahu um að „taka yfir“ Gaza

Ísra­els­her mun „taka yfir stjórn“ í Gaza-borg sam­kvæmt áætlun sem for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, Benjamin Net­anyahu, lagði fram. Örygg­is­ráðið sam­þykkti í nótt inn­limun Gaza og her­inn býr sig undir að ná fullum yfir­ráðum yfir Gaza-borg. Talið er að það gæti tekið nokkra mán­uði fyrir Ísrael að ná fullri stjórn á svæð­inu. 

Nú eru næstum tvö ár liðin frá því að stríðið hófst í Gaza. Net­anyahu stendur frammi fyrir vax­andi þrýst­ingi bæði heima fyrir og erlendis um vopna­hlé, til að bjarga meira en tveimur millj­ónum íbúa svæð­is­ins frá hung­ursneyð og frelsa gísla sem palest­ínskir víga­menn halda. Samkvæmt áætlun Ísraels um að „sigra“ Hamas í Gazaströndinni mun her­inn „und­ir­búa aðgerðir til að taka stjórn á Gaza-borg og dreifa mann­úð­ar­að­stoð til almennra borg­ara utan átaka­svæða“, segir í yfir­lýs­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Áður en ákvörð­unin var tekin sagði Net­anyahu að Ísrael hygð­ist taka fulla stjórn á Gaza, en hafi ekki í hyggju að stjórna svæð­inu …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Ísraelsmenn eru nasistar okkar tíma með stuðningi annarra fasista.

    Ég er ekki að verja hernaðaraðgerðir Hamas.
    0
  • Það er villandi í greininni að tala um "öryggisráðið". Þetta orð með greini vísar að jafnaði til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. En hér er það hrá þýðing á nafni einhvers ísraelsks apparats.
    1
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Þetta er trúarbragðastríð.

    Gyðingar trúa því að guðinn hafi gefið meintum forföður þeirra, Abraham, landið. Afkomendur hans voru reyndar aðeins stuttan tíma í Ísrael, ca 3 kynslóðir áður en þeir fluttust til Egyptalands og gerðust síðar þrælar Egypta, svo þeir hafa í mesta lagi búið á nokkrum hekturum í Ísrael.

    Löngu síðar, eftir að guðinn hafði drepið alla frumburði Egypta í einni af plágunum sem hann framkallaði, leyfði Faraó, forystumaður Egypta, gyðingunum að fara til baka, en sá svo eftir því og var her Egypta drekkt í hafinu af guðinum sem hafði áður þurrkað einhverskonar götu í gegnum mitt hafið og látið það steypast yfir þá þegar þeir veittu gyðingunum eftirför. Þegar "heim" var komið gerðu gyðingarnir svo tilkall til landsins síns og fóru með hernaði gegn íbúum þess og kepptust við að uppræta þá sem tilheyrðu ekki söfnuðinum, kannski ekki alls ólíkt og í dag.

    Það er þó merkilegt að einu boðorðinu virðast Ísraelar gleyma, eða boðorðinu: Þú skalt ekki mann deyða - en það er kannski ekki skrítið því guðinn átti í mestu erfiðleikum með að fara eftir því sjálfur - samkvæmt biblíunni.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár