Líklega eitt geðrof á mánuði vegna óhefðbundinna sálfræðimeðferða

Pétur Maack, for­maður Sál­fræð­inga­fé­lags­ins segir geð­rof alvar­lega algengan fylgi­fisk óhefð­bund­inna sál­fræði­með­ferða þar sem fíkni­efni eru notuð undir „hand­leiðslu“, eins og það er orðað.

Líklega eitt geðrof á mánuði vegna óhefðbundinna sálfræðimeðferða
Pétur Mack Formaður Sál­fræð­inga­fé­lags­ins segir það ekki venju­bundið að sál­fræð­ingar gefi skjól­stæð­ingum sínum MDMA við áfalla­með­ferð.

„Eftir því sem ég kemst næstrer þetta algjör und­an­tekn­ing,“ segir Pétur Maack, for­maður Sál­fræð­inga­fé­lags­ins, um sál­fræð­ing sem var sviptur leyfi af Land­lækn­is­emb­ætt­inu eftir að hafa gefið skjól­stæð­ingi sínum og upp­lýs­inga­full­trú­anum, Hödd Vil­hjálms­dóttur, fíkni­efnið MDMA í með­ferð við áfallastreituröskun. Hödd end­aði á geð­deild eftir með­ferð­ina og lýsti þeirri reynslu á Facebook og í við­tali við Vísi í fram­hald­inu.

Málið rataði til siða­nefndar Sál­fræð­inga­fé­lags­ins fyrir nokkrum árum síðan sem ákvað að vísa því til land­læknis með þeim afleið­ingum að sál­fræð­ing­ur­inn var sviptur starfs­leyfi að lokum. Pétur segir það traust­vekj­andi að eft­ir­lits­kerfi Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins hafi virkað eins og skyldi, enda er fíkni­efna­tengd sál­fræði­með­ferð ekki við­ur­kennd hér á landi.

„Ég end­aði á geð­deild. Bless­un­ar­lega fór ég heim að morgni og allt í góðu. Þegar eitt­hvað verður smart … og já, ég er mjög frjáls­lynd … Þá þýðir það ekki endi­lega að það sé gáfu­legt,“ skrif­aði Hödd á Facebook-síðu sína um miðjan júlí­mánuð þar …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Því miður hættir mörgu fólki og jafnvel svokölluðum sérfræðingum með góðan vilja til að rugla saman hugtökum í umræðu um efni sem hafa áhrif á heilastarfsemina og láta jafnvel eins og öll slík efni séu ólögleg sem er alls ekki rétt. Hugtök á borð við fíkniefni, vímuefni, hugvíkkandi efni, eiturlyf o.s.frv. eru alls ekki jafngild og eiga ekki við um öll sömu efnin sem geta auk þess verið lögleg, ólögleg eða eitthvað þar á milli t.d. lyfseðilsskyld eða aðeins leyfileg til ákveðinna nota eins og rannsókna. Röng hugtakanotkun sem jafnvel byggist á fordómum stuðlar ekki að upplýstri umræðu og getur gert mikið ógagn t.d. stuðlað að jaðarsetningu.

    Fíknefni eru ávanabindandi eða hafa þau áhrif á sumt fólk að það verður háð notkun þeirra með misjafnlega slæmum afleiðingum. Sum fíkniefni eru vímuefni en alls ekki öll t.d. er koffein fíkniefni en ekki vímuefni. Sum vímuefni eru fíkniefni en alls ekki ölll t.d. eru mörg svokölluð hugvíkkandi eða ofskynjunarefni alls ekki fíkniefni. Svo er misjafnt hvort fíkniefni eru lögleg eins og koffín og nikótín eða ólögleg eins og heróín og allt þar á milli. Reyndar eru allflest og þar á meðal mörg algengustu fíkniefnin lögleg til sölu og notkunar samkvæmt lyfseðli.

    Vímuefni eru einfaldlega efni sem valda vímu. Sum þeirra eru fíkniefni en alls ekki öll, ágætt dæmi er LSD en það er útilokað að verða háður því. Sum vímuefni eru líka eiturlyf en alls ekki öll, til dæmis eru kannabisefni alls ekki eitruð og enginn skammtur af þeim er banvænn en þau geta vissulega verið ávanabindandi og langvarandi neysla þeirra haft neikvæð áhrif.

    Eiturlyf eru eins og nafnið gefur til kynna, efni sem eru eitruð eða valda eitrunaráhrifum. Sum þeirra eru eru líka vímuefni og/eða fíkniefni eins og heróín sem er bæði mjög ávanabindandi og getur verið banvænt í of stórum skömmtum. Svo eru líka til eiturlyf sem eru hvorki fíkniefni né vímuefni, til dæmis eru mörg krabbameinslyf beinlínis eitur en eru samt gefin sjúklingum í því skyni að drepa meinið og helst ekki sjúklinginn um leið. Svipað gildir um ýmis efni sem finnast því miður stundum í lyfjum sem eru framleidd og seld ólöglega, til dæmis geta röng vinnubrögð við framleiðslu sumra þeirra skilað af sér eitruðum afurðum. Þetta er mögulega ein mesta hættan við notkun ólöglegra efna sem eru sjaldan undir viðurkenndu gæðaeftirliti.

    Svo er eins og fyrr segir afar misjafnt hvort efni sem falla undir einhver af þessum hugtökum eru lögleg eða ólögleg eða hvort og hvernig gildandi reglur takmarka aðgengi að þeim. Eitt slíkt efni sem flestir þekkja er löglegt en fellur þó í alla hina flokkana og það er efnið sem ríkið selur, áfengi eða alkóhól sem algengasti fíknisjúkdómurinn alkóhólismi er kenndur við. Alkóhól er nefnilega allt í senn, vímuefni, fíkniefni og það eiturlyf sem veldur einna flestum dauðsföllum. Á kvarða yfir hversu hættuleg eða "slæm" svona efni eru komast fæst þeirra efna sem eru nefnd í fréttinni hér fyrir ofan með tærnar þar sem löglega efnið alkóhól hefur hælana í skaðsemi.

    Oft gætir líka misskilnings um lagalegar skilgreiningar. Nærtækt dæmi eru sveppir af tegundinni trjónupeðla sem inniheldur efnin psilocybin og baeocystin en þau geta valdið ofskynjunaráhrifum og eru meðal þeirra sem eru gjarnan kölluð hugvíkkandi. Þó að psilocybin sé á bannlista vaxa þessir sveppir villtir á Íslandi og náttúran er ekki ólögleg. Fólk sem tínir sveppi sér til yndisauka og neyslu á eigin áhættu er ekki glæpamenn. Þessir sveppir eru alls ekki baneitraðir þó vissulega geti neysla þeirra í of miklu magni valdið veikindum. Séu þeir týndir nálægt umferðargötum er reyndar mun líklegra að skaðast af mengunarefnum heldur en sveppunum sjálfum.

    Það er sjálfsagt og réttmætt að að vara við óabyrgri notkun efna sem geta verið skaðleg ef þau eru misnotuð en þá skiptir líka máli að fara rétt með hugtök og staðreyndir.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár