Ferðamenn hafi þrengt sér „inn í það allra helgasta“

Börn manns sem var jarð­aður frá Vík­ur­kirkju í júní segja að íslenskur rútu­bíl­stjóri hafi hleypt tugum ferða­manna út úr rútu við kirkj­una um klukku­stund fyrir athöfn. Ferða­menn hafi tekið myndir þegar kistan var borin inn fyrir athöfn, reynt að kom­ast inn í kirkj­una og togað í fán­ann sem var dreg­inn í hálfa stöng.

Ferðamenn hafi þrengt sér „inn í það allra helgasta“
Upplifðu van­mátt á við­kvæmri stundu Rútur Skær­ingur, Hrefna og Viktor Smári Sig­ur­jóns­börn segja ágang ferða­manna við Vík­ur­kirkju fyrir útför föður þeirra hafa reynt mjög á þau, bræður þeirra tvo, móður þeirra og aðra nána aðstand­endur. Mynd: Golli

Jarð­ar­för Sig­ur­jóns Rúts­sonar fór fram frá Vík­ur­kirkju laug­ar­dag­inn 7. júní, síð­ast­lið­inn. Sigurjón lést þann 20. maí eftir skamm­vinn veik­indi. Hann stóð á átt­ræðu.   

Á jarð­ar­far­ar­dag­inn þegar nán­asta fjöl­skylda Sig­ur­jóns var nýkomin að kirkj­unni rúmri klukku­stundu fyrir athöfn­ina blasti við þeim mik­ill fjöldi ferða­manna á bíla­stæð­inu. Þau segja að sumir þeirra hafi verið að taka myndir, meðal ann­ars upp við lík­bíl­inn. 

„Bíla­stæðið var fullt. Þar voru aðal­lega ferða­bílar eða hús­bílar, oft kall­aðir camperar, en það kom líka rúta og það voru ferða­menn úti um allt. Það var flaggað í hálfa stöng og lík­bíll­inn var fyrir utan kirkj­una en samt streymdi fólk út úr rút­unni, stillti sér upp við fán­ann og tók myndir. Þeim nægði ekki að stilla sér þarna upp í ýmiss konar stell­ingum heldur var þarna maður að toga í fán­ann sem dreg­inn var í hálfa stöng þegar okkur bar að. Þetta var veru­lega óþægi­legt á svona við­kvæmri …

Kjósa
81
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Kirkjur eiga ekki að vera til sýnis fyrir almenning eins og hvert annað safn. Þær eru helgur staður og eiga alltaf að vera það. Það sama á við um kirkjugarða. Leiði Bobby Fischer hefur löngum verið aðdráttarafl ferðamanna. Hann vildi ekki vera til sýnis meðan hann var og hét; það hefur ábyggilega ekki breyst.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár