Mikilvægt að fordæma menntamorð

Silja Bára R. Ómars­dóttir, nýr rektor Háskóla Íslands, segir mik­il­vægt að for­dæma mennta­morð. Það kom fram í inn­setn­ing­ar­ræðu hennar í dag þar sem hún fjall­aði um aðför að akademísku frelsi, mik­il­vægi fjöl­breyti­leik­ans, lofts­lags­vána og þver­fag­legra sam­vinnu.

Mikilvægt að fordæma menntamorð
Silja Bára Nýr rektor Háskóla Íslands Mynd: Golli

Silja Bára R. Ómars­dóttir, var sett í emb­ætti rekt­ors Háskóla Íslands í dag. Fullt var út að dyrum í hátíð­ar­sal háskól­ans en meðal gesta voru Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, ásamt Birni Skúla­syni, for­seta­herra, fyrr­ver­andi for­setar Íslands Guðni Th. Jóhanns­son, Ólafur Ragnar Grímsson og Vigdís Finn­boga­dóttir. Þá voru þar Katrín Jak­obs­dóttir, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra og nefnd­ar­með­limur háskóla­ráðs, Logi Ein­ars­son, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra og Daði Már Krist­ó­fers­son, fjár­mála­ráð­herra.  

„Ég er þakk­lát fyrir að til­heyra háskóla­sam­fé­lagi sem að efnir til lýð­ræð­is­legra kosn­inga um æðstu for­ystu sína,“ sagði Silja Bára í ræðu sinni. Hún þakk­aði Jóni Atla Bene­dikts­syni sem hún sagði að hefði sinnt starf­inu af „elju og metn­aði.“ Taldi hún að skól­inn hefði tekið fram­fara­skref undir hans stjórn, þau hafi verið fjöl­mörg síð­ustu tíu ár og nefndi meðal ann­ars aukið alþjóða­sam­starf, gríð­ar­lega upp­bygg­ingu á alþjóða­svæð­inu, blóm­strandi rann­sókn­ar­starf og stór­aukna nýsköpun.

Inn­setn­ing rekt­orsHér sjást Silja Bára R. Ómars­dóttir, nýr rektor, Vigdís Finn­boga­dóttir, fyrrum for­seti Íslands, Jón Atli Bene­dikts­son, frá­far­andi rektor, og Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands.

Allir rektorar konur

Nú þegar Silja Bára hefur tekið við emb­ætti sínu eru allir rekt­orar háskóla á Íslandi konur. Í ræð­unni rak Silja Bára árang­ur­inn til Vigdísar Finn­boga­dóttur og þeirra tíma­móta sem kjör hennar mark­aði. „Ég var sjálf níu ára gömul og fylgd­ist spennt með þessum kosn­ingum sem voru senni­lega þær sem vöktu áhuga minn á stjórn­málum.“   

Í ræð­unni lagði Silja Bára mikla áherslu á fjöl­breyti­leika og jafn­rétti. „Við þurfum að gæta þess að halda áfram að efla og styrkja fjöl­breyti­leika því það er ekki síst hann sem skapar fjöl­skrúð­uga nútíma­menn­ingu. Við eigum að fagna þeim sem hingað koma og auðga sam­fé­lagið okkar með nýjum siðum og venjum,“ sagði hún og bætti við: „Ísland er nefni­lega ekki eyland nema í eig­in­legri merk­ingu og verk­efni okkar teygja sig langt út fyrir landa­mærin.“ 

„Við sjáum vax­andi átök og hernað í kringum okkur og nú þegar kallað er eftir auknum fram­lögum til öryggis- og varn­ar­mála verðum við að standa vörð um fjár­fram­lög til mennt­unar og rann­sókna. Ekki síst þeirra rann­sókna sem viss öfl í heim­inum virð­ast ótt­ast. Svo sem rann­sóknir á fjöl­breyti­leika, lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum og jafn­rétti,“ sagði hún.  

Silja Bára fjall­aði einnig um að mik­il­vægi aðgangs að háskóla­menntun fyrir öll sem hér búa „Fjöldi stúd­enta við Háskóla Íslands sé nokkurn veg­inn sá sami og fyrir ára­tug þrátt fyrir að fólks­fjölgun hafi orðið.“ Hún segir að fjölda stúd­enta hafi mögu­lega staðið í stað vegna þess að inn­flytj­endum sé ekki að fjölga jafn­mikið í háskóla­námi eins og í sam­fé­lag­inu í heild. „Fólks­fjölgun er jú fyrst og fremst þeim að þakka,“ sagði hún og útskýrði að mik­il­vægt væri að háskól­inn gætti þess að vera háskóli allra lands­manna. Því sé mik­il­vægt að skoða hvað geti komið í veg fyrir þátt­töku ólíkra hópa.

Menntamorð og mikilvægi akademísks frelsis

„Það er ráð­ist gegn akademísku frelsi út um allan heim, þrengt að tján­ing­ar­frelsi og mennta­stofn­anir jafn­vel mark­visst eyði­lagðar. Við erum hluti af hinu alþjóð­lega þekk­ing­ar­sam­fé­lagi sem nú berst fyrir stöðu sinni og í þeirri bar­áttu þurfum við að taka þátt,“ sagði Silja Bára. Hún lagði mikla áherslu á að akademískt frelsi væri virt. 

Hún tengdi aðför að akademísku frelsi við þjóð­ar­morðið á Gasa­svæð­inu og vís­aði í mennta­vís­inda­mann­inn Henry Giroux sem hefur rann­sakað mennta­morð. „Mennta­morð sem er fylgi­fiskur þess þjóð­ar­morðs sem við höfum þurft að horfa upp á, svo gott sem í beinni útsend­ingu, í næstum því tvö ár. Meðvituð eyði­legg­ing mennta­inn­viða verður ekki kölluð annað en mennta­morð. Það er alvar­legt og það þurfum við að for­dæma.“  

Silja Bára R. Ómars­dóttirÁvarpaði fullan sal þegar hún tók við emb­ætti rekt­ors Háskóla Íslands.

Hún sagði birt­ing­ar­mynd­irnar vera fleiri: „Önnur og lævís­ari birt­ing­ar­mynd þess er hug­mynda­fræði­legt ofbeldi sem felst í því að brjóta niður tján­ing­ar­frelsi og akademískt frelsi með því að refsa og ógna fræða­fólki um allan heim. Það þarf nefni­lega ekki alltaf að beita ofbeldi til að ná árangri því að fræða­sam­fé­lag­inu er oft gert ljóst að betra sé að þegja en að stíga fram. Það er á ábyrgð okkar allra að verja akademískt frelsi.“  

„Ég mun ávallt leggja ríka áherslu á akademískt frelsi og áfram styðja þá sterku hefð að leyfa vís­ind­unum að stjórn­ast af for­vitni, fag­mennsku og gagn­rýnni hugsun.“ Silja Bára sagði að slíkt frelsi þyrfti að ná inn í skóla­stof­urnar. Mik­il­vægt sé að virkja stúd­enta sem þátt­tak­endur í leit­inni að þekk­ingu og auknum skiln­ingi. 

Þá gagn­rýndi Silja Bára nið­ur­skurði sem hafa verið á Norð­ur­lönd­unum á hug- og félags­vís­inda­sviði. „Ef að nið­ur­skurð­ar­stefnu verður fram haldið í nágranna­löndum okkar – eins og hefur verið síð­ustu árin – þá eru það einkum hug- og félags­vís­indin sem þrengt verður að. En án þeirra tap­ast skiln­ingur okkar á mann­lega þætt­inum í öllu vís­inda­starfi.“

Opin vísindi og virk umhverfisvernd

„Þekking og vís­indi mega ekki vera einka­mál fárra. Þau eru lyk­ill­inn að fram­tíð­inni og hún varðar okkur auð­vitað öll,“ sagði Silja Bára og nefndi að slíkt ýtti undir jöfnuð og styrkti Heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Það er ekki hagur vís­ind­anna að nið­ur­stöður rann­sókna séu læstar inni í hagn­að­ar­drifnum tíma­ritum.“ Hún sagði að UNESCO hvetti aðild­ar­ríki til þess að tryggja opin aðgang að vís­indum. Einnig sagði hún að rann­sak­endur á Íslandi væru hátt yfir með­al­tali í birt­ingu rann­sókna í opnum aðgangi sem mik­il­vægt sé að tryggja áfram. 

Umhverfis- og lofts­lags­málin eru einnig meðal mark­miða hjá Silju Báru: „Skólinn þarf áfram að flétta sjálf­bærni inn í allt sitt starf og þarf að vera virkur þátt­tak­andi í umhverf­is­vernd og við­bragði gegn lofts­lags­breyt­ingum.“

Silja Bára ræddi líka fram­tíð­ar­á­skor­anir og nefndi gervi­greind sem eina þeirra en sagði að í henni feld­ust einnig tæki­færi. „Minnum okkur á að þetta hug­tak þýðir í raun mann­gerð greind en hún verður aldrei mann­leg.“ 

Fullur salur

Háskólinn arðbærasta fjárfestingin

Silja Bára sagði fjár­magn til háskól­ans arð­bær­ustu fjár­fest­ingu sem til er. Því þurfi að full­fjár­magna hann svo háskól­inn geti sinnt öllum skyldum sínum án þess að ganga á heilsu starfs­fólks. „Ég óska eftir sam­starfi við stjórn­völd um að fjár­magna þær umbætur sem gera þarf á starfs­um­hverfi til þess að bæta vellíðan í starfi og námi.“  

Þá sagði hún mik­il­vægt að nám teld­ist sem full vinna. „Ég vil að stúd­entar á Íslandi hafi efni á því að ein­beita sér að nám­inu og mun standa með þeim í bar­áttu þeirra.“ 

Tengsl milli atvinnu­lífs og háskóla sagði Silja Bára einnig gríð­ar­lega mik­il­væg. Hún sjái tæki­færi til að efla þau til dæmis með háskóla­sam­stæðu Háskóla Íslands og Háskól­ans á Hólum.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Held að Silja Bára sé vel að þessu komin, vona að orð standi. Heyr, heyr.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár