Egyptar brottvísa aðgerðasinnum úr landi

Tugum aðgerða­sinna sem að styðja Palest­ínu hefur verið brott­vísað frá Egypta­landi. Þúsundir hafa lagt leið sína til lands­ins þar sem leið­ang­ur­inn Global March to Gaza ætlar að koma mann­úð­ar­að­stoð inn á Gasa­svæðið í gegnum landa­mæri við Rafah. Egypsk yfir­völd reyna að hafa uppi á erlendum ferða­mönnum sem stefna á þátt­töku og senda úr landi.

Egyptar brottvísa aðgerðasinnum úr landi
Frá mót­mælum fyrir utan íslenska utan­rík­is­ráðu­neytið þar sem kraf­ist var aðgerða vegna stöð­unnar á Gaza. Mynd: Golli

Yfirvöld í Egypta­landi hafa haf­ist handa við að brott­vísa aðgerðasinnum sem styðja Palest­ínu úr landi. Brott­vís­an­irnar snúa að leið­angri Global March to Gaza sem þýðir Alþjóð­leg ganga til Gasa en þús­undir manns eru nú á ferða­lagi frá Norður-Afríku til Gasa. Leið­ang­ur­inn hófst í kjöl­far þess að Ísra­els­her hand­tók áhöfn Madleen sjó­leið­ang­urs­ins en meðal skip­verja voru lofts­lags­að­gerðasinn­inn Greta Thunberg. 

Markmið Global March to Gaza er að koma mann­úð­ar­að­stoð að á Gasa­svæðið, en Ísrael hefur setið um svæðið og hefur hleypt veru­lega tak­mark­aðri neyð­ar­að­stoð þangað inn síðan í mars. Leið­ang­ur­inn á einnig að setja þrýst­ing á yfir­völd um allan heim og varpa ljósi á þjóð­ar­morðið sem Ísrael fremur gegn Palest­ínu­mönnum. 

Tugum aðgerðasinna brottvísað

Hund­ruðir aðgerða­sinna hafa lagt leið sína til Egypta­lands síð­ast­liðna daga frá meira en átta­tíu löndum til þess að taka þátt í leið­angrinum en áætlað er að 4.000 manns muni taka þátt. Yfirvöld í Egypta­landi hafa í …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    "Egyptar brottvísa aðgerðasinnum úr landi"

    Er ekki alveg nóg að segja að þeir hafi vísað þessum aðgerðasinnum úr landi?
    Ef höfundurinn vill fara alla leið þá gæti hann haft þetta svona:
    "Egyptar brottvísa aðgerðasinnum af landi brott"
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár