Ágúst Ólafur verður aðstoðarmaður borgarstjóra

Ágúst Ólafur Ágústs­son verður ný aðstoð­ar­maður borg­ar­stjóra en sá fyrri lætur af störfum eftir rúm­lega tveggja mán­aða vinnu. Ágúst var áminntur af flokknum fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni árið 2018.

Ágúst Ólafur verður aðstoðarmaður borgarstjóra
Ágúst Ólafur sat lengi vel á þingi. Mynd: Reykjavíkurborg

Ágúst Ólafur Ágústs­son hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður Heiðu Bjargar Hilm­is­dóttur borg­ar­stjóra að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Ágúst Ólafur er fyrr­ver­andi alþing­is­maður og efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra. Þá sat hann í banka­ráði Seðla­banka Íslands í fjögur ár og gegndi meðal ann­ars for­mennsku í við­skipta­nefnd Alþingis, Evr­ópu­nefnd for­sæt­is­ráð­herra og í fram­kvæmda­sjóði aldr­aða.

Hann vann sem sér­fræð­ingur á aðal­skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York og hefur að und­an­förnu stundað dokt­ors­nám í opin­berri stjórn­sýslu. Samhliða hefur hann kennt við Háskóla Íslands ásamt því að sinna ráð­gjaf­ar­störfum meðal ann­ars fyrir Sjúkra­liða­fé­lag Íslands, Rann­sókn­ar­setur skap­andi greina og Ljósið.

Ágúst er mennt­aður lög­fræð­ingur, hag­fræð­ingur og stjórn­sýslu­fræð­ingur og á sæti í stjórn Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands og Evr­ópu­hreyf­ing­ar­innar.

Hann er kvæntur Jóhönnu Bryndísi Bjarna­dóttur, tann­lækni og fyrr­ver­andi for­manni Tann­lækna­fé­lags Íslands.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LCV
    Lowana Compton Veal skrifaði
    Er hann búinn að fara í endurmenntun ? Kv.Siggi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár