Kannski ekki deigur dropi úr krananum

Ef ekki verður gripið til aðgerða má búast við miklum skorti á ómeng­uðu neyslu­vatni á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu á næsta ára­tug. Þetta má lesa í nýrri skýrslu frá fyr­ir­tæk­inu Hofor sem sér um öflun og dreif­ingu orku og vatns í Kaup­manna­höfn og nágrenni.

Hoved­stadsom­rådets For­syn­ingsselskab, Hofor, varð til árið 2013. Þá sam­ein­uð­ust fyr­ir­tæki sem önn­uð­ust öflun og dreif­ingu á heitu og köldu vatni, gasi og raf­orku, ásamt frá­rennsl­is­lögnum á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu undir einum hatti. Hofor er að stærstum hluta í eigu Kaup­manna­hafn­ar­borgar en önnur sveit­ar­fé­lög í nágrenni höf­uð­borg­ar­innar eru með­eig­endur. Starfs­menn eru um fimmtán hund­ruð en auk þess starfa mörg hund­ruð hjá ýmsum „hlið­ar­fyr­ir­tækjum“ sem ann­ast ein­staka þætti starf­sem­innnar.

Hófst 1859

Segja má að saga vatns­veit­unnar í Kaup­manna­höfn, eins og við þekkjum hana í dag, hafi byrjað árið 1859. Þá var byggð dælu­stöð, kölluð Pumpehu­set, við Stu­diestræde (sem Íslend­ingar kalla Mennta­veg­inn). Þá voru komnar vatns­lagnir í gamla mið­bænum en þrýst­ing­ur­inn mjög lít­ill og dugði ekki til að koma vatn­inu upp á efri hæðir húsa. Vatnið kom frá upp­sprettum fyrir norðan Albertslund. Dælu­stöðin í Pumpehu­set var tekin úr notkun fyrir tæpum 30 árum en þá var hús­inu breytt og hefur síðan verið notað til tón­leika­halds og skemmt­ana af ýmsu tagi. Vatnið til Kaup­manna­hafn­ar­svæð­is­ins kemur í dag frá 56 upp­sprettum og bor­holum norðan við höf­uð­borg­ina. Í Tinghøj í Gladsaxe eru 10 geymar sem sam­tals rúma 300 þús­und rúmmetra af vatni. Sumir þeirra eru orðnir gamlir, þeir elstu frá 1931. Nú er í und­ir­bún­ingi að byggja við­bót­ar­geyma sem rúmað geta 225 þús­und rúmmetra til við­bótar því sem fyrir er.

Mikil gæði, mýkra vatn, stóraukin notkun og lek rör

Vatnið sem Hofor dreifir til Kaup­manna­hafnar og nágrennis er mjög hreint, eini gall­inn er að það er kalkríkt. Hofor vinnur mark­visst að því að „mýkja“ vatnið með sér­stakri tækni. Mikið kalk í vatn­inu eyði­leggur blönd­un­ar­tæki, þvotta- og upp­þvotta­vélar og lagnir með til­heyr­andi kostn­aði.

Þrátt fyrir að þvotta- og upp­þvotta­vélar sem seldar eru í dag noti minna vatn, og minna raf­magn og að nú séu í boði alls kyns „sparn­að­ar­kranar“ á vaska og sturtur, ásamt „spar­neytn­ari“ sal­ernum, eykst vatns­notk­unin stöðugt. Ein helsta ástæða þess er að íbúum í Kaup­manna­höfn og nágrenni fjölgar stöðugt, og síauk­inn fjöldi ferða­manna sem leggur leið sína til dönsku höf­uð­borg­ar­innar.

Í áður­nefndri skýrslu frá Hofor kom fram að gera megi ráð fyrir að vatns­rör end­ist í 75 til 100 ár. Rúmlega fjórð­ungur allra vatns­lagna á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu er eldri en 100 ára og því löngu kom­inn á aldur ef svo mætti segja. Talið er að allt að 13 pró­sent þess vatns sem leggur af stað til höf­uð­borg­ar­innar tap­ist vegna leka á rör­unum.

Tón­leika­staðurPumpehu­set er í dag tón­leika­staður en sá lengi vel íbúum borg­ar­innar fyrir vatni.

Styttra í sturtunni

Hver Dani notar að jafn­aði dag­lega um 105 lítra af vatni. Danska útvarpið, DR, bað Anne Scherfig, sér­fræð­ing hjá Hofor, um nokkur ráð handa ein­stak­lingum sem vilja spara vatnið. Hún nefndi eft­ir­far­andi:

  • Ekki að láta renna meðan þú burstar tenn­urnar.
  • Notaðu garð­könnu til að vökva blómin í garð­inum, ekki slöng­una.
  • Notaðu sparn­að­ar­still­ing­arnar á þvotta- og upp­þvotta­vél­inni.
  • Láttu gera við krana sem leka, þótt það sé skrúfað fyrir þá.
  • Styttu tím­ann í sturt­unni um eina mín­útu, þá spar­ast 10 lítrar af vatni.

„Þótt þetta virð­ist ekki mikið verður að hafa í huga að margt smátt gerir eitt stórt,“ sagði Anne Scherfig. Hún bætti við að ef skipta þyrfti út sal­erni væri sjálf­sagt að það nýja hefði bæði minna og stærra útskol. Ný sal­erni nota 2–4 lítra í útskol en gömul allt að 12 lítra. 27 pró­sent af dag­legri vatns­notkun Dana fara út í gegnum sal­ernið.

Vantar 12 milljónir rúmmetra

Spár Hofor gera ráð fyrir að árið 2040 þurfi 73 millj­ónir rúmmetra af vatni til að full­nægja þörf Kaup­manna­hafn­ar­svæð­is­ins, núna er geta vatns­veit­unnar 61 milljón rúmmetrar. Það þarf því að auka vatns­magnið um 12 millj­ónir rúmmetra til að allir geti fengið það vatn sem þörf er fyrir. Þetta vatns­magn sem vantar, ef ekk­ert verður að gert, svarar til allrar vatns­notk­unar í sveit­ar­fé­lag­inu Óðins­véum á Fjóni þar sem búa 210 þús­und manns.

Hættumerki

Í tengslum við útgáfu skýrslu Hofor hélt Magnus Heunicke umhverf­is­ráð­herra frétta­manna­fund. Ráð­herr­ann sagði hættu­merki á lofti varð­andi danskan vatns­bú­skap. Nóg væri til af vatni í Danmörku en sífellt yrði erf­ið­ara að finna ómengað vatn. Ráð­herr­ann sagði að nú væri hafin vinna við að kort­leggja grunn­vatnið, eins og hann komst að orði, og þeirri vinnu á að ljúka haustið 2026.

„Það er ekki við bændur að sakast“

„Neyslu­vatn skiptir öllu máli fyrir okkur og það á að vera ómengað og öruggt til neyslu en þannig verður það ekki í fram­tíð­inni nema við bregð­umst við,“ sagði Magnus Heunicke, Á frétta­manna­fund­inum kom fram að stærsti meng­un­ar­vald­ur­inn í jarð­vegi væri land­bún­að­ur­inn. „Það er ekki við bændur að sakast, þeir hafa starfað í góðri trú,“ sagði ráð­herr­ann og bætti við: „Við berum öll ábyrgð á land­inu okkar.“

Rétt er að geta þess að vand­inn varð­andi ómengað neyslu­vatn og hugs­an­legan skort á því í fram­tíð­inni er ekki bund­inn við Kaup­manna­höfn og nágrenni. Sama er upp á ten­ingnum varð­andi mörg önnur svæði í Danmörku.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Hvernig ætli staðan á jarðvatninu okkar og andrúmsloftinu verði eftir tvö þúsund ár 🙄 ? Eða 50 ár …kannski er hreint vatn og loftgæði bara aukaatriði fyrir lífi…og þó 🧬
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár