Björgólfur hafnar njósnum en játar að hafa greitt fyrir þær

Auð­mað­ur­inn Björgólfur Thor Björg­ólfs­son seg­ist aldrei hafa fengið njósn­a­gögn í hendur sem hann játar að hafa greitt átta millj­ónir fyrir.

Björgólfur hafnar njósnum en játar að hafa greitt fyrir þær
Björgólfur Thor Björg­ólfs­son seg­ist ekki hafa vitað um umfang eft­ir­lits­ins sem hann seg­ist hafa greitt 8 millj­ónir fyrir en ekki 33 millj­ónir króna. Mynd: btb.is

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son heldur því fram í yfir­lýs­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla að hann hafi ekki fengið afhentar upp­tökur tengdar njósnum PPP sem Kveikur greindi frá í byrjun maí.

Þetta stang­ast á við umfjöllun og upp­tökur sem birt­ust í þætt­inum þar sem lög­mað­ur­inn Birgir Már Ragn­ars­son virð­ist vera milli­göngu­maður í sam­skiptum við for­svars­menn PPP auk þess sem minnst er á við­skipta­fé­laga hans og Björg­ólfs, Andra Sveins­son, í hljóð­upp­tök­unum.

Björgólfur Thor játar að hafa greitt félag­inu PPP 8 millj­ónir króna fyrir vinnu sína en ekki 33 millj­ónir eins og fram kemur í Kveiks­þætt­inum. Þó heldur hann því fram á sama tíma að upp­tökur hafi aldrei verið afhentar honum né starfs­fólki hans.

Myndefni Kveiks sýnir að lög­mað­ur­inn Andri Már hafi átt í sam­skiptum við for­svars­menn PPP um svo­kall­aða „gagna­öflun“. Björgólfur heldur því …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár