Með ömmu um hálsinn?

Dönsk kona hefur sent danska þing­inu til­lögu sem gerir ráð fyrir að nota megi ösku lát­inna Dana í skart­gripi. Lögum sam­kvæmt er það bannað í Danmörku en heim­ilt í mörgum löndum. Margir Danir vilja rýmri reglur varð­andi jarð­neskar leifar ætt­ingja.

Á síð­asta ári sendi Gitte Christina Gravlund Ilsfort til­lögu inn á vef­síð­una borger­forslag.dk. Þessi síða, sem danska þingið Fol­ket­inget hefur umsjón með, er vett­vangur borg­ar­anna til að koma með til­lögur og upp­á­stungur til stjórn­valda. Auk send­anda þurfa þrír ein­stak­lingar að und­ir­rita til­lög­una. Sérstök nefnd á vegum þings­ins fer yfir til­lög­una og hefur til þess 10 virka daga. Tillagan má ekki hvetja til brota á lögum, ekki bein­ast gegn til­teknum ein­stak­lingi, eða ein­stak­lingum og má ekki vera aug­lýs­ing af ein­hverju tagi. Uppfylli til­lagan skil­yrðin er hún birt á vef­síð­unni borger­forslag.dk og verður þar í 6 mán­uði, á þeim tíma geta borg­ar­arnir lýst yfir stuðn­ingi við til­lög­una en þurfa að skrá sig gegnum inn­skrán­ing­ar­kerfið Mit id (raf­ræn skil­ríki). Við­kom­andi þarf að vera danskur rík­is­borg­ari, hafa náð 18 ára aldri, með kosn­inga­rétt í Danmörku og vera búsettur í land­inu. 50 þús­und ein­stak­lingar þurfa að und­ir­rita stuðn­ing við til­lög­una til þess að hún komi til kasta þings­ins. Ef öllum skil­yrðum er full­nægt ákveður þing­nefnd hvort til­lagan sé „þing­tæk“ og ef svo reyn­ist þarf að útbúa frum­varp sem síðan kæmi til kasta þings­ins að afgreiða.

Strangar reglur

Tillagan sem Gitte Christina Gravlund Ilsfort sendi inn til borger­forslag.dk snýst í stuttu máli um að heim­ilt verði að nota ösku lát­inna ætt­ingja eða náinna vina í skart­gripi. Samkvæmt núgild­andi dönskum lögum er slíkt ekki leyfi­legt.

Í Danmörku gilda strangar reglur um með­ferð jarð­neskra leifa (ösku) lát­inna. Það er leyfi­legt að dreifa ösku yfir opið haf ef sá látni hafði sett fram skrif­lega ósk um slíkt. Það skal þó gert með virðu­legum hætti og ekki vekja athygli. Þannig er ekki heim­ilt að sturta úr duft­ker­inu af dekki Árósa­ferj­unnar – eins og eitt dönsku blað­anna orð­aði það. Ösku má ekki dreifa yfir stöðu­vötn, ár og læki. Að dreifa ösku yfir land er bannað. Duftker má þó, með leyfi yfir­valda í við­kom­andi umdæmi, jarð­setja á einka­landi sem verður að vera að minnsta kosti 5 þús­und fer­metra stórt, ekki er heim­ilt að setja leg­stein á slíka gröf. Ekki er heim­ilt að jarð­setja ösku lát­ins ein­stak­lings í tveimur kirkju­görðum. Hægt er að óska eftir leyfi til að dreifa hluta ösku yfir opið haf, eða jarð­setja á einka­landi, eða flytja hluta ösku til ann­ars lands ef hluti ösk­unnar er jarð­settur í heima­hér­aði hins látna.

Ekki er heim­ilt að geyma duft­ker í heima­húsi, jafn­vel þótt aðeins sé um að ræða skemmri tíma.

Hundar, kettir og páfagaukar í skartgripi

Fyrir um það bil 15 árum fór skart­gripa­hönn­uð­ur­inn Andrea van Webber að bjóða þjón­ustu sem þá var nýlunda í Danmörku. Sem sé að útbúa skart­gripi þar sem aska gælu­dýra væri hluti hrá­efn­is­ins. Hún sagði í útvarps­við­tali fyrir skömmu að í upp­hafi hafi margir hlegið þegar hún sagði frá þessu en það gerði eng­inn lengur. Andrea van Webber var meðal þeirra fyrstu á Norð­ur­löndum sem fram­leiddi slíka skart­gripi. Skömmu eftir að hún fór að gera ösku­skart­grip­ina fóru henni að ber­ast fyr­ir­spurnir um hvort hún gæti gert skart­gripi þar sem aska lát­inna ætt­ingja væri notuð. Slíkum fyr­ir­spurnum hefur fjölgað á síð­ustu árum en Andrea van Webber seg­ist ætíð svara því til að slíkt væri ólög­legt. Hún hafi hins vegar nokkrum sinnum skrifað til kirkju­mála­ráð­herra og vakið athygli á mál­inu.

Fékk hugmyndina eftir að amman dó

Gitte Christina Gravlund Ilsfort sagði frá því í blaða­við­tali fyrir skömmu að hún hefði farið að velta þessum málum fyrir sér eftir að móð­ur­amma hennar lést af völdum kór­óna­veirunnar. Vegna aðstæðn­anna gátu Gitte og aðrir ætt­ingjar ekki kvatt ömm­una eins og þau hefðu óskað sér. „Og þá vakn­aði hjá mér þessi hug­mynd um skart­grip­ina.“ Hún sagð­ist jafn­framt telja að við­kom­andi hefði, í lif­anda lífi, sam­þykkt að nota mætti ösk­una í skart­gripi og vel mætti hugsa sér skrán­ingu, líkt og varð­andi líf­færa­gjafir, eftir dauð­ann.

Misjöfn viðbrögð

Tillaga og hug­myndir Gitte Christina Gravlund Ilsfort hafa vakið athygli og umræður meðal Dana. Tals­maður sam­taka útfar­ar­stjóra segir að aðstand­endur lát­inna hafi marg­hátt­aðar óskir varð­andi ösku, ekki síst hvort leyfi­legt sé að dreifa henni yfir opið land. Danski kirkju­mála­ráð­herr­ann, Morten Dahlin, sagð­ist í við­tali við danska útvarpið, DR, skoða allar hug­myndir með opnum huga, lög­gjöfin um útfarir og greftr­anir væri mjög gömul. Hann kvaðst vilja ræða þetta mál við bisk­upa lands­ins og siða­nefnd þings­ins (Etisk råd). Ráð­herr­ann nefndi sér­stak­lega ákvæðið um jarð­setn­ingu duft­kerja í fleiri en einum kirkju­garði, sem ástæða væri til að skoða.

Elof Westergaard, biskup í Ribe, líst ekki vel á hug­mynd­ina um að nota megi ösku lát­inna ætt­ingja í skart­gripi. Hann segir að ef slíkt verði leyft sé verið að gera hinn látna að hlut og veki spurn­ingar um hver eigi hinn látna. Morten Bangs­gaard, sem sat um nokk­urra ára skeið í siða­nefnd þings­ins, segir að taka verði til­lit til margra þátta eigi að breyta núgild­andi lögum. Hann segir það sína skoðun að maður eigi að varð­veita þá látnu í hug og hjarta en ekki um háls­inn. „Hvað ef háls­menið úr ösk­unni af henni ömmu endar í kassa á háa­loft­inu, eða á flóa­mark­aði?  Það er ekki virð­ing við lát­inn ætt­ingja.“

Að lokum er rétt að geta þess að til­laga Gitte Christina Gravlund Ilsfort upp­fyllti öll skil­yrði og var birt á síð­unni borger­forslag.dk 25. jan­úar síð­ast­lið­inn og hægt verður að skrá stuðn­ing til 25. júlí næst­kom­andi Þegar þessi pist­ill var settur á blað höfðu 1.008 lýst stuðn­ingi við til­lög­una.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár