Sýknaður af nauðgun gegn barnabarni sínu

Karl­maður á átt­ræð­is­aldri var sýkn­aður í Hér­aðs­dómi Reykja­ness af kyn­ferð­is­brotum gegn dótt­ur­dóttur sinni, en hann var ákærður fyrir að hafa nauðgað henni tvisvar með fjög­urra ára milli­bili. Bæði brotin áttu að hafa átt sér stað meðan dótt­ur­dótt­urin var í pössun hjá afa sínum.

Sýknaður af nauðgun gegn barnabarni sínu

Karl­maður á átt­ræð­is­aldri var í apríl sýkn­aður í Hér­aðs­dómi Reykja­ness fyrir grófar nauðg­anir gegn ólög­ráða barna­barni sínu. Maðurinn var bor­inn þeim sökum að hafa nauðgað dótt­ur­dóttur sinni, ann­ars vegar árið 2015 og hins vegar árið 2019, með því að „nýta sér yfir­burði sína gagn­vart stúlkunni og traust hennar og trúnað til hans sem afa hennar“.

Bæði brotin áttu að hafa átt sér stað meðan dótt­ur­dótt­urin var í pössun þar sem hún gisti hjá ákærða.

Maðurinn var sýkn­aður en dóm­ur­inn taldi fram­burð brota­þola ekki nægi­lega skýran og áreið­an­legan, auk þess sem ósam­ræmi væri í lýs­ingum hennar um meint brot – bæði hjá lög­reglu og fyrir dómi. Að mati dóms­ins gætti tölu­verðs óskýr­leika og jafn­vel ósam­ræmis í frá­sögn stúlkunnar um hvað afi hennar ætti að hafa gert á  hennar hlut.

Aldur stúlkunnar kemur ekki fram í dómnum. Í gögnum máls­ins kemur þó fram að máls­að­ilar séu sam­mála um að afinn og barna­barnið hafi síð­ast hist í ferm­ing­ar­veislu stúlkunnar, og má því áætla út frá því að brotin hafi átt sér stað áður en hún komst á ferm­ing­ar­aldur.

„Svona bullukolla“

Eig­in­kona afans bar um það vitni fyrir dómi að hún hefði alltaf verið heima þegar stúlkan gisti hjá þeim hjónum og afinn hafi því aldrei verið einn með dótt­ur­dótt­ur­inni. Við yfir­heyslu þvertók afinn fyrir að hafa brotið gegn dótt­urt­óttur sinni og að hann átt­aði sig ekki á því af hverju hún bæri slík ósann­indi á hann.

Hún ætti það til að vera „svo­lítið mikil svona bullu­kolla.“ Samband hans við dótt­ur­dótt­ur­ina og systk­ini hennar hafi verið náið og gott þangað til dóttir hans hætti sam­skiptum við hann um ára­mótin 2021-2022. Börnin hefðu oft verið í pössun hjá honum og konu hans. 

Að mati dóms­ins þótti fram­burður afans hnökra­laus og trú­verð­ugur. Þá ætti hann sér stoð í öðrum vitn­is­burðum og skjal­festum sönn­un­ar­gögnum. 

Greindist með áfallastreitu

Stúlkan sótti tíu sál­fræði­tíma hjá Barna­húsi 2022-2023 þar sem hún greind­ist með áfallastreituröskun. Í dóm­inum segir að ein­kenni hennar hafi einkum birst í end­ur­upp­lifun ágengra minn­inga um meint kyn­ferð­is­brot.

Sagði sál­fræð­ingur frá Barna­húsi fyrir dómi að ein­kenni áfallastreiturösk­unar hjá stúlkunni hefðu verið „svo sér­tæk“ fyrir því að hún hefði orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi að sál­fræð­ing­ur­inn taldi engan vafa leika á að afi stúlkunnar hefði gert eitt­hvað á hennar hlut. Ein­kennin gætu ekki stafað af öðru áfalli en kyn­ferð­is­brotum ákærða.

Þetta þótti þó ekki styðja sér­stak­lega fram­burð stúlkunnar fyrir dómi, en hún hefði hætt með­ferð­ar­við­tölum áður en til þess kom að rætt yrði um meint kyn­ferð­is­brot afa hennar gegn henni. Ályktun sál­fræð­ings­ins þótti því óvar­leg.

Þrátt fyrir stöðuga frá­sögn stúlkunnar að afi hennar hefði brotið á heni kyn­ferð­is­lega voru til­tekin atriði sem vöktu þá spurn­ingu hvort hún væri „örugg­lega að lýsa atviki sem hún hafi upp­lifað af eigin raun,“ að því er segir í dómnum. 

„Eftir standa orð ákærða gegn orðum brota­þola um meint kyn­ferð­is­brot. Þykja þau hvort fyrir sig trú­verðug og hallar alls ekki á ákærða við slíkt mat.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár