Jens Garðar nýr varaformaður Sjálfstæðisflokksins

Jens Garðar Helgason hefur verið kjör­inn nýr vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Jens Garðar nýr varaformaður Sjálfstæðisflokksins
Ný stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins Mynd: Golli

Jens Garðar Helgason var kjör­inn nýr vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á 45. lands­fundi flokks­ins í Laug­ar­dals­höll­inni í dag og tekur við emb­ætt­inu af Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur.

Jens Garðar hlaut 928 atkvæði, eða 53,2 pró­sent gildra atkvæða. Diljá Mist Ein­ars­dóttir hlaut 758 atkvæði eða 43,4 pró­sent. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir fékk 59 atkvæði, án þess þó að hún hafi til­kynnt um fram­boð til emb­ætt­is­ins.

Í ræðu sinni þakk­aði Jens Garðar Diljá Mist Ein­ars­dóttur mót­fram­bjóð­anda sínum og sagð­ist hann lofa því að vera glaður og djarfur. Framundan væru sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. „Og fálk­inn mun blakta við hvert ráð­hús næsta vor.“

Fyrr á fund­inum var Guðrún Haf­steins­dóttir kjörin for­maður flokks­ins – fyrst kvenna. Hún hlaut 50,11% atkvæða og aðeins 19 fleiri atkvæði en Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir. Litlu mun­aði á að kjósa þyrfti aftur en for­mað­ur­inn þarf að fá yfir helm­ing atkvæða til að verða kjör­inn. 

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Eins gott að Laxmaður Noregsson komist aldrei í ríkisstjórn.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár