Þórdís Kolbrún segir Bandaríkin stefna í ranga átt

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og frá­far­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði Banda­ríkin jafn­vel þegar farin að brenna niður mik­il­væga þætti af heims­mynd sem væri grund­völlur friðar og frelsis.

Þórdís Kolbrún segir Bandaríkin stefna í ranga átt
Á lands­fundi Utan­rík­is­mál voru Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, fyrr­ver­andi utan­rík­is­mála­ráð­herra og frá­far­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ofar­lega í huga í ræðu sem hún flutti á lands­fundi flokks­ins í dag. Hún seg­ist hafa trú á Banda­ríkj­unum og Banda­ríkja­mönnum en að landið stefndi í ranga átt. Mynd: Golli

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, frá­far­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tal­aði með afdrátt­ar­lausum hætti gegn stefnu Banda­ríkj­anna í ræðu sinni á lands­fundi flokks­ins í hádeg­inu.

„Tími alvör­unnar er runn­inn upp. Ég segi það með djúpri sorg í hjarta, og ég vildi óska þess að ég þyrfti ekki að segja það. Núver­andi stjórn­völd í Banda­ríkj­unum eru ekki málsvarar raun­veru­legis frelsis. Þau eru að leika sér að eld­inum og eru jafn­vel þegar farin að brenna niður mik­il­væga þætti af þeirri heims­mynd sem er grund­völlur friðar og frelsis. Fyrir okkur, fyrir Evrópu og fyrir Banda­ríkin sjálf,“ sagði hún. Þórdís Kolbrún sagð­ist þó hafa trú á Banda­ríkj­unum og Banda­ríkja­mönnum en að landið stefndi í ranga átt.

Síðustu daga hefur mikið gengið á í utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna þar sem þau hafa tekið afger­andi afstöðu með Rúss­landi. Í gær gerði for­set­inn Donald Trump lítið úr Volody­myr Zelensky Úkra­ínu­for­seta í heim­sókn hans í Hvíta hús­inu í gær og full­yrti að Úkraína myndi ekki sigra stríðið við Rússa.  

„Látið ekki blekkj­ast. Það sem er að ger­ast núna er ekki gott fyrir heim­inn, það er ekki gott fyrir Evrópu og það er ekki gott fyrir Ísland. Og ekki gott fyrir Banda­ríkin sjálf.

Það mun von­andi ekki líða langur tími þangað til Banda­ríkin skipta um kúrs því þau stefna svo sann­ar­lega í ranga átt. Ég er hand­viss um að sagan muni fara óblíðum höndum um þau sem munu blekkj­ast af því sem er raun­veru­lega að ger­ast og við horfum upp á.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár