Diljá Mist vill varaformannsembættið

Diljá Mist Ein­ars­dóttir býð­ur sig fram til vara­for­mann­semb­ætt­is Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Jens Garð­ar Helga­son hefur einnig gefið kost á sér. Nýr for­maður og nýr vara­for­maður flokks­ins verða kjörnir á lands­fundi um helg­ina.

Diljá Mist vill varaformannsembættið
Jens Garðar og Diljá Mist, hér í aft­ari röð, sækj­ast bæði eftir því að verða næsti vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Golli

Diljá Mist Ein­ars­dóttir sæk­ist eftir því að verða næsti vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Nýr vara­for­maður verður kjör­inn á lands­fundi flokks­ins sem fram fer um helg­ina. Jens Garðar Helgason hefur einnig til­kynnt að hann sæk­ist eftir emb­ætt­inu. 

Diljá Mist til­kynnti í gær að hún myndi í kvöld, mið­viku­dag, halda fund með stuðn­ings­fólki sínu í Grósku. Hún hefur um hríð verið orðuð við fram­boð til vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þótti sú til­kynn­ing gefa því byr undir báða vængi.

Á sam­fé­lags­miðlum í dag til­kynnir hún um fram­boð sitt. 

„Heim­ur­inn er að breyt­ast hratt fyr­ir aug­um okk­ar og í því fel­ast bæði áskor­an­ir og mik­il tæki­færi. Grunn­gildi Sjálf­stæðis­flokks­ins, frelsi, sam­kennd og sköp­un­ar­kraft­ur hafa gert Ísland að því landi sem við elsk­um. Sjá­lfstæðis­flokk­ur­inn stend­ur á kross­göt­um. Við þurf­um að sjá til þess að þessi gildi haldi áfram – að skapa tæki­færi og sam­fé­lag þar sem all­ir geta blómstrað,“ segir Diljá í mynd­skeiði sem hún birtir bæði á Instagram og Facebook.

Núver­andi vara­for­maður, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, mun ekki gefa kost á sér áfram. Á lands­fund­inum verður einnig kjör­inn nýr for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins en þær Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Guðrún Haf­steins­dóttir eru báðar í fram­boði.

Diljá Mist heffur sinnt ýmsum verk­efnum á vett­vangi Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá 17 ára aldri. Hún hefur gegnt stöðu rit­ara og vara­for­manns Heimdallar, ann­ars vara­for­manns Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, setið í stjórn hverfa­fé­lags Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Graf­ar­vogi, setið í stjórn Varðar, full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins og átti sæti í end­ur­skoð­un­ar­nefnd Reykja­vík­ur­borgar. Hún situr sem þing­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Diljá hefur sem þing­maður tekið sæti í efna­hags- og við­skipta­nefnd og utan­rík­is­mála­nefnd, auk þess að gegna emb­ætti fjórða vara­for­seta Alþingis. Hún situr nú í Íslands­deild þing­manna­nefnda EFTA og EES, og þing­manna­nefnd Íslands og ESB.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Vonandi að Áslaug Arna og Diljá verði kjörnar. Þá fáum við að sjá hvar Davíð keypti ölið.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár