Jens Garðar vill varaformannsembættið

Jens Garðar Helgason býður sig fram til vara­for­manns­emb­ættis Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Jens er fyrr­ver­andi bæði for­maður Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og vara­for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins

Jens Garðar vill varaformannsembættið

Jens Garðar Helgason gefur kost á sér til emb­ættis vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann er sá fyrsti til að bjóða sig fram tið emb­ætt­is­ins fyrir lands­fund flokks­ins sem hald­inn verður um mán­aða­mótin. Önnur sem orðuð hafa verið við emb­ættið erum Diljá Mist Ein­ars­dóttir og Jón Gunn­ars­son. Ljóst er að mikil end­ur­nýjun verður á for­ystu flokks­ins en þá verður einnig kjör­inn nýr for­maður þar sem Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Guðrún Haf­steins­dóttir eru báðar í fram­boði. 

Jens Garðar er nýkjör­inn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og er odd­viti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Hann er fyrr­ver­andi for­maður Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og vara­for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Hann greinir frá fram­boði sínu á Facebooksíðu sinni þar sem hann greinir frá því að hafa verið virkur í starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá unga aldri: „Framundan eru mik­il­væg verk­efni sem skipta landið allt máli. Við þurfum að stíga stór skref í þá átt að leysa betur úr læð­ingi þá krafta sem búa í þjóð­inni. Einka­fram­takið, öfl­ugur atvinnu­rekstur um allt land og frelsi til að fram­kvæma, leggja grunn­inn að allri far­sæld okkar sem þjóðar. Kraftinn má ekki tjóðra niður með van­trú, óþarfa hindr­unum, þung­lama­legu reglu­verki eða með því að líta á atvinnu­lífið sem mjólk­urkú fyrir hið opin­bera,“ skrifar Jens á Facebook.

Þá segir hann að ein­stak­lings­fram­takið þurfi að eiga sér málsvara: „Með því að tryggja fólki um land allt tæki­færi og gott umhverfi til að koma góðum hug­myndum í fram­kvæmd, leggjum við grunn­inn að far­sæld alls sam­fé­lags­ins,“ skrifar Jens.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár