Ríkið vinnur áfram að sölu Íslandsbanka

Und­ir­bún­ingur íslenska rík­is­ins á sölu á hlut sínum í Íslands­banka heldur áfram þrátt fyrir áhuga Arion á við­ræðum um sam­ein­ingu bank­anna tveggja.

Ríkið vinnur áfram að sölu Íslandsbanka
Daði Már Krist­ó­fers­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra

Ríkið mun halda áfram að vinna að und­ir­bún­ingi á sölu á hlut sínum í Íslands­banka, um 42,5% hluta­bréfa bank­ans, í almennu og opnu útboði. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Í kjöl­far þess að ríkið til­kynnti á föstu­dag um fyr­ir­hugað opið almennt útboð á hlut rík­is­ins í Íslands­banka, birti Arion banki erindi til Íslands­banka um áhuga sinn á við­ræðum um sam­ein­ingu bank­anna. Í erind­inu kom meðal ann­ars fram að hlut­höfum Íslands­banka, þar með talið rík­inu, stæðu til boða hluta­bréf í sam­ein­uðum banka sam­kvæmt til­tek­inni aðferða­fræði.

Tveir bankar á samkeppnismarkaði

Frumvarp um sölu­ferlið var birt í sam­ráðs­gátt fyrir helgi og að loknu sam­ráði verður tekið fyrir á Alþingi. Í frum­varp­inu er lögð áhersla á fram­kvæmd­ina á útboðs­ferl­inu, það er á hlut­lægni, hag­kvæmni, jafn­ræði og gagn­sæi, ásamt for­gangi almenn­ings.

Frestur stjórnar Íslands­banka til að svara Arion banka er 14 dagar. 

„Nauð­syn­legt að málið verðið metið með vönd­uðum hætti af hálfu rík­is­ins“

„Í ljósi þess að um er að ræða stórt mál, sem varðar tvo skráða banka á sam­keppn­is­mark­aði með fjöl­breyttan hlut­hafa­hóp, er eðli­legt og nauð­syn­legt að málið verðið metið með vönd­uðum hætti af hálfu rík­is­ins, stærsta hlut­hafans, áður en nokkur afstaða er tekin til erindis Arion banka,“ segir á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Telur samrunann útilokaðan

Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og fyrrum efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, sagði í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun að nær úti­lokað að af sam­run­anum verði enda stóru bank­arnir þrír með yfir 90 pró­senta mark­aðs­hlut­deild. „Og að leyfa sam­runa þeirra er eig­in­lega bara úti­lokað. Það yrði hvergi leyft í Evrópu nema bein­línis að annar bank­inn væri á fallandi fæti.“

Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og fyrrum efna­hags- og við­skipta­ráð­herra.

Gylfi sagði að vissu­lega myndi sam­runi bank­anna fela í sér hag­ræð­ingu, enda sé íslensk banka­kerfi dýrt, með krónu sem gjald­miðil. Hins vegar sé ekki gefið að hag­ræð­ing myndi skila sér til neyt­enda. Þá sagði Gylfi að með sömu rökum og Arion færi fyrir þessu megi allt eins sam­eina alla við­skipta­bank­ana þrjá. 

Til að bregðast við ábendingum

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu um sölu hlutar rík­is­ins í Íslands­banka segir að vinna við und­ir­bún­ing­inn hafi staðið yfir und­an­farna mán­uði. Þar kemur fram að í und­ir­bún­ings­vinn­unni hafi komið fram sjón­ar­mið þess efnis að fyr­ir­komu­lag gild­andi laga um fram­kvæmd mark­aðs­setts útboðs geti dregið tals­vert úr áhuga erlendra fag­fjár­festa á þátt­töku. Þá þarfn­ist sum ákvæði ítar­legri útfærslu eða nán­ari skýr­inga til þess að auka líkur á því að útboðið gangi vel.

Tilefni frum­varps­ins og nauð­syn þess teng­ist fram komnum ábend­ingum um að núgild­andi lög skapi áhættu á því að rík­inu tak­ist ekki að ráð­stafa eign­ar­hlut sínum í Íslands­banka sökum þess að hlut­lægni hafi verið for­gangs­raðað um of á kostnað hag­kvæmni. Sölu­að­ilar telja óbreytt fyr­ir­komu­lag lík­legt til þess að bitna á þátt­töku erlendra fag­fjár­festa og skrið­þunga eft­ir­spurnar frá upp­hafi útboðs, en hvort tveggja er til þess fallið að stuðla að árang­urs­ríku og hag­kvæmu útboði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár