Yfirlýsing fólgin í nýju merki Áslaugar Örnu

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir kynnti nýtt merki, inn­blásið af fálk­anum í merki Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar hún bauð sig fram til for­manns um helg­ina. Graf­ískur hönn­uður segir merki for­manns­efn­is­ins benda til þess að verið sé að boða nýja tíma og breyt­ingar í flokknum.

Yfirlýsing fólgin í nýju merki Áslaugar Örnu
For­manns­efni Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir til­kynnti um for­manns­fram­boð sitt á sunnu­dag og afhjúpaði nýtt merki sitt. Mynd: Facebook

Á sunnu­dag­inn í síð­ustu viku steig Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir á svið í Sjálf­stæð­is­salnum við Aust­ur­völl. Þar tal­aði hún fyrir stórum hópi fólks og til­kynnti um fram­boð sitt til for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Fyrir utan Áslaugu hefur aðeins einn sóst opin­ber­lega eftir emb­ætt­inu, lista­mað­ur­inn Snorri Ásmunds­son. Vara­for­mað­ur­inn Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir hefur til­kynnt að hún muni ekki sækj­ast eftir því að verða arf­taki Bjarna Bene­dikts­sonar, sem hefur verið for­maður frá árinu 2009.

Á ekki að koma í stað fálkans

Svona lítur fálka­merki Sjálf­stæð­is­flokks­ins út.

Nokkra athygli vakti nýtt merki Áslaugar Örnu sem kynnt var á fund­inum. Það er inn­blásið af fálk­anum sem prýðir merki Sjálf­stæð­is­flokks­ins og var hannað fyrir þessa til­teknu kosn­inga­bar­áttu. Samkvæmt fram­boði Áslaugar Örnu var merkið unnið í sam­starfi nokk­urra aðila. 

Merki Áslaugar Örnu, inn­blásið af fálk­anum.

Þegar hún var spurð út í merkið á sunnu­dag­inn sagði Áslaug Arna í sam­tali við frétta­stofu Vísis og Stöðvar 2 að merkið væri ekki …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár