Um miðjan mánuðinn varð ég fertug. Algórithmi samfélagsmiðlanna er meðvitaður um þetta en hann reynir stöðugt að selja mér kortisól detox og einhver bætiefni fyrir hormónin. Með aðstoð miðlanna er líka búið að gera mér ljóst að í dag er megrun kölluð glow up. Á ozempic-tímum virðist jákvæð líkamsvirðing aftur orðin óþörf.
Ég hélt að ég myndi öðlast ákveðna hæfni með árunum. Að miðaldra fólk ætti að geta haldið utan um heimilisbókhaldið og vera með séreignarsparnað. Hafa möppur með dagsettum kvittunum inni í skáp í stað þess að hrúga þeim hér og þar. Vera kona með snyrtilegan bíl en ekki opinn ruslahaug sem börnin mín mylja sand og kex ofan í.
Það eru fleiri svið þar sem ég tel sjálfa mig hafa brugðist. Mér hefur ekki tekist að setja sjálfri mér fastan háttatíma. Ég skammast mín svo dögum skiptir ef ég segi eitthvað óvarlegt eða asnalegt. Ef ég er ein heima borða ég undantekningarlítið morgunkorn eða lakkrísreimar í kvöldmatinn.
„Í hvert sinn sem ég mæli mér mót við einhvern vona ég að viðkomandi afboði sig
En vísbendingarnar um aldur minn eru samt til staðar. Ég á pott úr steypujárni og skráði mig í maraþon. Ég fer helst aldrei út úr húsi að kvöldi til og í hvert sinn sem ég mæli mér mót við einhvern vona ég að viðkomandi afboði sig. Ég hef líka farið í kakó-seremóníu, áhættumat hjá Hjartavernd og er búin að fá boð í fyrstu brjóstaskoðunina.
Brostu, þú ert á lífi, sá ég skrifað á vegg nýverið. Það er ekki sjálfsagt að vakna næsta dag og áminningarnar um það verða því miður fleiri eftir því sem árunum fjölgar. En ég þvertek fyrir að eldast tignarlega. Ég ætla að eldast af offorsi og ófullkomnun. Keyrandi um á skítugum bíl með fjármálin í rugli og nýbúin að plana eitthvert ævintýri sem ég hafði ekki efni á. En vonandi búin að vinna í þessu með blóðsykurinn.
Athugasemdir