Söguleg stund í Danmörku

Þeir Danir sem sett­ust við sjón­varps­tækin klukkan sex á gaml­árs­dag sáu strax að eitt­hvað var breytt. Friðrik kon­ungur kom gang­andi inn í mót­töku­her­bergið, sett­ist við borð og hóf lest­ur­inn. Þetta var sögu­leg stund. Í fyrsta sinn sem nýr kon­ungur ávarp­aði dönsku þjóð­ina í nýársávarpi.

Þótt Danir hafi nokkur und­an­farin ár velt því fyrir sér hvort Margrét Þór­hildur, sem verður 85 ára í apríl næst­kom­andi, myndi afhenda syn­inum Friðrik krún­una þvertók hún lengi vel fyrir það. „Jeg bliver ind­til jeg falder af pinden“, ég verð þar til ég hrekk upp af, svar­aði hún ætíð þegar spurt var.

Margrét Þór­hildur var 32 ára þegar hún varð drottn­ing Dan­merkur. Faðir hennar, Friðrik IX, lést 14. jan­úar árið 1972 en hann hafði verið þjóð­höfð­ingi Dana frá árinu 1947. Margrét Þór­hildur gift­ist árið 1967 Frakk­anum Henri-Marie-Jean André, sem eftir gift­ing­una var ætíð nefndur Henrik prins. Þau eign­uð­ust tvo syni, Friðrik, sem er fæddur 26. maí 1968 og Jóakim, fæddur 7. júní 1969. Danir hafa alla tíð fylgst grannt með fjöl­skyld­unni á Amali­en­borg og smá­vægi­leg atvik orðið umfjöll­un­ar­efni fjöl­miðla. Af þeim bræðrum hefur athyglin einkum beinst að eldri syn­inum, rík­is­arf­anum Friðriki. 

Danir hafa alltaf haft mikið dálæti á drottn­ing­unni en eig­in­mað­ur­inn Henrik, sem lést í febr­úar 2018, var umdeild­ari. Þau Margrét Þór­hildur og Henrik höfðu mik­inn áhuga á mynd­list, tón­list og bók­menntum. Þann áhuga hefur Friðrik ekki erft í jafn­ríkum mæli en hann hefur þeim mun meiri áhuga á íþróttum og heilsu­rækt, sá áhugi er ekki frá for­eldr­unum kom­inn. Hann hefur líka mik­inn áhuga á dæg­ur­lagatón­list, einkum danskri. Friðrik er stjórn­mála­fræð­ingur að mennt en Jóakim lærði fyrst búvís­indi, hann lauk síðar námi frá École Militaire í París og er eini Daninn sem hefur lokið þar námi með hæstu próf­gráðu. Jóakim er nú sér­fræð­ingur við sendi­ráð Dan­merkur í Washington og á fjögur börn.

Hitti eiginkonuna Mary fyrst á Slip Inn barnum í Sydney

Á Ólymp­íu­leik­unum í Sydney í Ástralíu sum­arið 2000 brá Friðrik sér á Slip Inn bar­inn í borg­inni. Blaða­menn, sem ann­ars fylgd­ust vel með ferðum Friðriks, vissu ekki af þess­ari ferð á bar­inn og nög­uðu sig í hand­ar­bökin því þarna hitti Friðrik Mary Don­ald­son, til­von­andi eig­in­konu sína, í fyrsta sinn. Í októ­ber árið 2003 til­kynntu þau Mary og Friðrik trú­lofun sína, þá höfðu þau Margrét Þór­hildur og Henrik lagt blessun sína yfir ráða­hag­inn. Brúð­kaupið fór fram í Frú­ar­kirkj­unni í Kaup­manna­höfn 14. maí 2004.

Tók dönsku þjóðina með trompi

Mary krón­prinsessa, eins og hún var nefnd eftir brúð­kaupið, vann strax hug og hjörtu dönsku þjóð­ar­innar. Hún þykir aðlað­andi og alþýð­leg og náði fljótt góðum tökum á dönsk­unni. Þau Friðrik eiga fjögur börn, elstur er Christian, fæddur árið 2005.

Under bjælken og fimmtugsafmælið

Haustið 2017, þegar stutt var í fimm­tugs­af­mæli Friðriks, kom út bókin „Under bjæl­ken“. Bókin, sem rit­höf­und­ur­inn Jens Andersen skrif­aði, fjallar um Friðrik og er byggð á við­tölum við hann og marga sem til hans þekkja. Titill bók­ar­innar vísar til verk­efnis innan deildar hers­ins og Friðrik lýsti í bók­inni. Bókin þykir vel skrifuð og gagn­rýnendur sögðu hana bestu bók sem skrifuð hefði verið um fjöl­skyld­una á Amali­en­borg.

Í til­efni fimm­tugs­af­mælis Friðriks fjöll­uðu danskir fjöl­miðlar ítar­lega um ævi hans og störf. Ýmsir sem fylgj­ast grannt með lífi og starfi fjöl­skyld­unnar á Amali­en­borg, iðu­lega kall­aðir hirð­sér­fræð­ingar, voru sam­mála um að Friðrik hefði náð því sem þeir nefndu „kon­ungs­þroska“. Þeir voru líka sam­mála um að hann yrði öðru­vísi þjóð­höfð­ingi en móðir hans, með aðrar áherslur í ýmsum málum.

Nýársræður

Emb­ætt­is­störf danska þjóð­höfð­ingj­ans fylgja um margt ákveðnum reglum og venjum sem breyt­ast lítið ár frá ári. Það tæpa ár sem liðið er frá því að Friðrik tók við krún­unni hefur hann að mestu fylgt þeim venjum sem ríkt hafa. Einn hirð­sér­fræð­ingur sagði í við­tali um það leyti sem Friðrik tók við krún­unni að fátt myndi breyt­ast fyrr en kæmi að nýárs­ræð­unni. Margrét Þór­hildur flutti sín nýársá­vörp sitj­andi við borð í mót­töku­stofu sinni í höll Krist­jáns IX, þar sem hún hefur búið alla tíð, og býr enn. Nýársávarpið hefur ætíð verið sent út beint, í útvarpi og sjón­varpi, og drottn­ing lesið ræð­una af blöðum, en ekki not­ast við texta­vél. Drottn­ingin ræddi ætíð um það sem að hennar mati bar hæst á liðnu ári, í Danmörku, Græn­landi, Færeyjum og ann­ars staðar í heim­inum. Opin­berar heim­sóknir, utan lands og innan, nefndi hún ætíð og sömu­leiðis ein­stök mál­efni sem henni fannst ástæða til að nefna sér­stak­lega. Ræðan á gaml­árs­dag 2023 skar sig ekki úr að þessu leyti þangað til í lokin þegar hún til­kynnti að hún myndi láta af emb­ætti þjóð­höfð­ingja 14. jan­úar 2024, þá yrðu nákvæm­lega 50 ár frá því að hún varð þjóð­höfð­ingi Dan­merkur.

Ekki er ofmælt að þessi tíð­indi komu Dönum, og mörgum öðrum, í opna skjöldu. Þótt drottn­ingin sé komin á níræð­is­aldur og hefði fyrr á árinu geng­ist undir aðgerð á baki, eins og hún orð­aði það, áttu engir von á því að hún hygð­ist láta af emb­ætti. Þessi ákvörðun mætti hins vegar skiln­ingi þegn­anna, sem sögðu hana eðli­lega.

Nýársræða Friðriks

Þeir Danir sem sett­ust við sjón­varps­tækin klukkan sex á gaml­árs­dag sáu strax að eitt­hvað var breytt. Friðrik kon­ungur kom gang­andi inn í mót­töku­her­bergið í íbúð­ar­húsi fjöl­skyld­unnar á Amali­en­borg, höll Friðriks VIII, sett­ist við borð og hóf lest­ur­inn. Kon­ung­ur­inn hefur aldrei átt sér­lega auð­velt með að flytja óund­ir­búnar ræður eða ávörp, honum lætur betur að flytja fyrir fram skrif­aðan texta.

Friðrik byrj­aði á að nefna að kannski hefðu margir Danir verið áhyggju­fullir fyrir hans hönd og spurt hvort ein­hver annar en Margrét Þór­hildur gæti yfir­leitt flutt nýársávarpið. Hann las ræð­una af blöðum rétt eins og móðir hans hafði gert. Hann fór mörgum orðum um fjöl­skyld­una og þá breyt­ingu sem orðið hefði 14. jan­úar og nefndi að krón­prins­inn Christian, elsti sonur hans og Mary, hefði lokið fram­halds­skóla á árinu. Í fram­haldi gat hann um mik­il­vægi þess að hlusta á ung­dóm­inn og aðstoða þá sem lendi út af spor­inu við að rata á rétta braut. Kon­ung­ur­inn þakk­aði lands­mönnum fyrir þann hlý­hug sem þeir hefðu sýnt fjöl­skyld­unni í ferðum hennar um landið. Hann nefndi ánægju­legar heim­sóknir til danska minni­hlut­ans í Suður-Slésvík og sömu­leiðis heim­sókn til Græn­lands. Færeyjar væru á dag­skrá á þessu ári.

Royal Run

Kon­ung­ur­inn fór mörgum orðum um það mik­il­væga sjálf­boða­liða­starf sem unnið væri víða í land­inu og nefndi í því sam­bandi sér­stak­lega Royal Run, en þar störf­uðu um það bil 2.500 sjálf­boða­liðar á síð­asta ári. Royal Run varð til árið 2018 að und­ir­lagi Friðriks, í tengslum við fimm­tugs­af­mæli hans, og varð strax mjög vin­sælt. Það er haldið árlega, á annan í hvíta­sunnu, og fer næst fram 9. júní. Þá verður gengið, eða hlaupið, í fimm borgum í Danmörku, ein ensk míla (1,6 km), fimm eða tíu kíló­metrar. Þátt­tak­endur þurfa að skrá sig, en nefna má að löngu er upp­selt, ef svo má að orði kom­ast, í hlaupið á þessu ári, en alls voru 97.500 pláss í boði. Hlaupið er hvorki keppnis- né fjár­öfl­un­ar­hlaup, til­gang­ur­inn er ein­ungis að hvetja almenn­ing til hreyf­ingar. Kon­ungs­fjöl­skyldan hefur ætíð tekið þátt í hlaup­inu og þar fer Friðrik fremstur í flokki og tók á síð­asta ári þátt á þremur stöðum í land­inu. Royal Run er orðið að föstum lið í dönsku þjóð­lífi og í margra augum eins konar þjóð­há­tíð.  

Hvernig tókst konunginum upp?

Eftir á voru hirð­sér­fræð­ingar og aðrir sam­mála um að kóng­inum hefði tek­ist vel upp. Hann hefði verið öruggur og ræðan vel gerð. Hann hefði farið mörgum orðum um fjöl­skyld­una, minnst á dökkt útlit í heims­mál­unum og nauð­syn þess að Evrópa standi saman.

Sér­fræð­ing­arnir voru líka sam­mála um að nýársávarpið 2025 yrði með allt öðru sniði.

Kon­ung­ur­inn lauk nýársávarp­inu á sömu orðum og móðir hans gerði ætíð: Gud bevare Danmark.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SFG
    Sveinn Flóki Guðmundsson skrifaði
    vefslóð á upptöku af umræddu nýársávarpi á vef DR: https://www.dr.dk/lyd/p1/kongens-nytaarstale-2145132629000
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár