Lögreglan mætti með látum en hafði ekki lagagrundvöll til þess að innsigla áfengisverslun

Lög­reglan hugð­ist inn­sigla Nýju Vín­búð­ina en þurfti frá að hverfa út af of óljósum lögum. Eigandi net­versl­un­ar­innar vill meira sam­ráð.

Lögreglan mætti með látum en hafði ekki lagagrundvöll til þess að innsigla áfengisverslun
Versl­an­irnar selja áfengi í gegnum erlendar vef­síður og afhenda á Íslandi. Lag­ara­mm­inn í kringum þetta er svo óljós að lög­reglan þurfti frá að hverfa eftir að hafa ætlað að inn­sigla slíka verslun. Mynd: Shutterstock

Lög­reglan hafði afskipti af netá­feng­is­sölu um jólin og hugð­ist inn­sigla í það minnsta eina net­verslun vegna þess að versl­unin afhenti áfengi á helgidegi.

Eigandi versl­un­ar­innar, Sverrir Einar Eiríks­son, sendi frá sér yfir­lýs­ingu af þessum ástæðum, og sagð­ist lýsa yfir mik­illi undrun og von­brigðum vegna aðgerða lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, „sem beindi því til okkar að loka fyrir afhend­ingu víns á helgi­dögum. Aðgerðir lög­regl­unnar eru byggðar á rangri túlkun á áfeng­is­lögum og brjóta gegn rétt­indum okkar sem rekstr­ar­að­ila í lög­mætri net­verslun,“ sagði enn fremur í til­kynn­ing­unni.

Mættu með látum

Lögmaður Nýju vín­búð­ar­innar, Sveinn Andri Sveins­son, sagði í sam­tali við Heim­ild­ina að lög­reglan hefði mætt á öðrum í jólum á afhend­ing­ar­stað versl­un­ar­innar. Lög­reglan hugð­ist þá stöðva alla net­sölu og inn­sigla versl­un­ina þar sem ólög­mætt er að selja áfengi yfir helgi­dag­ana.

„Þeir komu þarna með látum, en við bentum þeim auð­vitað á það væri ekki verið að selja áfengi á jóla­degi, heldur afhenda net­pant­anir,“ útskýrir Sveinn Andri. Lög­reglan hvarf frá aðgerðum sínum en beindi því engu að síður til versl­un­ar­innar að sam­kvæmt lögum væri óheim­ilt að afhenda vín á helgi­dögum. Nokkuð sem Sverrir Einar er ósam­mála.

Óljós lagarammi

Laga­grund­völlur varð­andi net­sölu á áfengi er afar óljós eins og greint hefur verið frá. Versl­an­irnar bjóða upp á vef­verslun með áfengi sem er stað­sett í öðru landi, og þannig heyrir salan undir lög EES um áfeng­is­sölu.

Áfeng­is­verslun rík­is­ins (ÁTVR) hefur að öðru leyti einka­leyfi á sölu og afhend­ingu áfengis á Íslandi. Af þessum sökum höfð­aði ríkið mál fyrir þremur árum til að stöðva þessa starf­semi en því var vísað frá hér­aðs­dómi án efn­is­legrar með­ferðar sem varð til þess að all­nokkrar versl­anir spruttu upp. Nokkur tíma­mót urðu svo þegar Hagkaup opna sína eigin áfeng­is­net­verslun nú í haust.

Hitamál á meðal stjórnmálamanna

Málið hefur valdið deilum í stjórn­málum einnig, en Sigurður Ingi Jóhanns­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, beindi þeim til­mælum til lög­reglu fyrr á árinu að fullrann­saka kærur sem beindust að net­sölu áfengis. Málin voru í með­ferð lög­reglu í á fjórða ár, en rann­sókn­inni lauk svo loks­ins í haust. Aðstoð­ar­lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Margrét Kristín Páls­dóttir, gagn­rýndi ráð­herr­ann harka­lega vegna máls­ins og sagði afskipti hans ekki til fyr­ir­myndar í rétt­ar­ríki.

Gerðu ekki athugasemdir við öll fyrirtækin

Lög­reglan gerði einnig athuga­semdir við starf­semi Smá­rík­is­ins, en for­svars­maður fyr­ir­tæk­is­ins svar­aði ekki fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar þegar haft var sam­band við hann.

Lög­reglan fór ekki í sams­konar aðgerðir gegn Santé, sem einnig starf­rækir vef­verslun með áfengi.

Sverrir Einar segir í til­kynn­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla að hann telji aðgerð lög­reglu sýna fram á mik­il­vægi þess að lög­reglu­að­gerðir sem þessar séu byggðar á traustum laga­grund­velli og fari fram í sam­ráði við hags­muna­að­ila.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Tómas Maríuson skrifaði
    28. desember 2024 11:36
    Nú, ef það snýst um það, hvenær varan var KEYPT (og ekki hvenær hún var sótt á afhendingarstað), þá er rökrétta ályktun sú að það er lögbrot að hafa sölusíðuna á neti opna á helgidögum.
    3
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Áfengisverslun Ríkisins á ein að selja áfengi, en ekki einhverjir aðilar úti í bæ !
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár