Við nálgumst borgina. Fyrstu rómantísku tónar ferðarinnar óma í formi stingandi bremsuhljóða þegar lestin hægir á sér við brautarpallinn á Gare du Nord. Sveittar og þreyttar dröslum við sjálfum okkur og farangri upp óþarflega marga stiga áður en sólin býður okkur formlega velkomnar. Velkomnar í borg ástarinnar.
Fyrsta verk: Finna klósett. Annað verk: Finna út í hvaða átt norður snýr. Og, ástin mín, varstu ekki örugglega búin að hlaða niður Uber, Bolt, Lime og strætóappinu? Er best að skila farangrinum af okkur núna eða viltu taka fyrsta bollann hér í grenndinni?
Eftir lauslegt gúgl komum við okkur fyrir á kaffihúsi nálægt Palais Garnier en sjáum strax eftir að hafa ekki valið staðinn sem við sáum fyrst. Tripadvisor hefur ekki alltaf rétt fyrir sér.
Við bergmál bílflautunnar plönum við okkar næstu skref. Við getum annaðhvort tekið trammann að Effelturninum í kvöld eða sparað okkur tíma og tekið Louvre og Notre Dame í einni ferð. Þar í grenndinni á líka að vera einhver önnur merkileg bygging sem ég man ekki alveg heitið á núna. Eflaust er sami ástarbrími yfir henni og þeim hinum.
„Eftir dýrt kaffi, langar raðir, og misvel lyktandi stræti kveðjum við borg ástarinnar“
Ekkert stórvirkjanna verður þó fyrir valinu. Eftir langan ferðadag er best að safna kröftum fyrir næstu tvo daga og taka því rólega í kvöld. Við tökum lestina í vitlausa átt en að lokum skilar 30 evra Bolt-ferð okkur í herbergið sem við fundum í flýti á Airbnb. Allt við það herbergi stangast á við væntingar okkar en við látum aðstæður ekki á okkur fá. Við erum komnar hingað til að upplifa rómantíkina sem okkur var lofað. Best væri ef við næðum að fanga eitthvað af þeirri rómantík á filmu til sönnunar.
Eftir dýrt kaffi, langar raðir, og misvel lyktandi stræti kveðjum við borg ástarinnar og tökum lestina aftur heim til Belgíu.
Ég held við höfum aldrei verið ástfangnari.
Athugasemdir