Erfitt ár fyrir sitjandi ríkisstjórnarflokka

Eftir alþing­is­kosn­ing­arnar bætt­ist Ísland við á heldur langan lista ríkja þar sem rík­is­stjórn­ar­flokkar biðu afhroð í kosn­ingum á einu stærsta kosn­inga­ári í manna minnum. Sér­fræð­ingar og álits­gjafar hafa að und­an­förnu velt vöngum yfir þess­ari þróun og telja sumir verð­bólgu og óánægju með efna­hags­mál í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins hafa hrundið af stað þess­ari alþjóð­legu þróun. Stjórn­mála­fræð­ingur sem Heim­ildin tók tali segir nýliðnar kosn­ingar ekki skera sig úr í sögu­legu sam­hengi.

Erfitt ár fyrir sitjandi ríkisstjórnarflokka
Frá­far­andi rík­is­stjórn Bætist við á langan lista rík­is­stjórna sem hafa beðið mikla ósigra víða um heim. Mynd: Golli

Ein skýrasta nið­ur­staða nýaf­stað­inna alþing­is­kosn­inga var sú að kjós­endur höfn­uðu rík­is­stjórn­ar­flokk­unum, Sjálf­stæð­is­flokki, Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokknum, sem höfðu setið saman í stjórn í sjö ár.

Þar með bæt­ist Ísland á lista sem nær yfir ansi stóran og fjöl­breyttan hóp ríkja þar sem sitj­andi vald­höfum hefur verið refsað af kjós­endum. Á þessu mikla kosn­inga­ári, þar sem rúmur helm­ingur jarð­ar­búa hefur gengið til kosn­inga, hafa rík­is­stjórn­ar­flokkar víða um heim beðið ósigur í kosn­ingum.

Hlutfall rík­is­stjórna sem fengið hafa dræma kosn­ingu á árinu er óvenju hátt. Frétta­miðlar og sér­fræð­ingar víðs vegar að hafa fyrir vikið velt fyrir sér hvort um alþjóð­lega þróun sé að ræða. Hafa sumir sér­fræð­ingar og álits­gjafar full­yrt að slakt gengi vald­hafa í kosn­ingum eigi rætur að rekja til þrá­látrar verð­bólgu og hag­sveiflna í kjöl­far heims­far­ald­urs og átaka sem geisa víða um heim.   

Agnar Freyr Helgason, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla ÍslandsSegir umræðu …
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár