Halla boðar Kristrúnu aftur á Bessastaði

Forseti Íslands hefur boðað for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar á fund sinn klukkan 10 í dag. Telja má lík­legt að Halla Tóm­as­dóttir veiti Kristrúnu Frosta­dóttur þar stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð.

Halla boðar Kristrúnu aftur á Bessastaði
Kristrún var fyrsti for­mað­ur­inn sem fór á fund Höllu í gær, en Sam­fylk­ingin er stærsti flokk­ur­inn eftir kosn­ingar. Mynd: Golli

Forseti Íslands, Halla Tóm­as­dóttir, hefur boðað Kristrúnu Frosta­dóttur, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar til fundar við sig á Bessa­stöðum í dag, þriðju­dag­inn 3. des­em­ber, kl. 10:00.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu.

Í gær fund­aði Halla með for­mönnum þeirra flokka sem náðu mönnum inn á þing. Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, lögðu það bæði til við for­set­ann að Kristrún fengi umboð til stjórn­ar­mynd­unar. Sam­fylk­ingin er nú stærsti flokk­ur­inn á alþingi, með 15 þing­menn og 20,8 pró­sent atkvæða.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, mælti einnig með því að Kristrún fengi umboðið en hún sagði að sam­band þeirra tveggja væri mjög gott. „Við ætl­um að reyna von­andi að mynda sterka og sam­henta rík­is­stjórn,“ sagði Þor­gerður Katrín eftir fund sinn með for­set­anum í gær. 

Með hlið­sjón af þessum ummælum Þor­gerðar Katrínar mætti leiða að því líkur að fyrst verði reynt að mynda rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins. En Kristrún hefur áður svo gott sem úti­lokað sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokki og Mið­flokki, sem ann­ars gætu komið í stað Flokks fólks­ins í mögu­legri rík­is­stjórn­ar­myndun.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í sam­tali við fjöl­miðla á Bessa­stöðum að hann væri ekki á leið­inni í rík­is­stjórn. Ákallið væri um stjórn Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins.

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og stofn­andi Við­reisnar, spáði í spilin um mögu­legar meiri­hluta­stjórnir á Facebook í gær. Þar sagði hann að mjög ólík­legt sé að Sam­fylk­ingin eða Viðreisn muni vilja starfa með Mið­flokknum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár