Samherjafjölskyldan stækkar hlut sinn í Högum

Fjár­fest­inga­fé­lag sem er í eigu Sam­herj­a­fjöl­skyld­unnar hefur aukið við hlut sinn í Högum, sem reka Bónus, Hagkaup, Olís og fleiri versl­anir.

Samherjafjölskyldan stækkar hlut sinn í Högum
Þor­steinn Már Bald­vins­son Á nú rúm­lega 2% hlut í Bónus, Hagkaup, Olís, Eldum rétt og fleirum. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Félag í eigu Þor­steins Más Bald­vins­sonar og fleiri sem tengj­ast útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja hefur stækkað við hlut sinn í versl­un­ar­ris­anum Högum. 

Tilkynnt var um við­skiptin til Kaup­hall­ar­innar í dag, vegna þess að stjórn­ar­for­maður Haga, Eiríkur S. Jóhanns­son, er jafn­framt for­stjóri fjár­fest­inga­fé­lags­ins Kaldbaks, sem fram­kvæmir kaupin. Eftir við­skiptin er Kald­bakur með 8,13% hlut í Högum og er þar langstærsti einka­fjár­festir­inn, en 10 af 11 stærstu hlut­höf­unum eru líf­eyr­is­sjóðir. Í dag keypti Kald­bakur 4 millj­ónir hluta á 400 millj­ónir króna og á sam­tals 90 millj­ónir hluta.

Þor­steinn Már Bald­vins­son á fjórð­ungs­hlut í Kaldbak í gegnum önnur félög, en fyr­ver­andi eig­in­kona hans á rétt tæp­lega fjórð­ung. Aðrir stærstu eig­endur eru börn Krist­jáns Vil­helms­sonar, sem eiga hátt í helm­ing á móti þeim tveimur.

Meðal félaga sem Kald­bakur á að fullu er Katt­ar­nef ehf, sem átti ríf­lega 18% hlut í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, áður en það færði hlut­inn yfir til félags í eigu Eyþórs Arnalds, fyrr­ver­andi odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, í fléttu sem fól í sér afskrift láns gegn kaup­unum.

Umsvif Þor­steins Más Bald­vins­sonar í íslensku við­skipta­lífi eru ekki tak­mörkuð við Kaldbak. Samtals ráða tvö eign­ar­halds­fé­lög í eigu Þor­steins Más og Helgu S. Guð­munds­dóttur, fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, 79 millj­örðum króna í árs­lok 2023.

Hag­ar er eig­andi Bón­uss, Hag­kaupa, Olís, Eld­um Rétt, Aðfanga, Banana, Stór­kaupa og Zöru.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Á nokkuð að hækka auðlindagjöldin? Ekki er Viðreisn með því.
    Á þetta Samherjafyrirtæki orðið hlut í öllum stærstu matvöruverslunum landsins,
    nema Krónunni?
    1
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Það er kominn tími á byltingu. Samþjöppun auðs á þessa fjölskyldu og örfáar aðrar er ógnvænleg. Spurning hvort einhver flötur sé á að kæra þetta fólk fyrir fjölþjóðlegum dómstólum. Hér þekkja allir alla og óhægt um vik.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár