Dæmd fyrir að bana sjúklingi sínum

Steina Árna­dóttir hefur verið dæmd fyrir að bana sjúk­lingi sínum.

Dæmd fyrir að bana sjúklingi sínum
Steina Árna­dóttir hefur þurft að sækja sér aðstoð vegna geð­rænna veik­inda eftir atvikið.

Steina Árna­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur, var í morgun dæmd sek fyrir sinn þátt í and­láti sjúk­lings á geð­deild Land­spít­al­ans sum­arið 2021. Steinu er þó ekki gerð nein refs­ing. Þetta kemur fram á vef Morg­un­blaðs­ins.

Dómurinn var kveð­inn upp í morgun og er Steinu gert að greiða dán­ar­búi Guðrúnar Sig­urð­ar­dóttur um 2,7 millj­ónir króna auk vaxta. Refsingu Steinu er frestað í tvö ár og fellur niður haldi hún almennt skil­orð.

Steina var sýknuð í fyrstu máls­með­ferð en Lands­réttur lagði það fyrir hér­aðs­dóm að rétta aftur í mál­inu þar sem dóm­ur­inn taldi að það hefði ekki reynt á fleiri laga­á­kvæði þegar kom að verkn­að­inum.

Steina neyddi tvo nær­ing­ar­drykki ofan í kon­unnar sem varð til þess að hún lést.

Dómur hefur ekki verið birtur á vef dóm­stól­anna.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár