Harmleikur á deild 33A

Steina Árna­dóttir sat aftur í rétt­ar­sal í dag vegna ákæru um að hafa orðið sjúk­lingi á geð­deild að bana. Sam­starfs­konur hennar voru við­staddar þegar konan dó, og lýsa aðstæðum með afar ólíkum hætti en Steina. Ein þeirra er með áfallastreitu og atvikið hefur haft víð­tæk áhrif á líf hennar.

Harmleikur á deild 33A
Steina Árna­dóttir upp­lýsti að hún væri með brjóstakrabba­mein og væri á geð­deild. Ekki sem starfs­maður, heldur sem sjúk­lingur.

Rétt­ar­höld yfir Steinu Árna­dóttur, hjúkr­un­ar­fræð­ingi, voru end­ur­tekin í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Hún var sýknuð af því að hafa svipt and­lega veika konu, sem lá á geð­deild Land­spít­al­ans, lífi. Það á hún að hafa gert með því að neyða ofan í hana nær­ing­ar­drykkjum sem leiddu til and­láts kon­unnar. Lands­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að það þyrfti að end­ur­taka máls­með­ferð­ina í heild sinni. Steina var ákærð ann­ars vegar fyrir alvar­lega lík­ams­árás sem leiddi til dauða kon­unnar, sem hún var sýknuð af sum­arið 2023. Hún var einnig ákærð fyrir mann­dráp af gáleysi. Hér­aðs­dómur sýkn­aði hana sjálf­krafa af þeirri sök, þar sem hún var sýknuð af fyrri liðnum, en Lands­réttur taldi að það þyrfti að úrskurða sér­stak­lega í þeim lið.

Það var því þungur dagur sem beið þeirra sem kom að mál­inu í dag. Máls­að­ilar þurftu að rifja upp erf­iðar minn­ingar, sumir báru með sér erf­iða áfallastreitu á meðan Steina sagð­ist á …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Að gera mistök er það mannlegasta af öllu sem gerir okkur menn
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár