Sögulegur ósigur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks

Bæði Sjálf­stæðs­flokk­ur­inn og Framsókn fengu skell í kosn­ing­unum og hafa ekki fengið svo laka útkomu nokk­urn­tím­ann.

Sögulegur ósigur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks
Leið­togar stjórn­mála­flokk­anna brugð­ust við nið­ur­stöðum kosn­ing­anna í nótt. Þar var Bjarni nokkuð bjart­sýnn en Sigurður Ingi sagði flokks­ins bíða sam­tal um nið­ur­stöðu kosn­ing­anna. Mynd: Golli

Sögu­legur ósigur Sjálf­stæð­is­flokks­ins er orð­inn að stað­reynd. Flokk­ur­inn mælist með undir tutt­ugu pró­senta fylgi eftir að taln­ingu er að mestu lokið. Það er versti árangur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sög­unni. Lægst hefur flokk­ur­inn farið í 23,7 pró­sent árið 2009, rétt eftir hrun. Flokk­ur­inn nær núna fjórtán þing­mönnum og missir tvo. Flokk­ur­inn er umtals­vert hærri en kann­anir spáðu fyrir um lengst af.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fer einnig niður í sögu­legar lægðir í fylgi sínu og mælist með 7,2 pró­sent og fimm þing­menn. Það er versti árangur flokks­ins, en lægst fór hann árið 2017 í um tíu pró­sent. Jöfn­un­ar­manna-hringekjan varð til þess að Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður flokks­ins, er fall­inn af þingi.

Á pari við hrun vinstri stjórnarinnar

Stjórn­ar­flokk­arnir bíða afhroð og hefur ekki slíkur ósigur sést síðan vinstri stjórnin fór frá í kjölsogi hruns­ins árið 2013. Alls missti stjórnin nú átján þing­sæti. Sam­an­lagt, eins og tölur standa nú, misstu stjórn­ar­flokk­arnir um 25 pró­sent af fylgi sínu. Stuðn­ings­menn Fram­sóknar og VG voru óvægnir og svo virð­ist sem þeir tveir flokkar hafi tekið á sig helstu von­brigði stuðn­ings­manna sinna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir tæp­lega fimm pró­sent af fylgi sínu á meðan hinir flokk­arnir tveir missa tíu pró­sent hvor.

Stórsigur Samfylkingarinnar

VG og Píratar eru fallnir af Alþingi. Þá er fylgi VG svo lágt eins og sakir standa að það stefnir í að flokk­ur­inn nái ekki 2,5 pró­sentu mark­inu, sem er lág­mark til þess að hljóta styrk úr rík­is­sjóði.

Á móti áttu Sam­fylk­ingin, Viðreisn og Flokkur fólks­ins stór­sigur. Mið­flokk­ur­inn upp­skar ekki eins og hann sáði í skoð­ana­könn­unum þar sem hann fórst hæst upp í sautján pró­sent. Flokks­menn Mið­flokks­ins geta þó ekki kvartað þar sem þeir bættu við sig rétt tæpum sex pró­sentum og eru nú með átta þing­menn en voru aðeins með tvo.

Sam­fylk­ingin er á svip­uðu róli og skoð­ana­kann­anir sýndu og fær 21,8 pró­sent sam­kvæmt spá Heim­ild­ar­innar og mun bæta við sig níu þing­mönnum. Alls er flokk­ur­inn með fimmtán þing­menn.

Viðreisn er með ell­efu þing­menn og rétt tæp­lega 16 pró­senta fylgi.

Fáir valmöguleikar fyrir stjórnarmyndun

Þegar kemur að myndun meiri­hluta er ljóst eins og sakir standa að Framsókn, Viðreisn og Sam­fylk­ing geta ekki myndað með sér meiri­hluta. Þau vantar einn mann upp á. Flokkur fólks­ins, Sam­fylk­ingin og Viðreisn geta myndað nokkuð sterkan meiri­hluta, eða 36 þing­manna rík­is­stjórn. Önnur mynstur eru mögu­leg en virð­ast ólík­legri út frá nið­ur­stöðum kosn­ing­anna.



Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár