„Spilltur gjörningur“ að semja um afgreiðslu hvalveiðileyfis fyrir fram

Haukur Arn­þórs­son stjórn­sýslu­fræð­ingur telur það spilltan gjörn­ing sem varði við stjórn­sýslu­lög hafi verið samið um stjórn­sýslu­á­kvörðun um veit­ingu hval­veiði­leyfis fyrir fram. Hann telur að ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins muni ekki geta veitt hval­veiði­leyfi fyrir kosn­ing­arnar 30. nóv­em­ber.

„Spilltur gjörningur“ að semja um afgreiðslu hvalveiðileyfis fyrir fram

„Það að semja um afgreiðslu stjórn­sýslu­máls fyrir fram er mjög alvar­legt – er spilltur gjörn­ingur – og varðar við a.m.k. stjórn­sýslu­lög, en vænt­an­lega fleiri laga­reglur.“

Þetta skrif­aði stjórn­sýslu­fræð­ing­ur­inn Haukur Arn­þórs­son í færslu á Facebook fyrr í dag. Hann segir að hafi Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra samið um stjórn­sýslu­á­kvörðun um hval­veiði­leyfi fyrir fram til að halda ein­ingu innan flokks síns, nefni­lega að Jón Gunn­ars­son yrði í fimmta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sé það mjög alvar­legt.

Stjórn­sýslu­fræð­ing­ur­inn tjáði sig bæði um málið á Facebook og í sam­tali við Heim­ild­ina. 

„Ég tel að þetta mál gæti hindrað Sjálf­stæð­is­flokk­inn í að veita hval­veiði­leyfi. Hann þarf eig­in­lega að sanna að slík ákvörðun sé for­svar­an­leg. Ef um er að ræða að hags­munir flokks­ins standi til þess að taka til­tekna ákvörðun þá er hún ekki for­svar­an­leg,“ segir Haukur við Heim­ild­ina.

Plat og leyni­legar upp­tökur

Málið sem um ræðir teng­ist leyni­legum upp­tökum af sam­tölum Gunnars Berg­manns …

Kjósa
64
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er eins og þetta alltsaman snúist meira um greindarvísitölu og siðferði en nokkuð annað, þegar að tryggir stuðningsmenn flokksins sjá ekki skóginn fyrir trjánum.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Er þetta ekki einfaldlega birtingarmynd landlægrar pólitískrar spillingar á Íslandi? Væri fróðlegt að vita hverjir kostuðu þessa svikahrappa, sem göbbuðu aumingja Jónsson.
    6
    • GG
      Guðmundur Guðmundsson skrifaði
      Mér finnst sérkennilegt að bregðast við upplýsingum um svívirðilega spillingu forsætisráðherra og fyrrverandi dómsmálaráðherra með því að gera lítið úr málinu. "...einfaldlega","hverjir kostuðu", "aumingja Jónsson". Þetta er EKKI léttvægt mál!
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár