Slá samstarf ekki út af borðinu

Snorri Másson, sem sæk­ist eftir odd­vita­sæti hjá Mið­flokknum og Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segj­ast ekki reiðu­búnir að slá hugs­an­legt sam­starf á milli flokk­anna tveggja af borð­inu. Snorri og Jóhann Páll mættu í Pressu ásamt Lenyu Rún Taha Karim, odd­vita Pírata í Reykja­vík, til þess að ræða áherslur sínar og stefnur í aðdrag­anda kosn­inga. Lenya Rún taldi ólík­legt að Píratar gætu myndað stjórn með Mið­flokknum.

Góðir vinir Þrátt fyrir að vera sitt hvoru megin á hinu pólitíska litrófi voru Snorri Másson og Jóhann Páll Jóhannsson ekki reiðubúnir að slá hugsanlegt ríkisstjórnarsamstarf af borðinu. Lenya Rún taldi hins vegar samstarf með Miðflokknum afar ólíklegt.

Þrátt fyrir að aðhyll­ast gjör­ó­líkar stefnur á mörgum af mik­il­væg­ustu sviðum stjórn­mál­anna voru Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Snorri Másson, sem sæk­ist eftir odd­vita­sæti í Mið­flokknum, ekki reiðu­búnir að slá af borð­inu hugs­an­legt rík­is­stjórn­ar­sam­starf að kosn­ingum loknum.

Í nýjasta þætti Pressu mættu Jóhann og Snorri ásamt Lenyu Rún Taha Karim, vara­þing­manni og odd­vita Pírata í Reykja­vík norður, til þess að ræða stefnur og áherslur gagn­vart ýmsum mála­flokkum sem brenna á vörum lands­manna í aðdrag­anda kosn­inga.

Eftir að hafa rætt um rík­is­fjár­mál, hús­næð­is­mál, barna­bætur og leik­skóla­mál voru gestir að lokum spurðir hvort þeir sæju fyrir sér að vinna með hverjum öðrum í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Lenya Rún taldi það vera óger­legt fyrir Pírata að semja um stjórn­ar­sátt­mála við Mið­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Of snemmt til að segja

Spurður hvort hann sæi fyrir sér að mynda rík­is­stjórn með Pírötum eða Sam­fylk­ing­unni sagð­ist Snorri ekki hafa umboð til þess hafa áhrif á slíkar ákvarð­anir.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár