Fyllist „rosalegum vanmætti“ yfir fasteignamarkaðinum

Ein­stæður faðir á fer­tugs­aldri segir að honum líði eins og hann þyrfti að vinna í lottó til að geta keypt litla íbúð í nágrenni við barns­móður sína og leik­skóla dótt­ur­innar í Vesturbæ Reykja­víkur. Í dag er Ragnar Ágúst Nathana­els­son á stúd­enta­görðum í Vatns­mýr­inni en þegar nám­inu lýkur virð­ist blasa við honum fremur erfið staða.

Fyllist „rosalegum vanmætti“ yfir fasteignamarkaðinum
Fast­eigna­mál Ragnar vill helst vera í Vest­ur­bænum, þar sem dóttir hans gengur á leik­skóla og barns­móðir hans býr. Það er ekki fyrir hvern sem er að kaupa sína fyrstu eign þar í dag. Mynd: Golli

Ragnar Ágúst Nathana­els­son er ein­stæður faðir, í fram­halds­námi í bók­mennta­fræði við Háskóla Íslands. Hann býr á stúd­enta­görðum við Háskóla Íslands, sem hentar vel þar sem barns­móðir hans býr í Vest­ur­bænum og dóttirin er þar á leik­skóla. 

„Besta leigan í Reykja­vík,“ eins og Ragnar kallar hana, er hins vegar ein­ungis í boði fyrir stúd­enta eins og hann sjálfan. Og hann ætlar ekki að vera enda­laust í námi, en sam­kvæmt áætlun verður hann tvö og hálft ár til við­bótar í skóla, en eftir bók­mennta­fræð­ina hyggst hann taka árs við­bót­ar­nám til kennslu­rétt­inda.

Ragnar, sem er mörgum les­endum eflaust vel kunnur sem körfu­bolta­maður, seg­ist ekki ná að vinna mikið með nám­inu, en hann spilar körfu­bolta með upp­eld­is­fé­lagi sínu, Hamri í Hvera­gerði. Það sé því tak­markað sem hann nái að leggja til hliðar á mán­uði og spari­reikn­ing­ur­inn fitnar ekki nægi­lega hratt til að halda í við íbúða­verðið.

„Íbúð­irnar verða dýr­ari og dýr­ari,“ …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Pétur Thormar skrifaði
    Biblían og Brian Tracy virka alltaf vel í svona töff aðstæðum,,,,,,,https://www.briantracy.com/catalog/the-psychology-of-achievement?srsltid=AfmBOopicIvXisEX3ySZfDPXa_GUGxGI2cpqEwX8E-Vzz5GbmwjCWTDR
    0
  • Pétur Thormar skrifaði
    Af hverju er ekki búseta kerfið stækkað???
    0
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    Fráfarandi ríkisstjórn gerði nær ekkert.
    Píratar eru með lausnir sem hafa ekki komist áfram með því þeir eru í minnihluta.
    https://bjornlevi.is/posts/2024-03-22-ld-hsnis
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Það þarf að banna leigu á íbúðum til ferðamanna nema ef um sé að ræða íbúðir sem menn búa ekki í tímabundið vegna fjarveru. Einnig væri í lagi að leigja út einstök herbergi í íbúðum sem eigendur búa í.
    Með þessum hætti myndu íbúðum til langtímaleigu eða sölu fjölga mikið. Við það myndi skortur á íbúðum snarminnka eða hverfa og leiga og söluverð lækka vegna aukins framboðs.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Það var ekkert létt að kaupa eða byggja íbúð fyrir 60-70 árum síðan á lágum launum.
    Ég spyr mig oft, af hverju var byggingarsjóður verkamanna lagður niður um síðustu aldamót?
    Það réðu allir við þær íbúðir, en ríkissjóður tímdi ekki að leggja lengur fé í þetta mikilvæga félag.
    2
    • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
      það er nefnilega spurning aldarinnar. Framsóknarflokkurinn lagði hann niður og það er skandall.
      0
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Hvað er til ráða kann einhver að spyrja? Það vantar ekki að byggingariðnaðurinn sé á útopnu, eins og enginn sé morgundagurinn. En ef betur er gáð þá eru þetta mest hótel og gistiheimili sem verið er að byggja, já og íbúðarhúsnæði sem jafnóðum er leigt í AirBnb eða breytt í gistiheimili. Aðeins fáeinar íbúðir fara í sölu eða leigu til ungs fólks sem er að byrja búskap, það borgar sig einfaldlega ekki að byggja fyrir þann markað, ferðabransinn borgar miklu betur. Og íbúum Íslands hefur fjölgað um ca 10 þúsund íbúa á ári undanfarinn ár, mest erlendir ríkisborgarar komnir hingað til að vinna í ferðabransanum og tengdum greinum, t.d. við byggingu hótela. Einungis er byggt nýtt húsnæði yfir lítinn hluta þessa fjölda á hverju ári. Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun segist aðspurð ekki hafa hugmynd hvar allt þetta fólk býr. En þið sjáið það stundum í Kveiksþáttunum. Mig grunar að lækkun vaxta mun ekki breyta miklu fyrir fyrstu kaupendur, verðið mun bara einfaldlega snarhækka því íbúðum í byggingu mun fjölga mjög hægt og ferðabransinn mun áfram taka til sín mestallt byggingarmagnið. Eina raunhæfa lausnin til langframa er því að hægja á stjórnlausri þenslu ferðabransans. Ferðabransinn hér hefur undanfarinn áratug vaxið meir en fimmfalt hraðar en í nokkru öðru norður Evrópulandi og kvarta þau lönd samt sum hver undan örum vexti ferðaþjónustunnar. Í samanburðarlöndunum eru fólk með smá viðskiptavit við stjórnvölin. Hér er allt gert til að magna upp stjórnlausan vöxt ferðabransans, afsláttur af VSK, lítið gistináttagjald, nær ekkert eftirlit með AirBnb eða fjölgun gistiheimila. Engin áform um skattlagningu á millilandaflug líkt og fyrirhugað er víða erlendis. Allt gæti þetta skilað tugum milljarða í ríkiskassann. Í mikillli eftirspurn ferðabransans eins og í dag, þá er það í reynd afkastageta Keflavíkurflugvallar sem ræður mestu um fjölda ferðamanna. Þar ræður ISAVIA (í ríkiseigu) ríkjum og fjárfestir gríðarlega í stækkun vallarins með stuðningi ríkissjóðs. Framkvæmdir sem má næstum jafna við Borgarlínuna. Hagnaður nær enginn af rekstrinum. Engin nágrannaþjóð mundi haga sér með þessum glórulausa hætti. Og árangurinn er sá helstur að leggja marga helstu innviði þjóðarinnar á hliðina með túrisma að vopni.
    4
  • AH
    Atli Hermannsson skrifaði
    Ég er ekki hissa þó ungt fólk eins og Ragnar sem ekki hefur sterkt bakland fyllist vanmætti. Það eru komin 46 ár síðan ég kaupi mína fyrstu íbúð sem var pínu- lítil efrihæð í Kleppsholtinu. Við áttum sparimerki sem dugðu fyrir fyrstu útborgun og svo settum við hausinn undir okkur næstu árin. Verðtryggingin var nýkomin en þrátt fyrir það þá birti til á aðeins nokkrum árum. Nú á ég barnabörn sem ég hef miklu meiri áhyggjur af hvernig muni reiða af í þessu spilavíti fjárglæfra fíkla sem húsnæðismarkaðurinn er.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Um hvað er kosið?

Kýs svo ekki verði farið með dæturnar eins og föður þeirra
FréttirUm hvað er kosið?

Kýs svo ekki verði farið með dæt­urnar eins og föður þeirra

Þrátt fyrir að hafa verið íslenskur rík­is­borg­ari í 12 ár hefur Patience Afrah Antwi ein­ungis einu sinni kosið hér á landi. Nú ætlar hún að ganga að kjör­kass­anum fyrir dætur sínar. Mæðgurnar hafa mætt for­dómum og seg­ist Patience upp­lifa sig sem fjórða flokks vegna brúns húð­litar. Hún fann skýrt fyrir því þegar eig­in­maður hennar, og faðir stúlkn­anna, veikt­ist alvar­lega fyrir sjö árum síðan. Hann lést í fyrra.
Borgar helmingi meira fyrir matvörur hér en í Japan
FréttirUm hvað er kosið?

Borgar helm­ingi meira fyrir mat­vörur hér en í Japan

Stefán Þór Þor­geirs­son, leik­ari og hlað­varps­stjórn­andi, og eig­in­kona hans, Sherine Otomo Bouhafs inn­an­húss­hönn­uður fluttu nýverið með árs­gömlum syni sínum til lands­ins eftir að hafa búið í tvö ár í Japan. Stefán segir að verð mat­ar­körf­unnar hafi breyst mikið frá því hann flutti út árið 2022, sér­stak­lega verð á ávöxtum og græn­meti. Mat­ar­k­arfan sé helm­ingi ódýr­ari í Japan.
Alþjóðamál valda fólki áhyggjum en hreyfa sennilega fá atkvæði
ÚttektUm hvað er kosið?

Alþjóða­mál valda fólki áhyggjum en hreyfa senni­lega fá atkvæði

Fátt bendir til þess að alþjóða­mál ráði atkvæðum margra í kom­andi alþing­is­kosn­ingum en þróun alþjóða­mála veldur þó meiri­hluta þjóð­ar­innar áhyggjum sam­kvæmt nýlegri könnun sem fram­kvæmd var fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið. Eins og nýleg dæmi sanna þá skiptir það Íslend­inga einnig máli hvernig stjórn­völd nýta rödd sína í sam­fé­lagi þjóð­anna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár