Alþjóðamál valda fólki áhyggjum en hreyfa sennilega fá atkvæði

Fátt bendir til þess að alþjóða­mál ráði atkvæðum margra í kom­andi alþing­is­kosn­ingum en þróun alþjóða­mála veldur þó meiri­hluta þjóð­ar­innar áhyggjum sam­kvæmt nýlegri könnun sem fram­kvæmd var fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið. Eins og nýleg dæmi sanna þá skiptir það Íslend­inga einnig máli hvernig stjórn­völd nýta rödd sína í sam­fé­lagi þjóð­anna.

Alþjóðamál valda fólki áhyggjum en hreyfa sennilega fá atkvæði
Lykla­skipti Þessi tvö, Þórdís og Guð­laugur, hafa að mestu setið á stóli utan­rík­is­ráð­herra frá árinu 2017, en flokks­for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son tók stutt­lega við kefl­inu síð­asta vetur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þegar íslenskir kjós­endur eru spurðir um það hvaða mál­efni skipti þá mestu máli í aðdrag­anda kosn­inga skrapa alþjóða- og utan­rík­is­mál nær alltaf botn­inn. Í könnun sem Prósent fram­kvæmdi fyrir hlað­varps­þátt­inn Bak­her­bergið kom ber­lega í ljós að svona er staðan einnig nú, en ein­ungis 6 pró­sent svar­enda töldu alþjóða- og utan­rík­is­mál á meðal mik­il­væg­ustu mál­efna á sviði stjórn­mál­anna.

Því er vert að velta því fyrir sér hvort við megum búast við umræðu um stöðu Íslands í alþjóða­kerf­inu og hvernig ríkið beitir rödd sinni og áhrifum á alþjóða­vett­vangi í kosn­inga­bar­átt­unni. Er flestum kjós­endum ef til vill nokkuð sama hver sest í utan­rík­is­ráðu­neytið eftir kosn­ingar og hvernig haldið er á málum þar?

Látum við það bara ráð­ast, eftir að við erum búin að ákveða hvaða fólki og flokkum við treystum best til að taka á efna­hags­málum, heil­brigð­is­málum og öðrum mála­flokkum sem ráða því hvert atkvæði okkar ratar?

Ísland ekkert eyland

…
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Um hvað er kosið?

FréttirUm hvað er kosið?

Kýs svo ekki verði farið með dæt­urnar eins og föður þeirra

Þrátt fyrir að hafa verið íslenskur rík­is­borg­ari í 12 ár hefur Patience Afrah Antwi ein­ungis einu sinni kosið hér á landi. Nú ætlar hún að ganga að kjör­kass­anum fyrir dætur sínar. Mæðgurnar hafa mætt for­dómum og seg­ist Patience upp­lifa sig sem fjórða flokks vegna brúns húð­litar. Hún fann skýrt fyrir því þegar eig­in­maður hennar, og faðir stúlkn­anna, veikt­ist alvar­lega fyrir sjö árum síðan. Hann lést í fyrra.

9 mín. lestur

FréttirUm hvað er kosið?

Borgar helm­ingi meira fyrir mat­vörur hér en í Japan

Stefán Þór Þor­geirs­son, leik­ari og hlað­varps­stjórn­andi, og eig­in­kona hans, Sherine Otomo Bouhafs inn­an­húss­hönn­uður fluttu nýverið með árs­gömlum syni sínum til lands­ins eftir að hafa búið í tvö ár í Japan. Stefán segir að verð mat­ar­körf­unnar hafi breyst mikið frá því hann flutti út árið 2022, sér­stak­lega verð á ávöxtum og græn­meti. Mat­ar­k­arfan sé helm­ingi ódýr­ari í Japan.
ViðtalUm hvað er kosið?

Byggjum við af gæðum?

Vinna við yfir­stand­andi rann­sókn á gæðum nýrra hverfa sem byggð­ust upp hér­lendis frá 2015 til 2019 gefur til kynna að sam­göngu­teng­ingar og aðgengi að nær­þjón­ustu á þessum nýju búsetu­svæðum sé í fæstum til­vikum eins og best verður á kosið. Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir skipu­lags­fræð­ingur von­ast eftir umræðu um gæði byggðar, en ekki bara magn­tölur íbúð­ar­ein­inga, fram að kosn­ingum.

Mest lesið undanfarið ár