Kýs svo ekki verði farið með dæturnar eins og föður þeirra

Þrátt fyrir að hafa verið íslenskur rík­is­borg­ari í 12 ár hefur Patience Afrah Antwi ein­ungis einu sinni kosið hér á landi. Nú ætlar hún að ganga að kjör­kass­anum fyrir dætur sínar. Mæðgurnar hafa mætt for­dómum og seg­ist Patience upp­lifa sig sem fjórða flokks vegna brúns húð­litar. Hún fann skýrt fyrir því þegar eig­in­maður hennar, og faðir stúlkn­anna, veikt­ist alvar­lega fyrir sjö árum síðan. Hann lést í fyrra.

Kýs svo ekki verði farið með dæturnar eins og föður þeirra
Mæðgur Patience ásamt annarri af tveimur dætrum sínum, Emily. Hin dóttir Patience, Ísabella, var upp­tekin á körfu­bolta­æf­ingu þegar ljós­mynd­ara bar að garði. Hún er á leið í keppn­is­ferð um helg­ina. Mynd: Golli

Í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum kusu ein­ungis 42 pró­sent kosn­inga­bærra inn­flytj­enda á meðan hlut­fallið var 83 pró­sent hjá þeim sem ekki höfðu erlendan bak­grunn. Málefni útlend­inga hafa tekið stóran skerf af kosn­inga­um­ræð­unni án þess að mikið sé talað til þeirra inn­flytj­enda sem hafa kosn­inga­rétt hér á landi.

Umræðan virð­ist gjarnan sveigj­ast hratt í átt­ina til mik­ils kostn­aðar við mót­töku­kerfi flótta­fólks og hæl­is­leit­enda. Sá hópur er þó ekki mjög stór ef litið er til heild­ar­innar – þess stóra hóps inn­flytj­enda sem hér býr.

Sá hópur er um 18 pró­sent þjóð­ar­innar, telur um 70.000 manns en þar af eru flótta­menn 3.777 tals­ins, og er mjög fjöl­breyttur. Erlendir rík­is­borg­arar mega ekki kjósa í alþingis- og for­seta­kosn­ingum en það mega íslenskir rík­is­borg­arar með erlendan bak­grunn. Heim­ildin sett­ist niður með tveimur þeirra eftir fund inn­flytj­enda og stjórn­mála­manna um síð­ustu helgi og ræddi þing­kosn­ing­arnar fram undan.

„Við þurfum að vinna saman til þess að aðlög­unin verði sem best“
Sabit Veselaj

Þakklátur Dalvíkingum og stjórnvöldum út ævina

Sabit Veselaj er frá Kósovó. Hann kom hingað til lands sem flótta­maður fyrir ríf­lega 20 árum síðan, þegar stríð geis­aði í heima­landi hans, og sett­ist til að byrja með að á Dalvík.

„Þegar ég kom til Íslands var ég mjög hepp­inn að fá stuðn­ing frá fólk­inu á Dalvík sem ég mun aldrei gleyma. Ég verð þakk­látur út ævina fyrir það og það sem stjórn­völd gerðu fyrir okkur. Við fórum á íslensku­nám­skeið um leið og við komum til Íslands og fengum líka rétt til þess að vinna með­fram því – bæði að fara á nám­skeið og í vinnu,“ segir Sabit, sem talar í dag mjög góða íslensku. 

Þakk­láturSabit, sem hefur búið hér á landi síðan rétt fyrir alda­mót, hefur alltaf verið vel tekið í íslensku sam­fé­lagi. Honum þykir stjórn­mála­menn þó hafa talað með of nei­kvæðum hætti um inn­flytj­endur und­an­farið.

Hann var um tví­tugt þegar hann kom hingað og hafði klárað bakkalár­gráðu í við­skipta­fræði í Kósovó. Eftir nokkur ár á Dalvík ákvað Sabit að færa sig til Reykja­víkur og leggj­ast í meist­ara­nám við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands. Meðfram því vann hann hin ýmsu störf, bæði sem túlkur og annað. Hann kláraði meist­ara­námið og er nú í dokt­ors­námi við Háskóla Íslands.

„Ég sé sjálfan mig sem hluta af þessu sam­fé­lagi, ég sé mig ekki sem útlend­ing, jafn­vel þó að ég sé með öðru­vísi nafn og sé með sterkan hreim. Ég er búinn að reyna að aðlag­ast umhverf­inu og öllu því. Það tekur tíma, þetta er langt tví­skipt ferli, bæði fyrir okkur sem inn­flytj­endur og líka fyrir landið, fólkið sem býr hér á Íslandi. Við þurfum að vinna saman til þess að aðlög­unin verði sem best,“ segir Sabit. 

Brúni víkingurinn

Þetta ferli hefur í hans til­felli tek­ist nokkuð vel. Patience Afrah Antwi, sem flutt­ist hingað til lands frá Gana árið 2007, hefur ann­ars konar sögu að segja af aðlögun að íslensku sam­fé­lagi.

„Stundum líður mér eins og ég sé íslensk en stundum líður mér eins og ég til­heyri ekki sam­fé­lag­inu. Þegar fólk hittir þig reynir það ekki einu sinni að tala íslensku við þig svo að þú getir æft þig. Um leið og þau sjá að þú ert með lit­aða húð byrja þau að tala ensku,“ segir Patience. 

Á sama tíma og henni finnst hún ekki fylli­lega til­heyra sam­fé­lag­inu segja vinnu­fé­lagar hennar þar sem hún vinnur í eld­hús­inu hjá lyfja­fyr­ir­tæk­inu Coripharma að hún sé ekki útlend­ingur. Svo hún upp­lifir sig hvorki fylli­lega íslenska né útlenska.

„Nú kalla þau mig brúna vík­ing­inn. Ég gaf sjálfri mér það nafn,“ segir Patience og hlær. „Hefurðu ein­hvern tím­ann áður hitt brúnan vík­ing?“ 

Óskaði þess heitast að komast út

Þessi brúni vík­ingur ætl­aði upp­haf­lega að stoppa stutt á Íslandi, í eitt ár sem au pair, en svo kvikn­aði ástin. Patience hitti eig­in­mann sinn, sem var einnig frá Gana en var með íslenskan rík­is­borg­ara­rétt og hafði flust hingað árið 1992, og þau eign­uð­ust saman tvær dætur sem nú eru 12 og 15 ára.

Patience ákvað að sækja um rík­is­borg­ara­rétt árið 2012. 

„Þegar við vorum að ferð­ast stríddi eig­in­maður minn mér: Ég og stelp­urnar notum bláa pass­ann, þú notar bara þennan græna,“ rifjar Patience upp og hlær. „Ég hugs­aði með mér að ég þyrfti að fá bláa pass­ann.“ 

Það tókst og segir Patience að það hafi verið mik­ill sigur, enda sér hún ekki fram á að flytja frá Íslandi. Hér á hún heima í dag þó að henni finn­ist hún ekki alltaf til­heyra sam­fé­lag­inu. 

„Að ein­hverju leyti langar mig að fara til Gana en dætur mínar passa ekki þar inn, þær tala ekki tungu­málið, þær eru fæddar hér svo ég sé þær sem Íslend­inga,“ segir Patience og bendir á að stúlk­urnar hennar myndu helst ekki einu sinni vilja flytja í annað hverfi, því eins og flesta ung­linga langar þær að halda í skól­ann sinn og vin­ina.

Faðir stúlkn­anna og eig­in­maður Patience lést í fyrra, eftir sex ára erfið veik­indi. Það var í því ferli sem Patience upp­lifði virki­lega að vegna húð­litar væri litið á þau sem ann­ars flokks, já eða jafn­vel fjórða flokks – eins og hún lýsir því sjálf – borg­ara.

„Við til­heyrum aldrei fylli­lega. Það skiptir ekki máli hvort þú sért gift íslenskri mann­eskju eða ekki, það er aldrei komið eins fram við þig og það þarf að breyt­ast,“ segir Patience.

Hún lýsir því þegar eig­in­maður hennar veikt­ist árið 2007. Fjöl­skyldan bjó þá, og býr enn, í félags­legri íbúð, enda tekj­urnar af mjög skornum skammti. 

„Hann var alltaf að fara inn og út af spít­ala. Svo fór hann að hætta að geta gengið upp stig­ann. Við sóttum um skipti á íbúðum því við vorum á þriðju hæð í lyftu­lausu húsi,“ útskýrir Patience. 

Á síð­ustu árum eig­in­manns­ins átti hann þá ósk heitasta að kom­ast út undir bert loft. 

„Það hefði verið hægt ef við hefðum verið á jarð­hæð, þá hefði ég getað ýtt honum út úr hús­inu í hjóla­stól og við farið út saman. En hann komst bara út þegar hann fór á spít­al­ann,“ útskýrir Patience og á þá við að það hafi ein­ungis verið þegar hún þurfti að hringja á sjúkra­bíl til þess að láta færa hann á spít­al­ann sem sjúkra­flutn­inga­menn báru eig­in­mann hennar út undir bert loft í skamma stund áður en hann var settur inn í sjúkra­bíl­inn.

Það var ekki fyrr en fyrir um hálfum mán­uði síðan sem sím­tal barst um mögu­legan flutn­ing. Þá var það orðið of seint. „Við fengum ekki flutn­ing fyrr en eftir að hann lést. Mér líður eins og ef ég væri Íslend­ingur hefði ég fengið tæki­færi til flutn­ings á meðan hann var á lífi. Þá hefðu þau fært okkur um leið og hann varð svona veikur,“ segir Patience. 

„Jafnvel á spít­al­anum finnur þú fyrir því að þú sért fjórða flokks borg­ari. Þetta er ástæðan fyrir því að ég ætla að kjósa núna. Ég vil ekki að börnin mín gangi í gegnum það sem faðir þeirra gekk í gegnum eða það sem ég er að ganga í gegnum,“ segir Patience og á þá við þá stað­reynd að hún hefur nú í 13 ár starfað í sama eld­hús­inu í lág­launa­starfi. Hún sér lít­inn sem engan mögu­leika á að kom­ast út úr þeirri stöðu. Jafn­framt vill hún sjá breyt­ingar svo dætur hennar verði ekki fyrir sömu for­dómum og hún hefur orðið fyrir hér á landi. 

Þrátt fyrir að Patience hafi mátt kjósa hér á landi í 17 ár þá hefur hún ein­ungis einu sinni gert það. Eins og mörgum öðrum inn­flytj­endum fannst henni það lengi vel ekki skipta máli, eng­inn stjórn­mála­flokkur væri hvort eð er að spá í hennar stöðu. Hún finnur að sú til­finn­ing er sterk í hópi inn­flytj­enda frá Afr­íku­ríkjum.

„Ég vil ekki eyða tím­anum mínum í þetta, það breyt­ist ekki neitt hvort sem er,“ hefur hún eftir kunn­ingja­konu sinni sem hún reyndi að fá með sér á kosn­inga­við­burð. „Fólk er ekki spennt fyrir kosn­ingum vegna þess hvernig komið er fram við það.“ 

Stjórnmálamenn þurfi að gæta orða sinna

Patience og Sabit eru svo­kall­aðir menn­ing­ar­sendi­herrar, fólk sem hefur það hlut­verk að miðla upp­lýs­ingum um marg­vís­leg mál­efni innan sinna raða og skapa lýð­ræð­is­legan vett­vang fyrir inn­flytj­endur til að koma hug­myndum sínum, skoð­unum og sjón­ar­miðum á fram­færi við borg­ina og önnur stjórn­völd. Þau hafa jafn­framt tekið þátt í verk­efni um lýð­ræð­is­lega þátt­töku inn­flytj­enda, en menn­ing­ar­sendi­herr­arnir buðu um síð­ustu helgi til opins fundar með full­trúum allra stjórn­mála­flokka sem bjóða fram til alþing­is­kosn­inga. Vel var mætt á fund­inn sem fór fram í Veröld – húsi Vigdísar.

Sabit, sem hefur kosið í hverjum ein­ustu kosn­ingum síðan hann fékk rétt til þess, segir að margir góðir punktar hafi komið fram í umræð­unum. 

„Mér fannst eins og þau séu núna að taka alvar­legar mál varð­andi inn­flytj­endur. Þau voru að lofa því að þau myndu fara í breyt­ingar, með menntun til dæmis, að við­ur­kenna menntun þeirra sem koma hingað og skoða hana öðru­vísi en hefur verið gert áður,“ segir Sabit og bætir því við að hann hafi verið ánægður með umræðu um mik­il­vægi þess að bjóða inn­flytj­endum upp á íslensku­nám á vinnu­tíma. 

„Mér fannst þau tala of sterkt, að þau þurfi að passa að orð­ræðan um inn­flytj­endur fari ekki í mjög nei­kvæða átt
Sabit Vesalaj
um orð­ræðu for­manna stjórn­mála­flokka um útlend­inga­mál

Sjálfur hefur Sabit fylgst vel með umræð­unni í kringum kosn­ing­arnar og þó að honum þyki umræðan vera að fær­ast í rétta átt hvað varðar aðlögun og inn­gild­ingu þá hefur hann orðið var við nei­kvæða orð­ræðu í garð inn­flytj­enda, til dæmis í kapp­ræðum for­manna stjórn­mála­flokk­anna á RÚV fyrir nokkrum vikum síðan. 

„Mér fannst þau tala of sterkt, að þau þurfi að passa að orð­ræðan um inn­flytj­endur fari ekki í mjög nei­kvæða átt, sér­stak­lega um þau sem eru búin að vera hér lengi og búin að aðlag­ast. Mér fannst koma fram mjög sterk nei­kvæð við­horf gagn­vart inn­flytj­endum,“ segir Sabit og nefnir sér­stak­lega Mið­flokk­inn þegar hann er spurður hvaða flokk hann eigi við sér­stak­lega. Hann tekur þó fram að full­trúi Mið­flokks­ins á fund­inum í Veröld hafi talað með öðrum og opn­ari hætti.

Föst á „neðsta stigi“

Patience segir að hún hafi ekki fengið skýr svör á fund­inum við spurn­ingu um það hvernig ætti að bregð­ast við þeirri stað­reynd að börn af erlendum upp­runa, sem alast ekki upp á íslensku­mæl­andi heim­ili, eigi erfitt með að ná tökum á íslensk­unni.

„Það er eitt­hvað að hjá okkur þegar börn sem fæð­ast hér geta ekki talað tungu­málið,“ segir Patience. Hún telur þó við­burði sem þessa mjög mik­il­væga, bæði til þess að stjórn­mála­fólk hitti inn­flytj­endur og hafi þá í huga og fyrir inn­flytj­endur, til þess að sjá hvort ein­hver stjórn­mála­flokk­anna hafi mögu­lega eitt­hvað að bjóða sem þeim hugn­ast. Fyrir Patience eru það atvinnu­málin sem skipta mestu máli. Hún bendir á sjálfa sig sem dæmi. Það er erfitt fyrir hana að sjá fyrir börn­unum sínum í starf­inu sem hún hefur verið í síð­ast­liðin 13 ár en Patience sendir einnig pen­ing heim til for­eldra sinna sem enn búa í Gana. 

„Þegar eig­in­maður minn var lif­andi og hann veikt­ist varð ég eina fyr­ir­vinna heim­il­is­ins. Að sjá um börnin mín og for­eldra mína heima – að fá auka­pen­ing til þess að borga fyrir nám er meira en að segja það fyrir mig,“ segir Patience sem myndi vilja mennta sig en sér ekki leiðir til þess með­fram vinnu og vegna tak­mark­aðrar íslensku­kunn­áttu. „Þá er maður fastur á neðsta stigi. Margir úr mínu sam­fé­lagi eru í sömu stöðu. Ég myndi vilja nota það sem ég er þegar búin að læra í vinn­unni til þess að fá það metið til ein­hvers konar við­ur­kenn­ingar. Við myndum vilja stutt nám­skeið á ensku sem við gætum bætt við okkur þekk­ingu með.“

„Fólk er ekki spennt fyrir kosn­ingum vegna þess hvernig komið er fram við það
Patience
um kosn­inga­þátt­töku inn­flytj­enda

Sabit telur upp svipuð kosn­inga­mál og aðrir Íslend­ingar þegar hann er spurður um þau mik­il­væg­ustu; menntun, heil­brigð­is­mál og hús­næð­is­mál. Því þessir flokkar snerta alla lands­menn, sama hver upp­runi þeirra er.

Þau vona bæði að starf menn­ing­ar­sendi­herra og fundur eins og sá sem var í Húsi Vigdísar aðstoði við að draga upp kosn­inga­þátt­töku inn­flytj­enda. 

„Ég tala venju­lega um mína eigin reynslu til þess að þeir sem taka ákvarð­anir viti af því að við erum til. Það eru ekki allir í mínu sam­fé­lagi til­búnir að tala um sín vanda­mál en ég er alltaf til­búin að deila því sem ég hef gengið í gegnum svo að eitt­hvað breyt­ist. Það er ekki bara ég sem geng í gegnum svona erf­ið­leika,“ segir Patience.

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Um hvað er kosið?

Borgar helmingi meira fyrir matvörur hér en í Japan
FréttirUm hvað er kosið?

Borgar helm­ingi meira fyrir mat­vörur hér en í Japan

Stefán Þór Þor­geirs­son, leik­ari og hlað­varps­stjórn­andi, og eig­in­kona hans, Sherine Otomo Bouhafs inn­an­húss­hönn­uður fluttu nýverið með árs­gömlum syni sínum til lands­ins eftir að hafa búið í tvö ár í Japan. Stefán segir að verð mat­ar­körf­unnar hafi breyst mikið frá því hann flutti út árið 2022, sér­stak­lega verð á ávöxtum og græn­meti. Mat­ar­k­arfan sé helm­ingi ódýr­ari í Japan.
Alþjóðamál valda fólki áhyggjum en hreyfa sennilega fá atkvæði
ÚttektUm hvað er kosið?

Alþjóða­mál valda fólki áhyggjum en hreyfa senni­lega fá atkvæði

Fátt bendir til þess að alþjóða­mál ráði atkvæðum margra í kom­andi alþing­is­kosn­ingum en þróun alþjóða­mála veldur þó meiri­hluta þjóð­ar­innar áhyggjum sam­kvæmt nýlegri könnun sem fram­kvæmd var fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið. Eins og nýleg dæmi sanna þá skiptir það Íslend­inga einnig máli hvernig stjórn­völd nýta rödd sína í sam­fé­lagi þjóð­anna.
Byggjum við af gæðum?
ViðtalUm hvað er kosið?

Byggjum við af gæðum?

Vinna við yfir­stand­andi rann­sókn á gæðum nýrra hverfa sem byggð­ust upp hér­lendis frá 2015 til 2019 gefur til kynna að sam­göngu­teng­ingar og aðgengi að nær­þjón­ustu á þessum nýju búsetu­svæðum sé í fæstum til­vikum eins og best verður á kosið. Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir skipu­lags­fræð­ingur von­ast eftir umræðu um gæði byggðar, en ekki bara magn­tölur íbúð­ar­ein­inga, fram að kosn­ingum.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár