Ný og óvænt kenning: Hafði Jörðin hring um sig miðja líkt og Satúrnus?

Ný og óvænt kenning: Hafði Jörðin hring um sig miðja líkt og Satúrnus?
Var þetta stað­reynd fyrir „aðeins“ 466 millj­ónum ára?

„Máninn hátt á himni skín,

hrím­fölur og grár ...“

segir í ára­mó­ta­kvæð­inu alkunna. En hugsið ykkur nú að ekki ein­ungis mán­inn einn skini hátt á himni, heldur teygði sig um allan him­inn hringur af geim­steinum, ryki, grjót­flísum af öllum stærðum, ísklumpum og jafn­vel smá­mánum marg­vís­legum?

Um Jörðina okkar væri í raun og veru hringur eins og sá alþekktur er um gas­ris­ann Satúrnus langt úti í sól­kerf­inu?

Sú óvænta hug­mynd er nú á kreiki í vís­inda­heimum eftir að áströlsku vís­inda­menn­irnir Andrew G. Tomkins, Erin L. Martin og Peter A. Cawood komu henni á flot með grein sem þau birtu á dög­unum í vefrit­inu Earth & Planet­ary Science Letters.

Hug­myndin var sett fram eftir að þau fóru að rann­saka ummerki um óvenju marga og stóra loft­steina sem hefðu fallið á Jörðina hver á fætur öðrum á mjög stuttu tíma­bili fyrir um 466 millj­ónum ára.

„Mjög stutt tíma­bil“ er auð­vitað afstætt.

Senni­lega hafa þessir loft­steinar fallið á nokk­urra millj­óna ára bili, kannski fáeinum millj­óna­tugum. En að svo margir stórir steinar hafi fallið á þeim tíma þótti þre­menn­ingum ein­kenni­legt.

Þegar sól­kerfið var ungt var gríð­ar­legur fjöldi loft­steina á þeyt­ingi um allt og þeir hafa þá hrunið í þús­unda­tali niður á Jörðina, en veðrun, plötu­hreyf­ingar og jarð­vegs­myndun hafa nú eytt eða hulið flestalla gíg­ana og önnur ummerki eftir þá.

Við sjáum hins vegar ummerkin eftir þessa skot­hríð enn á Tunglinu okkar.

En fyrir 466 milljón árum var sól­kerfið orðið nokkuð ráð­sett og búið var að hreinsa lang­mest af stærstu loft­stein­unum úr innsta hluta sól­kerf­ins.

Einn og einn féll enn til Jarðar en langur tími var far­inn að líða milli þeirra.

Þó okkur virð­ist 466 millj­ónir ára vera mjög langur tími, þá er það aðeins um einn tíundi hluti ald­urs Jarð­ar­innar.

Ef við skiptum hinum 4,54 millj­örðum ára sem liðnir eru frá því Jörðin mynd­að­ist niður í eitt ár, var kom­inn 21. nóv­em­ber fyrir 466 millj­ónum ára. Þá var líf og fjör í sjónum þar sem þrí­brotar voru herrar heims­ins en frum­stæðir fiskar og smokk­fiskar ýmsir voru líka komnir fram. Á landi var hins líf­laust að mestu.

Ein­hverjir sveppir voru farnir að sil­ast upp frá strönd­unum og afar frum­stæður jurta­gróður, en annað var það nú ekki.

En um hálf tíu leyti að morgni á þessum ímynd­aða 21. nóv­em­ber, þá virð­ist sem sé mjög óvenju­leg skot­hríð hafa dunið á Jörðinni utan úr geimnum á „aðeins“ örfáum millj­ónum ára eða rúm­lega það. Þau Tomkins, Martin og Cawood fundu í fljótu bragði merki um 21 stóran loft­stein sem fallið höfðu á þessum „skamma“ tíma.

Og þar sem ætla má að að minnsta kosti annar eins fjöldi — kannski miklu miklu fleiri — hafi farið í sjó­inn eða farið undir hraun eða horfið undir jarð­lög, þá er engin goðgá að tala um skot­hríð.

Þau þre­menn­ingar voru nátt­úr­lega ekki fyrstu vís­inda­menn­irnir sem höfðu tekið eftir þessu. Þetta hefur verið alkunna um all­langa hríð og líka hitt að svo virð­ist sem þær grjót­leifar, er fund­ist hafa frá þessum 21. nóv­em­ber, hafi ekki orðið að þola jafn mikla geislun frá upp­hafi sól­kerf­is­ins og ein­kennir hina „fyrstu kyn­slóð“ loft­stein­anna.

Cawood, Martin og Tomkins

Það þýðir að loft­stein­arnir sem féllu um þetta leyti hafa verið í jarð­fræði­legum skiln­ingi „nýrri“ eða „yngri“ en loft­stein­arnir sem féllu í árdaga sól­kerf­is­ins.

Þessu hafði fólk líka veitt athygli áður. Sú skýr­ing hafði verið sett fram á þessu að stórt smá­stirni eða jafn­vel dverg­pláneta í smá­st­irna­belt­inu milli Mars og Júpíters hafi sundr­ast af ókunnum ástæðum, kannski eftir árekstur við annan risa­loft­stein, og þeyst í þús­und molum í allar áttir.

Og hluta af þeim brotum hafi rignt niður á Jörðina.

Og þar eð þau brot hefðu fram að þessu flest­öll verið ein­hvers staðar í iðrum smá­st­irn­is­ins, þá hefðu þau ekki þurft að þola jafn­mikla geim­geislun og loft­stein­arnir frá því í árdaga, og virt­ust því í þeim skiln­ingi „yngri“.

Þetta var nú allt gott og blessað og gat vel stað­ist. En þegar þre­menn­ingum datt í hug að rann­saka hvar hinir rúm­lega 20 stóru loft­steinar hefðu fallið, þá kom nokkuð óvænt í ljós.

Núna er ummerki um þessa loft­steina að finna um alla Jörðina: Norður-Ameríku, Evrópu, Rúss­landi, Kína, Ástralíu ...

En með því að nota nýj­ustu þekk­ingu á land­reki og láta tölvu­líkön rekja þennan 21 stað 466 millj­ónir ára aftur á bak, þá lá nið­ur­staðan fyrir:

Allir höfðu fallið því sem næst nákvæm­lega niður á mið­baug Jarð­ar­innar.

Og það gat eig­in­lega alls ekki stað­ist miðað við hvernig loft­steinar frá sundr­uðu smá­stirni milli Mars og Júpíter hefðu átt að dreifast um sól­kerfið. 

Þeir hefðu átt að lenda bara hingað og þangað um Jörðina af algeru handa­hófi.

Fyrir 466 millj­ónum ára var ekk­ert líf á landi, nema hugs­an­lega slikja af sveppa­gróðri eða mjög frum­stæðum jurtum.Í sjónum var hins vegar lif og fjör, að minnsta kosti þangað til ill­víg ísöld útrýmti 85 pró­sentum lífs.

Þegar lík­önin og útreikn­ing­arnir gáfu og til kynna að fyrir 466 millj­ónum ára hefðu aðeins 30 pró­sent af yfir­borði Jarðar verið við mið­baug, þá varð þessi „snyrti­lega“ röð loft­steina­gíga við mið­baug enn ótrú­legri.

Og enn eitt: Jarðlög ,sem þá höfðu legið við mið­baug, gáfu til kynna miklar flóð­bylgjur, ógur­legri en nokkrar þær sem við höfum orðið vitni að á okkar dögum.

Það höfðu greini­lega miklar ham­farir fylgt skot­hríð­inni utan úr geimnum.

En aðeins við mið­baug.

Svo nú sett­ust þre­menn­ing­arnir niður eins og hug­s­uður Rodins og hugs­uðu og hugs­uðu. Hver gat verið skýr­ingin á þessu?

Og nið­ur­staða þeirra er birt í fyrr­nefndri grein í Earth & Planet­ary Science Letters. 

Hún er sú að fyrir 466 millj­ónum ára hafi aðdrátt­ar­afl Jarðar dregið til sín stórt smá­stirni. Það var ekki á braut árekst­urs við Jörðina en kom þó svo nálægt Jörðina að það fór að teygj­ast og tog­ast í sundur og sundrað­ist að lokum.

Sá fram­gangs­máti er vís­inda­mönnum þegar kunnur. Svo er sagt að þegar lít­ill hlutur er kom­inn svo nærri stórum hlut að hann sundrist sé hann kom­inn inn fyrir „Roche-mörkin“.

Nú telja þre­menn­ing­arnir að aðdrátt­ar­afl Jarð­ar­innar hafi sem sé sogað til sín smá­st­irnið uns það fór inn fyrir Roche-mörkin og tætt­ist í sundur. En þá hafi aðdrátt­ar­afl Jarð­ar­innar valdið því að brotin úr smá­st­irn­inu hafi ekki bara þeyst hingað og þangað heldur hafi þau „haldið hóp­inn“ og raðað sér upp í snyrti­legan hring um mið­baug Jarð­ar­innar.

„Snyrti­legur hringur um Jörðina.“

Og snú­ist þar í nokkra tugi millj­óna ára eins og hver annar hringur um Satúrnus.

Svo hafi hring­ur­inn smátt og smátt eyðst eftir því sem aðdrátt­ar­afl Jarðar varð hring­sól­inu yfir­sterk­ari og brotin féllu hvert af öðru til Jarðar. Þau voru auð­vitað miklu miklu fleiri en 21 en við sjáum aðeins ummerki um fáein þeirra og þau allra stærstu.

Skylt er að geta þess að Tomkins, Martin og Cawood halda því alls ekki fram í grein sinni að nið­ur­staða þeirra sé á nokkurn hátt óyggj­andi. Þau varpa þessu hins vegar fram sem kenn­ingu sem aðrir vís­inda­menn geti þá lagt mat á, skoðað, teygt og togað.

Kannski sundr­ast hún þá ef hún fer inn fyrir ein­hver Roche-mörk vís­ind­anna.

En kannski reyn­ist hún rétt.

Hringur um Jörðina.Um Mars ganga tvö örsmá tungl, Fóbos og Deimos. Sumir telja að þau séu leifar af hring sem eitt sinn hafi umkringt Mars eftir svip­aðan atburð og kann að hafa myndað hring um Jörðina.

Kannski var næt­ur­him­inn­inn fyrir 466 millj­ónum ára í raun prýddur fal­legum hring, hrím­fölum og gráum.

Þangað til stein­arnir fóru að falla — meðal ann­ars og ekki síst fyrir í senn sam­verk­andi og rugl­andi áhrif Tungls og Jarðar — og ham­farir að brjót­ast út í hvert sinn sem ein­hver steinn­inn pomp­aði með ógur­legum umbrotum og flóð­bylgjum á haf­inu.

Þau þre­menn­ingar hafa líka varpað annarri hug­mynd í fram­haldi af hug­mynd­inni um hring­inn.

Ef hing­ur­inn hefur nú verið um Jörðina í ein­hverja millj­óna­tugi ára, getur þá verið að hann hafi orsakað (að meira eða minna leyti) ægi­lega ísöld sem skall á fyrir 445 millj­ónum ára og kölluð hefur verið hir­m­an­tíu-ísöldin? Hún stóð fremur stutt en dugði til þess að 85 pró­sent alls lífs á Jörðinni (fyrst og fremst í sjónum) dó út.

Var það skuggi hrings­ins — spyrja þre­menn­ing­arnir — sem orsak­aði svo mikla kæl­ingu við mið­baug að ísöldin fór af stað?

Þetta er líka kenn­ing sem vert er að rann­saka.

 

Þre­menn­ing­arnir hafa sjálf bent á hugs­an­lega mót­báru við kenn­ingu þeirra.Þótt loft­steina­hríðin fyrir 466 millj­ónum ára hafi staðið yfir fremur skamma hríð, á jarð­fræði­legan mæli­kvarða, þá virð­ist þó um tvö aðskilin tíma­bil að ræða. Hugs­an­leg skýr­ing á því, segja þau, er að svo gæti verið að í hringnum hafi mynd­ast eitt fremur stórt tungl sem hafi hald­ist á lofti ívið lengur en brotin í hringnum sjálfum. Þetta auka­tungl hafi þó að lokum sundr­ast líka og brotin úr því þá fallið til Jarðar.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár