Kjósendur Miðflokks mun íhaldssamari en Sjálfstæðisflokks

Stjórn­mála­fræð­ingar við Háskóla Íslands gapa ekki yfir því sem virð­ist raunin, að Mið­flokk­ur­inn sæki nú til íhalds­sam­ari kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sópi til sín fylgi úr þeirra röðum. Í vænt­an­legri bók sem byggir á gögnum Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar frá 2021 kemur fram að kjós­endur flokk­anna tveggja eru mjög sam­stiga á hinum hefð­bundna vinstri-hægri ás, en kjós­endur Mið­flokks­ins eru íhalds­sam­ari er kemur að sam­fé­lags- og alþjóða­málum.

Kjósendur Miðflokks mun íhaldssamari en Sjálfstæðisflokks
Stjórn­mál Kjós­enda­hópur Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks var nokkuð áþekkur árið 2021, en kjós­endur Mið­flokks­ins þó öllu íhalds­sam­ari, sam­kvæmt gögnum Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Eva H. Önnu­dóttir, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, segir við Heim­ild­ina að gögn úr Íslensku kosn­inga­rann­sókn­inni (ÍSKOS) frá árinu 2021 sýni skýrt að kjós­endur Mið­flokks­ins það árið hafi verið nálægt Sjálf­stæð­is­flokknum á hinum efna­hags­lega vinstri-hægri ás, en hins vegar reynst mun íhalds­sam­ari varð­andi ýmis sam­fé­lags­mál.

Þetta má sjá á mynd­inni sem hér fylgir, en hún er úr kafla í vænt­an­legri bók, Logn­mollu í ólgu­sjó, sem verður gefin út af Háskóla­út­gáf­unni á næstu mán­uðum. Auk Evu eru höf­undar bók­ar­innar þau Agnar Freyr Helgason, Hulda Þór­is­dóttir, Ólafur Þ. Harð­ar­son og Jón Gunnar Ólafsson.

Á mynd­inni má einnig sjá hvernig stuðn­ings­fólk Við­reisnar, sem mæld­ist mun nær miðju efna­hags­áss­ins en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, er mun frjáls­lynd­ara í afstöðu til sam­fé­lags- og alþjóða­mála en allir hinir flokk­arnir sem eru hægra megin á ásnum. Flokkur fólks­ins og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru svo á nokkuð svip­uðum slóðum og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á menn­ing­ar­ásnum, en nær miðj­unni á efna­hags­ásnum. Kjós­endur ann­arra flokka, Sam­fylk­ingar, …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár