Að þéra eða þúa

Meðan Margrét Þór­hildur var þjóð­höfð­ingi Dana var það ófrá­víkj­an­leg regla að hún skyldi þéruð, Deres majestæt, nema í þröngum hópi fjöl­skyldu og náinna vina. Eftir að son­ur­inn Friðrik tók við krún­unni hefur það flækst fyrir mörgum hvernig ávarpa skuli kóng­inn og sama gildir um drottn­ing­una Mary.

Að þéra eða þúa
Stórt knús Friðrik kon­ungur faðmar Mikkel Hansen, eina skær­ustu hand­bolta­stjörnu Dana, þegar Danir urðu Ólymp­íu­meist­arar eftir risa­sigur á Þýska­landi í sumar. Engin þérun átti sér stað í knús­inu. Mynd: AFP
Hlustaðu 06:54 · Eitt og annað

Fræg er sagan af því þegar við­van­ingur í frétta­manna­stétt not­aði orðið ,,du“ á frétta­manna­fundi í til­efni af 75 ára afmæli drottn­ingar árið 2015. Áður en hann gat lokið spurn­ing­unni greip drottn­ingin fram í og sagði ,, undskyld, jeg tror ikke vi har gået i skole sam­men“, frétta­mað­ur­inn end­ur­tók spurn­ing­una en gætti þess vel að þéra drottn­ing­una. Þótt Margrét Þór­hildur sé ekki lengur þjóð­höfð­ingi Dan­merkur tekur hún áfram þátt í ýmsum við­burðum, setti meðal ann­ars form­lega hina árlegu hátíð­ar­viku í Árósum (Aarhus Festuge) 30. ágúst sl. Og er enn ávörpuð á sama hátt og áður, ekk­ert „du“ þar.

Þetta endurtökum við 

Árið 2010 heim­sótti Jóakim prins, yngri sonur Mar­grétar Þór­hildar, skóla­skipið Danmark. Þar spurði ungur frétta­maður: „Hvaða þýð­ingu hefur skóla­skipið fyrir þig?“ Jóakim svar­aði: „Þetta end­ur­tökum við“  og frétta­mað­ur­inn sem hélt að prins­inn hefði ekki heyrt spurn­ing­una end­ur­tók hana og svar prins­ins var hið sama. „Ég ætti kannski að færa mig,“ sagði frétta­mað­ur­inn. Þá brosti prins­inn og sagði: „Ég segi ekki þú“ og þá átt­aði frétta­mað­ur­inn sig og baðst afsök­unar á að hafa ekki þérað prins­inn. Mörgum Dönum þótti þessi fram­koma Jóakims bera vott um hroka og hann mátti lengi una því að í augum almenn­ings var hann neðstur á „vin­sælda­lista“ fjöl­skyld­unnar á Amali­en­borg.

„Ég segi ekki þú“Jóakim prins hefur bæði verið þér­aður og „þúaður“ og kunnað bæði vel og illa við það.

Árið 2019, níu árum eftir upp­á­kom­una á skóla­skip­inu, sýndi danska sjón­varpið, DR, þátta­röð um sögu Dan­merkur. Jóakim prins var sögu­maður í þátt­unum og þar var hann dus við alla þátt­tak­endur. Þremur árum síðar, árið 2022, var prins­inn gestur í Aftenshowet, spjall­þætti DR. Stjórn­and­inn hafði búið sig undir að þéra gest­inn en öllum á óvart spurði Jóakim hvort þeir væru ekki bara dús ,,ej, skal vi ikke være dus“.

Eftir að þætt­inum lauk stopp­aði ekki sím­inn hjá þátta­stjórn­and­anum Kristian Ring-Hansen Holt. Kollegar hans vildu fá að vita hvernig honum hefði tek­ist að fá leyfi til að þúa prins­inn, og urðu hissa þegar þeir heyrðu skýr­ing­una. Fjöl­miðl­arnir skrif­uðu líka um þessa skyndi­legu breyt­ingu hjá Jóakim prins og komust flestir að þeirri nið­ur­stöðu að hann væri með þessu að stíga niður af stall­inum, eins og það var orðað, og færa sig nær fólk­inu, meira í stíl við fram­komu bróður síns, krón­prins­ins þáver­andi. 

Þér og þú

Fyrir ca 70 árum síðan var venja að þéra full­orðna, aðra en kunn­uga eða skyld­menni og und­an­tekn­ing­ar­laust eldra fólk. Árið 1955 lagði Jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn, Socialdemokratiet, til að þérun yrði lögð af. Í aug­lýs­inga­her­ferð í blöðum og tíma­ritum voru rökin fyrir breyt­ing­unni sögð þau að afnema þann þjóð­fé­lags­lega mis­mun sem í þér­un­inni fælist. Hægt og rólega lagð­ist þér­unin af en lengi vel tíðk­að­ist þó að þéra ráð­herra. Jens Otto Krag var síð­asti for­sæt­is­ráð­herr­ann sem var þér­aður, Anker Jørg­en­sen, sem tók við af Krag árið 1972, tók ekki í mál að vera þér­aður, og nú heyrir þérun nán­ast sög­unni til. Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken fyrir nokkrum dögum sagði Emma Rønberg Paaske að í einni til­tek­inni verslun, Perchs Thehandel í Kaup­manna­höfn, væri henni alltaf boð­inn brjóst­sykur með orð­unum ,,vil De have et bolsje?“  ,,Mér finnst þetta alltaf jafn­skrýtið,“ sagði sagði Emma Rønberg Paaske.

Breyttir tímar, líka hjá hirðinni

Hinn 14. jan­úar á þessu ári urðu þjóð­höfð­ingja­skipti í Danmörku, Margrét Þór­hildur afsal­aði sér krún­unni til krón­prins­ins, sem varð þar með kóngur. Sumarið er iðu­lega sá árs­tími sem þjóð­höfð­ing­inn ferð­ast um ríki sitt og sækir ýmsa við­burði stóra og smáa. Meðal við­burða sem kon­ungs­hjónin Friðrik og Mary sóttu voru Ólymp­íu­leik­arnir í París. Eftir því var tekið að kóng­ur­inn lét ekki handa­band og klapp á öxl duga þegar hann óskaði Mikkel Hansen og Nikolaj Jacobsen til ham­ingju, hann tók þétt utan um þá, þeir fengu þétt faðm­lag (bjørnekrammer, sem er meira en krammer). Við fleiri tæki­færi á Ólymp­íu­leik­unum höfðu kon­ungs­hjónin spjallað á léttum nótum við danska kepp­endur og áhorf­endur. Þegar frétta­maður danska útvarps­ins ræddi við Friðrik og bad­mint­on­spil­ar­ann Viktor Axelsen (sem vann gull­verð­laun í ein­liða­leik karla) not­aði hann ,,du“, en síðar í við­tal­inu þér­aði frétta­mað­ur­inn kóng­inn. Þarna var kóng­ur­inn, í stutt­erma­bol, ekki í hinu dæmi­gerða þjóð­höfð­ingja­hlut­verki, heldur meðal landa sinna að gleðj­ast yfir góðum árangri danskra kepp­enda.

Yðar hátign?Eftir að Friðrik X tók við krún­unni í Danmörku hefur það flækst fyrir mörgum hvernig ávarpa skuli kóng­inn og sama gildir um drottn­ing­una Mary.

Eftir aðstæðum þér eða þú

Friðrik er um margt ólíkur Margréti Þórhildi móður sinni. Í sjón­varps­þætt­inum Prins Christian – en kong­elig rejse, sem sýndur var haustið 2023 fór prins­inn með föður sínum, sem þá var krón­prins, í ferð um landið. Prinsinn var að verða 18 ára og því fylgja ýmsar skyldur, sem juk­ust vita­skuld þegar hann varð krón­prins. Á ferða­lag­inu var ekki þérað þótt þeir feðgar hefðu meðal ann­arra hitt, og rætt við, þing­menn, hæsta­rétt­ar­dóm­ara, ráð­herra og biskup.

Thomas Larsen, blaða­maður og sér­fróður um kon­ung­leg mál­efni og fjöl­skyld­una á Amali­en­borg, telur að kon­ungs­hjónin og sér­ílagi Friðrik verði að halda eins konar tvö­falt bók­hald. Annars vegar það alþýð­lega sem danska þjóðin þekki vel og hins vegar hið form­lega. Það sé ekki það sama hvort kóng­ur­inn sé meðal áhorf­enda á fót­bolta­leik eða að taka á móti erlendum þjóð­höfð­ingjum eða við önnur hátíð­leg tæki­færi. Thomas Larsen telur að Friðrik verði ekki í vand­ræðum með að halda þessum boltum báðum á lofti, eins og hann komst að orði.

Thomas Larsen nefndi enn fremur í við­tali fyrir skömmu að nú væri senn að hefj­ast hin árlega hátíð­ar­vika í Árósum (30. ágúst til 8. sept­em­ber).  Margrét Þór­hildur setur hátíð­ina og „það er öruggt að þar verður þérað en ekki þúað“ sagði Thomas Larsen.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Hér var líka þérað fram eftir miðri öld. Ennþá tíðkast þéringar, t.d. ef maður vill gefa í skyn að frekari kynna sé ekki óskað.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár