Afdrifarík ferð á barinn

Það getur haft ýmis­legt óvænt í för með sér að bregða sér á bar, alla vega ef bar­inn heitir Slip inn og er í Sydney í Ástralíu. Þannig var það í til­viki Mary Elizabeth Don­ald­son, sem nú er orðin drottn­ing Dan­merkur.

Afdrifarík ferð á barinn
Drottn­ing Dan­merkur Mary Don­ald­son er orðin drottn­ing Dan­merkur eftir að eig­in­mað­ur­inn Friðrik varð kóngur. Mynd: AFP

Það var mikið um að vera í Sydney haustið 2000. Ólymp­íu­leik­arnir fóru fram síð­ari hluta sept­em­ber­mán­aðar og í tengslum við þá var margt fólk í borg­inni. Fyrir utan um það bil 10.500 kepp­endur voru tug­þús­undir áhorf­enda og aðstoð­ar­fólks kepp­enda.   

Á þessum tíma bjó og starf­aði í Sydney ung kona, Mary Elizabeth Don­ald­son að nafni. Mary fædd­ist í bænum Hobart á áströlsku eyj­unni Tasmaníu 5. febr­úar 1972. For­eldr­arnir, sem báðir voru skoskir, höfðu flutt til Tasmaníu árið 1963 og nokkrum mán­uðum fyrr gengið í hjóna­band. Þau eign­uð­ust fjögur börn, Mary er yngst.

Faðirinn, John Dal­gleish Don­ald­son, fæddur árið 1941, lauk háskóla­prófi í stærð­fræði og eðl­is­fræði frá háskól­anum í Edinborg og síðar dokt­ors­prófi í stærð­fræði frá háskól­anum í Tasmaníu. Hann starf­aði við háskól­ann þangað til hann fór á eft­ir­laun, lengst af sem for­seti vís­inda­deildar.

Móðir Mary hét Hen­ri­etta Clark Horne, fædd árið 1942. Hún starf­aði lengst af sem skrif­stofu­stjóri aðstoð­ar­rekt­ors háskól­ans í Tasmaníu en lést árið 1997, eftir að hafa geng­ist undir hjarta­að­gerð. John gift­ist síðar rit­höf­und­inum Susan Elizabeth.

Menntun og störf

Að loknu grunn- og fram­halds­skóla­námi sett­ist Mary í háskól­ann í Tasmaníu og braut­skráð­ist þaðan sem við­skipta­lög­fræð­ingur árið 1995.
Ári síðar lauk hún prófi í mark­aðs- og aug­lýs­inga­fræði. Í fram­halds­skóla lærði hún frönsku sem hún talar reiprenn­andi, það átti eftir að koma sér vel síðar. Eftir útskrift­ina starf­aði Mary sem aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri hjá tveimur aug­lýs­inga­fyr­ir­tækjum í Melbourne.

Móðurmissir

Skúbb!Ástr­alskir fjöl­miðlar komust á snoðir um sam­band Mary og Friðriks og fjöll­uðu um það á síðum blað­anna.

Skúbb!Ástr­alskir fjöl­miðlar komust á snoðir um sam­band Mary og Friðriks og fjöll­uðu um það á síðum blað­anna.Eins og áður var nefnt lést Hen­ri­etta, móðir Mary, árið 1997, hún hafði skömmu áður geng­ist undir hjarta­að­gerð. Mary tók frá­fall móður sinnar afar nærri sér og ári síðar sagði hún upp vinn­unni hjá aug­lýs­inga­fyr­ir­tæk­inu í Melbourne. Hún fór í langt ferða­lag um Banda­ríkin og Evrópu og sneri ekki til baka fyrr en tíu mán­uðum síðar.

Á ferða­lag­inu dvaldi hún lengst í Edinborg þar sem hún vann í þrjá mán­uði hjá stóru mark­aðs- og ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki. Þegar til Ástralíu kom sett­ist hún að í Sydney, vann um hríð hjá þekktu ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki en réði sig vorið 2000 til starfa hjá stóru fast­eigna­fyr­ir­tæki. „Ég var frekar ráð­villt og vissi ekki alveg hver mín hilla væri í líf­inu en taldi þegar ég fór að vinna hjá fast­eigna­fyr­ir­tæk­inu að það væri rétta hillan,“ sagði Mary síðar í við­tali. Hún komst svo síðar að því að það væri önnur, bæði lengri og breið­ari hilla sem biði hennar.

Slip inn

Það var mikið um að vera í Sydney þann hálfa mánuð sem Ólymp­íu­leik­arnir stóðu yfir. Krökkt af fólki á götum og strætum, þétt­setið á börum og veit­inga­stöðum. Hjá íbúum borg­ar­innar gekk lífið ann­ars að mestu sinn vana­gang og þannig var það hjá Mary Don­ald­son. Þegar vinnu­deg­inum var lokið ætl­aði hún heim eins og venju­lega, en nokkrir vinir töldu hana á að koma með út og líta á mann­lífið. Bæj­ar­röltið end­aði á Slip inn, bar og veit­inga­stað. Þar var margt fólk, þar á meðal nokkrir Svíar og Danir.

„Eins og gengur var farið að spjalla og ég tal­aði lengi við Dana sem sagð­ist heita Friðrik. Við spjöll­uðum dágóða stund en þegar ég spurði hvað hann gerði vafð­ist honum tunga um tönn, sagði svo loks að hann væri sonur dönsku drottn­ing­ar­innar. Minntist ekki á að hann væri krón­prins,“ sagði Mary í við­tali um þessi fyrstu kynni. „Við ákváðum að halda sam­band­inu og næstu vikur og mán­uði töl­uðum við lengi saman í síma og skrif­uð­umst á. Hittumst líka þótt það væri langt að fara.“ Þau vildu halda sam­band­inu leyndu og tókst það reyndar mán­uðum saman.

Við vitum að þú ert kærasta danska krónprinsins

Mary sagði að sér hefði brugðið þegar blaða­maður vatt sér að henni þegar hún var á leið heim úr vinnu með orð­unum „við vitum að þú ert kærasta danska krón­prins­ins“. Hún svar­aði engu en flýtti sér inn í bíl­inn.

„Denmark falls in love with our Mary“ var fyr­ir­sögn í einu áströlsku blað­anna dag­inn eftir og þar voru myndir af Mary þar sem hún ekur á brott. „Á þessu augna­bliki árið 2001 var allt breytt.“ Mary sagði síðar að hún hefði þurft að hugsa sig vel um, hvort hún vildi búa í Danmörku, langt frá vinum og fjöl­skyldu, og jafn­framt með öllu sem fylgdi því að verða krón­prinsessa.

„Eins og gengur var farið að spjalla og ég tal­aði lengi við Dana sem sagð­ist heita Friðrik. Við spjöll­uðum dágóða stund en þegar ég spurði hvað hann gerði vafð­ist honum tunga um tönn, sagði svo loks að hann væri sonur dönsku drottn­ing­ar­innar. Minntist ekki á að hann væri krón­prins.“
Mary Don­ald­son,
um fyrstu kynni sín af Friðriki.

Í árs­byrjun 2002 flutti Mary til Parísar og vann þar hjá Microsoft-fyr­ir­tæk­inu í nokkra mán­uði en flutti þá til Dan­merkur og vann áfram hjá Microsoft í um það bil eitt ár.

Mary hefur í við­tali greint frá því þegar Friðrik til­kynnti henni ein­hvern tíma á árinu 2002 að nú væri kom­inn tími til að hún myndi hitta Margréti Þórhildi. „Mamma ætlar að koma í te.“ „Og hvað á ég að gera?“ sagði Mary. „Þú skalt hneigja þig fyrir henni,“ var svarið. Mary sagð­ist ekki kunna réttu hneig­ing­una en Friðrik leið­beindi henni. „Ég held að þetta hafi nú ekki verið fal­leg hneig­ing en mér hefur farið fram síðan,“ sagði Mary.

Skemmst er frá því að segja að vel fór á með drottn­ing­unni og hinni til­von­andi tengda­dóttur.

Mamman gaf grænt ljós

Hinn 23. sept­em­ber árið 2003 barst dönskum fjöl­miðlum til­kynn­ing frá skrif­stofu hirð­ar­innar á Amali­en­borg. Þar kom fram að Margrét Þór­hildur myndi á rík­is­ráðs­fundi 8. októ­ber til­kynna sam­þykki sitt fyrir gift­ingu rík­is­arfans Friðriks og Mary Elizabeth Don­ald­son. Brúðkaup myndi fara fram vorið 2004, dag­setn­ing þess yrði til­kynnt síðar. Danskir fjöl­miðlar sögðu greini­legt að drottn­ingin og Hinrik drottn­ing­ar­maður væru mjög ánægð með tengda­dótt­ur­ina. Hinrik lýsti sér­stakri ánægju með að krón­prinsessan væri altalandi á frönsku.

Kon­ung­legur kossFriðrik og Mary kyss­ast á svölum Amel­íu­borgar.

Vann strax hug og hjörtu Dana

Það voru ekki bara for­eldrar krón­prins­ins sem voru ánægð með tengda­dótt­ur­ina. Athygli vakti að þegar þau Friðrik og Mary ræddu í fyrsta sinn við frétta­menn 8. októ­ber 2003, og til­kynntu trú­lofun sína, að Mary tók strax orðið og sagði á dönsku að hún væri mjög ánægð með að vera í Danmörku. Hún hefði lesið í fjöl­miðlum að hún tal­aði reiprenn­andi dönsku, það væri orðum aukið en hún myndi leggja sig alla fram um að læra málið. Það að Mary skyldi tala dönsku hitti Dani beint í hjarta­stað og dönsku miðl­arnir voru yfir sig hrifnir af henni. Þau Friðrik og Mary gengu í hjóna­band 14. maí árið 2004, athöfnin fór fram í Frú­ar­kirkju í Kaup­manna­höfn. Mary er fyrsta drottn­ingin í sögu Dan­merkur sem ekki er með blátt blóð í æðum.

Drottning Danmerkur

Síðan þau Friðrik og Mary ját­uð­ust hvort öðru í Frú­ar­kirkj­unni fyrir tæpum 20 árum hefur margt á daga þeirra drifið.

Hjónin eiga fjögur börn: elstur er Kristján, sem nú er krón­prins Dan­merkur, hann er fæddur 15. októ­ber 2005, næstelst er Isabella fædd 21. apríl 2007 og yngst eru tví­burarnir Vincent og Jos­ephine, fædd 8. jan­úar 2011.

Á und­an­förnum árum hefur Margrét Þór­hildur falið þeim Friðriki og Mary sífellt fleiri skyldur, sem til­heyra emb­ætti danska þjóð­höfð­ingj­ans. Mary hefur víða látið til sín taka, ekki síst varð­andi mál­efni barna. Eftir krúnu­skiptin 14. jan­úar síð­ast­lið­inn og Mary varð drottn­ing Dan­merkur breyt­ast verk­efnin ugg­laust, sama gildir um Friðrik kon­ung. Krón­prins­inn Kristján, sem enn er í fram­halds­skóla, mun sinna ýmsum verk­efnum sem faðir hans sinnti áður en hann tók við kon­ungs­tign­inni.

Margrét Þór­hildur naut alla sína þjóð­höfð­ingja­tíð mik­illar hylli landa sinna. Kannanir sýna að Danir bera mikið traust til kon­ungs­hjón­anna og telja full­víst að þau Friðrik og Mary muni halda kyndl­inum hátt á loft.

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár