Hvað mun Mette hrópa af svölunum?
Nýju kon­ungs­hjónin Friðrik mun taka við af móður sinni þann 14. jan­úar næst­kom­andi. Mary Don­ald­son verður honum við hlið. Mynd: AFP

Hvað mun Mette hrópa af svölunum?

Stærsta ára­móta­bomban í Danmörku árið 2023 var yfir­lýs­ing Mar­grétar Þór­hildar drottn­ingar, í nýársávarpi hennar, að 14. jan­úar næst­kom­andi yrði Friðrik krón­prins þjóð­höfð­ingi Dan­merkur. Sú ákvörðun hennar að afsala sér krún­unni með þessum hætti á sér ekki for­dæmi í danskri sögu.

Löng hefð er fyrir því í Danmörku að um ára­mót ávarpi danski þjóð­höfð­ing­inn þegna sína. Nytår­sta­len, eins og Danir nefna ræð­una, rekur upp­haf sitt til áranna í kringum 1880, stjórn­ar­tíðar Krist­jáns IX. Hann hafði fyrir sið að flytja skálar­ræðu, um lands­ins gagn og nauð­synjar, í  kon­ungs­veislu á nýárs­dag ár hvert. Í stjórn­ar­tíð Friðriks VIII voru árlegar skálar­ræður prent­aðar í dag­blöð­unum, og hann kom á þeim sið að enda ræð­una á orð­unum „Gud bevare Danmark“ sem enn í dag eru loka­orð ávarps þjóð­höfð­ingj­ans.

Frá árinu 1941 var ávarpið sent út í útvarp­inu og frá og með árinu 1958, í stjórn­ar­tíð Friðriks IX, föður Mar­grétar Þór­hildar, hefur ávarpið verið sent út sam­tímis í útvarpi og sjón­varpi, í beinni útsend­ingu. Og þá var farið að senda ávarpið út á gaml­árs­dag, klukkan sex síð­degis. Í stað þess að miða inni­hald ávarps­ins ein­göngu við Danmörku og dönsk mál­efni, eins og gert hafði verið, ræddi Friðrik IX um stöðu Dan­merkur í víð­ara sam­hengi.

Þjóðin hlustar á drottninguna

Hjá stórum hluta dönsku þjóð­ar­innar er það fastur siður að hlýða á ávarp þjóð­höfð­ingj­ans, sem er ætíð um það bil 15 mín­útna langt, áður en sest er til borðs. Margrét Þór­hildur hefur haldið þeim sið að tak­marka ekki ræð­una við dönsk mál­efni og að þessu sinni voru það átökin á Gasa og í Úkraínu sem voru henni efst í huga. Eins og tals­vert var fjallað um í dönskum frétta­miðlum gekkst drottn­ingin undir mikla aðgerð á baki snemma á árinu, og hélt sig í kjöl­farið til hlés vikum saman. Margrét Þór­hildur ræddi um þessi veik­indi sín í nýársávarp­inu og sagði að þau hefðu fengið sig til að íhuga hvort rétt væri að stíga til hliðar.

Stóra bomban

Svo kom yfir­lýs­ingin sem setti Danmörku á annan end­ann, ef svo mætti segja. Margrét Þór­hildur til­kynnti að 14. jan­úar næst­kom­andi myndi hún afsala sér emb­ætti þjóð­höfð­ingja og frá þeim degi yrði Friðrik sonur hennar kon­ungur Dan­merkur. Sú dag­setn­ing er ekki til­viljun því það var á þessum sama degi fyrir 52 árum sem faðir hennar, Friðrik IX, lést. Daginn eftir, á svölum Krist­jáns­borg­ar­hallar, lýsti Jens Otto Krag, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Margréti Þórhildi drottn­ingu Dan­merkur.

ÓvæntDrottn­ingin, sem verður 84 ára síðar á þessu ári, kom þjóð sinni í opna skjöldu með yfir­lýs­ing­unni.

Þótt ákvörðun drottn­ingar, sem verður 84 ára í apríl, mæti skiln­ingi landa hennar kom yfir­lýs­ingin á óvart. Ástæða þess var að hún hafði marglýst yfir að hún myndi sitja í hásæt­inu þangað til hún hrykki af stand­inum (ind­til jeg falder af pinden). Frétt­irnar af ákvörðun Mar­grétar Þór­hildar hafa vakið mikla athygli langt út fyrir danska land­steina og í þessu sam­hengi hefur verið bent á að sænski kóng­ur­inn og sá norski eru engin unglömb. Karl Gústaf verður 78 ára í apríl og Haraldur Nor­egs­kon­ungur verður 87 ára í næsta mán­uði. Á þeim er ekk­ert far­ar­snið að því best er vitað.

Friðrik X

Friðrik krón­prins, sem 14. jan­úar verður kon­ungur Dan­merkur og fær sam­kvæmt hefð­ar­röð dönsku krún­unnar tit­il­inn Friðrik X, er 55 ára. Hann hefur á und­an­förnum árum tek­ist á hendur sífellt fleiri verk­efni sem til­heyra starfi þjóð­höfð­ingja, hlaupið í skarðið fyrir drottn­ing­una ef svo mætti segja. Hann og eig­in­konan Mary, sem fær tit­il­inn drottn­ing, eru vin­sæl meðal dönsku þjóð­ar­innar. Mary, sem er þremur árum yngri en Friðrik, er af skoskum og áströlskum ættum.

„Friðrik krón­prins, sem 14. jan­úar verður kon­ungur Dan­merkur og fær sam­kvæmt hefð­ar­röð dönsku krún­unnar tit­il­inn Friðrik X, er 55 ára.“

Þau Friðrik gengu í hjóna­band árið 2004 og eiga 4 börn. Kristján er elstur barn­anna og verður því rík­is­arfi 14. jan­úar. Hann varð 18 ára 15. októ­ber á síð­asta ári og af því til­efni var haldin veisla í Krist­jáns­borg­ar­höll. Hinn verð­andi krón­prins flutti þar ræðu og þótti takast vel upp. Hann er enn í fram­halds­skóla en nú fær­ast auknar skyldur á herðar hans. For­eldr­arnir hafa lagt mikla áherslu á að börnin hljóti góða menntun.

Fjölskyldan vinsæl

Í könnun sem birt var 30. des­em­ber sl., dag­inn áður en Margrét Þór­hildur til­kynnti ákvörðun sína, kom fram að kon­ungs­fjöl­skyldan nýtur mik­illa vin­sælda meðal dönsku þjóð­ar­innar. Drottn­ingin og þau Friðrik og Mary njóta stuðn­ings 84–85 pró­sent þeirra sem spurðir voru. „Stjórn­mála­menn­irnir myndu glaðir gefa hægri hand­legg­inn fyrir slíkar vin­sældir,“ sagði sér­fræð­ingur um mál­efni kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Í könn­un­inni var líka spurt um Kristján prins, til­von­andi rík­is­arfa, 74 pró­sent lýstu ánægju með hann. 70 pró­sent vilja við­halda kon­ung­dæm­inu en 17 pró­sent vilja afnema það, þetta eru svip­aðar tölur og í síð­ustu könnun af þessu tagi, frá árinu 2016.

Í nóv­em­ber í fyrra birtu spænskir miðlar myndir af Friðriki og konu sem sögð var vin­kona þeirra hjóna, Friðriks og Mary, í Madrid. Ýmsar sögur fóru á kreik um þetta mál en þær logn­uð­ust fljót­lega út af.

Hvernig kóngur verður Friðrik?

Miðað við umræður og vanga­veltur í dönskum fjöl­miðlum þurfa Danir ekki að hafa áhyggjur af fjöl­skyld­unni á Amali­en­borg, þar er flest í föstum skorðum. En með nýjum hús­bændum í höll­inni koma ein­hverjir nýir siðir og áherslur. Friðrik er mik­ill áhuga­maður um íþróttir og lík­ams­rækt, móðir hans reri ekki á þau mið. Hún er aftur á móti mikil áhuga­mann­eskja um listir og menn­ingu, hefur haldið sýn­ingar á verkum sínum og gert bún­inga og leik­myndir fyrir leik- og ball­ett­sýn­ingar.

Friðrik hefur haft drjúgan und­ir­bún­ings­tíma fyrir þetta emb­ætti sem hann tekst nú á hendur og flestir Danir telja, miðað við kann­anir, að kon­ungs­hjónin muni verða landi og þjóð til sóma og þannig feta í fót­spor Mar­grétar Þór­hildar.

Ýmsar spurningar vakna

Vegna þeirra breyt­inga sem nú verða á dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unni hafa vaknað ýmsar spurn­ingar. Meðal ann­ars hvaða titil Margrét Þór­hildur muni bera þegar hún verður ekki lengur þjóð­höfð­ingi. Ekki hefur verið enn sem komið er lögð nein lína í þessum efnum frá hirð­inni en kunn­áttu­maður um kon­ung­leg mál­efni, sem danska útvarpið ræddi við, kvaðst telja að hún yrði áfram titluð drottn­ing. Og benti á að móðir hennar hefði verið nefnd drottn­ing til dauða­dags, þótt eig­in­mað­ur­inn, Friðrik IX, væri löngu lát­inn. Sami sér­fræð­ingur sagði sömu­leiðis að Margrét Þór­hildur yrði ávörpuð „Deres Majestæt“ og í umtali „Hendes Majestæt“. Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu kom fram að Friðrik muni bera tit­il­inn „Hans Majestæt Kong Frederik 10.“. Semsagt ekki notuð róm­verska hefðin. Danskir fjöl­miðlar hafa síð­ustu daga notað X og 10. í umfjöllun sinni.

Þarf Margrét Þórhildur að flytja?

Þetta er ein þeirra spurn­inga sem við blasa. Drottn­ingin býr á Amali­en­borg í einni af höll­unum fjórum. Friðrik og Mary búa í annarri höll á Amali­en­borg, sú höll var bústaður Friðriks IX og Ingiríðar. Höllin var öll tekin í gegn eftir lát Ingiríðar og þau Friðrik og Mary ákváðu allar inn­rétt­ingar, lista­verk, ljós og allt þess

háttar. Þessi mál skýr­ast vænt­an­lega á næst­unni en áður­nefndur sér­fræð­ingur sagði að Margrét Þór­hildur yrði ekki hús­næð­is­laus, og sagði lík­leg­ast að hún byggi áfram á sama stað. Drottn­ingin ræður yfir nokkrum höllum, fyrir utan Amali­en­borg, en lykla­völdin fær­ast nú í hendur Friðriks kon­ungs.

Hvað mun Mette hrópa af svölunum?

Þetta er ein þeirra spurn­inga sem vaknað hafa í fram­haldi af ákvörðun Mar­grétar Þór­hildar. Hefð er fyrir því að for­sæt­is­ráð­herr­ann komi ásamt hinum „nýja“ þjóð­höfð­ingja fram á svalir Krist­jáns­borg­ar­hallar og til­kynni and­lát hins látna og jafn­framt nafn hins nýja. Hinn 15. jan­úar 1972 kom Jens Otto Krag ásamt Margréti Þórhildi út á sval­irnar. Hann flutti stutt ávarp þar sem hann minnt­ist Friðriks IX áður en hann, sam­kvæmt hefð­inni, end­ur­tók þrisvar sinnum „Kong Frederik den niende er død, længe leve Hendes Majestæt dronn­ing Margrethe den anden“. Nífalt húrra­hróp fylgdi í kjöl­farið en þús­undir voru á torg­inu.

Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra getur ekki, af aug­ljósum ástæðum, end­ur­tekið þessi orð. Ýmsar til­gátur hafa komið fram um hvað ráð­herr­ann muni segja þegar hún stendur á svölum Krist­jáns­borg­ar­hallar 14. jan­úar næst­kom­andi. Flestir þeirra sem fjöl­miðlar hafa leitað álits hjá telja að Mette Frederik­sen muni flytja stutt ávarp og þakka Margréti Þórhildi þjón­ustu hennar við þjóð­ina í 52 ár. Síðan muni hún ein­fald­lega hrópa „Længe leve Hans Majestæt Kong Frederik den tiende“ Svo verði hrópað nífalt húrra. 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár