Kostnaðurinn jókst verulega á sama tíma og miklu færri sóttu um

Kostn­aður við þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd jókst um rúm 50 pró­sent á fyrstu sex mán­aðum þessa árs sam­an­borið við fyrri helm­ing síð­asta árs. Samt fækk­aði umsóknum um hæli hér á landi um 50 pró­sent milli tíma­bila. Kostn­að­ar­aukn­ing­una má rekja til tafa í máls­með­ferð hjá Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála.

Kostnaðurinn jókst verulega á sama tíma og miklu færri sóttu um
Mótmæli Venes­ú­ela­menn mót­mæla brott­vís­unum við Alþingi. Stórum hópum hefur þegar verið vísað héðan en enn bíða um 1.200 manns frá Venes­ú­ela nið­ur­stöðu sinna mála. Mynd: Golli

Kostn­aður vegna þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd jókst um rúm 50 pró­sent á fyrstu sex mán­aðum þessa árs sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra. Kostn­að­ur­inn hækk­aði þrátt fyrir að um 50 pró­sent færri hafi sótt um hæli hér á landi í ár en á sama tíma í fyrra. 

Í svari félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um málið kemur fram að fjöldi  nýrra umsækj­enda um alþjóð­lega vernd segi ekki alla sög­una um hugs­an­lega útgjalda­þróun vegna þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. 

„Vegna tafa í máls­með­ferð hjá Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála ásamt upp­safn­aðs fjölda umsókna sem bíða afgreiðslu hjá Útlend­inga­stofnun hafa umsækj­endur verið að ílengj­ast lengur í úrræðum Vinnu­mála­stofn­unar. Kostn­að­ur­inn við að þjón­usta umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hefur þar af leið­andi auk­ist,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins. 

Kostn­aður við þjón­ust­una var 1,4 millj­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2022, stökk svo í 3,7 millj­arða króna fyrstu sex mán­uði árs­ins 2023 og í tæpa 5,7 millj­arða á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. 

Samt sem áður hefur dregið veru­lega úr hæl­is­um­sóknum hér­lendis á þessu ári. Þær voru 2.022 tals­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins árið 2022, 2.498 árið 2023 en ein­ungis 1.128 í ár, sem má m.a. útskýra með því að veru­lega hefur dregið úr straumi hæl­is­leit­enda frá Úkraínu og Venes­ú­ela. Margir Venes­ú­ela­búar sem sóttu um hæli bíða þó enn afgreiðslu mála sinna, annað hvort hjá útlend­inga­stofnun eða kæru­nefnd útlend­inga­mála. Þeir voru um 1.200 tals­ins í byrjun ágúst.

Erlendir fái lægri bætur og innlendir með hærri tekjur

Fleiri fyr­ir­spurnum um kostnað við útlend­inga­mál var svarað í vik­unni, m.a. þeirri frá Diljá Mist Ein­ars­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins til félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. Þar var farið inn á til­færslur rík­is­ins til fólks með erlent rík­is­fang ann­ars vegar og inn­lent hins vegar. Þar kom í ljós að til­færsl­urnar voru að með­al­tali lægri til fólks með erlent rík­is­fang en inn­lent í fyrra. 

Bæturnar sem teknar voru inn í þennan útreikn­ing voru barna­bætur, vaxta­bætur, atvinnu­leys­is­bætur, hús­næð­is­bætur og greiðslur frá Trygg­inga­stofnun - t.d. elli­líf­eyrir og félags­legur stuðn­ingur. 

Í svari til Diljár kom jafn­framt fram að ráð­stöf­un­ar­tekjur og eignir fólks með íslenskt rík­is­fang séu umtals­vert hærri en hjá öðrum hópum. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár