Klárar hvern einasta veikindadag í meðgönguveikindi

Fyrir tæpum 34 árum stóð Sigrún Jóns­dóttir í pontu á Alþingi og krafð­ist þess að ófrískar konur fengju svo­kallað með­göngu­or­lof við 36. viku með­göngu svo þær þyrftu ekki að ganga á veik­inda­rétt­inn sinn. Nú, 34 árum síðar, er dóttir Sigrúnar, Jóna Þórey Pét­urs­dóttir, einmitt í þeim sporum að klára veik­inda­rétt­inn sinn vegna veik­inda á með­göngu. Þegar hún kemur aftur á vinnu­markað eftir orlof mun hún ekki eiga neinn veik­inda­rétt inni.

Klárar hvern einasta veikindadag í meðgönguveikindi
Jóna Þórey Vill að verð­andi mæður fái með­göngu­or­lof frá 36. viku, svo þær þurfi ekki að ganga á veik­inda­rétt­inn sinn í aðdrag­anda fæð­ingar. Mynd: Golli

Vegna heilsu­fars­legrar áhættu sem kom upp á 20. viku með­göngu þurfti Jóna Þórey Pét­urs­dóttir lög­maður að byrja að ganga veru­lega á veik­inda­rétt­inn sinn sem hún hefur unnið sér inn á vinnu­mark­aði. Hún var skikkuð í tveggja vikna fullt veik­inda­leyfi og svo 50 pró­sent veik­inda­leyfi fram að 36. viku með­göngu þegar hún verður aftur skikkuð í fullt veik­inda­leyfi. Vegna þessa mun Jóna klára veik­inda­rétt­inn sinn algjör­lega áður en hún fer í fæð­ing­ar­or­lof.

Hún væri í tals­vert betri stöðu ef frum­varp móður hennar, Sigrúnar Jóns­dóttur – þáver­andi vara­þing­manns Kvenna­list­ans – hefði náð fram að ganga árið 1990. Þá lagði Sigrún meðal ann­ars til að verð­andi mæður ættu rétt á orlofi sem kæmi ekki til frá­dráttar á fæð­ing­ar­or­lofi í einn mánuð fyrir fæð­ingu.

„Þetta er ára­tuga gam­alt fyr­ir­bæri sem þekk­ist vel í þessum nor­rænu vel­ferð­ar­kerfum sem við þykj­umst vera hluti af,“ segir Jóna og vísar til Dan­merkur, Noregs, Finn­lands og Þýska­lands. 

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kerfi sem bregst barnafjölskyldum

Lögð inn á spítala eftir bréf frá Fæðingarorlofssjóði
ÚttektKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Lögð inn á spít­ala eftir bréf frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði

Íslenskir for­eldrar sem Heim­ildin hefur rætt við segja frá harka­legum köntum á kassa­laga kerfi sem fær þau til að hugsa sig tvisvar um frek­ari barn­eignir. Læknir og bráða­tæknir sem eign­uð­ust nýlega son voru bæði komin aftur út á vinnu­markað þremur mán­uðum eftir barns­burð. Um tíma leit út fyrir að móð­irin fengi ekki fæð­ing­ar­or­lof.
Sér erfiðleika foreldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“
ÚttektKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Sér erf­ið­leika for­eldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“

Ingunn Lára Krist­jáns­dóttir er rúm­lega þrí­tug og hefur aldrei fundið löngun til barn­eigna. Hún telur að inn í það spili ónógur stuðn­ingur við barna­fjöl­skyldur í íslensku sam­fé­lagi. Aðjunkt í félags­fræði segir ástæð­urnar fyrir fallandi fæð­ing­ar­tíðni gríð­ar­lega flóknar en að kerfið hafi að hluta brugð­ist fjöl­skyldum, ekki síst mæðrum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár